Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1995, Blaðsíða 66
REIKISTJORNURNAR 1995
Teikningin á næstu síðu sýnir hvenær björtustu reikistjörnurnar eru
í hásuðri að sönnum sóltíma árið 1995. Sólin er alltaf í hásuðri kl. 12
að sönnum sóltíma hvar sem er á landinu og ferill hennar fylgir því
jaðri myndarinnar (hægri eða vinstri jaðrinum sem báðir eru merktir
með „12“ og eru í rauninni sama línan). Á myndinni kemur fram
hvaða afstöðu reikistjörnurnar hafa hver til annarrar á himinhvolfinu
og hvar þær eru miðað við sól. Þegar stjörnur eru vinstra megin á
myndinni eru þær á morgunhimni en þegar þær eru hægra megin eru
þær á kvöldhimni. Á myndina hafa verið dregnar línur til að gefa vís-
bendingu um hvenær auðveldast sé að sjá reikistjörnurnar. Er það á
þeim tveimur svæðum sem merkt eru „dimmt“ á myndinni. Á svæðinu
sem merkt er „bjart“ eru reikistjörnurnar annaðhvort mjög nærri sól
(innan við 45 mínútur í stjörnulengd) eða þær koma ekki upp í
Reykjavík meðan dimmt er. Ef markalína svæðanna er sýnd sem brot-
in lína merkir það að einhver reikistjarnanna sést betur eða verr en
ætla mætti af afstöðu hennar til línunnar.
Ef við viljum t.d. vita hvaða reikistjörnur muni sjást í janúarmánuði
lítum við á þann reit sem liggur þvert yfir kortið og afmarkast af stöf-
unum JAN til hægri og vinstri. Þá sjáum við að lengst til hægri, þ.e. á
kvöldhimninum næst sól, eru Merkúríus og Satúrnus. Satúrnus er
Iengra frá sól og sést því betur. Lengra til vinstri, á næturhimninum, er
Mars. Lengst til vinstri, á morgunhimni, eru Venus og Júpíter. Venus
er lengra frá sól f byrjun mánaðar en fer síðan fram hjá Júpíter og er
nær sól í mánaðarlok. Við jaðar myndarinnar erum við aftur komin að
sóL
Á eftir hverjum mánuði í dagatalinu (á bls. 7,11 o.s.frv.) eru töflur
sem eiga að gera mönnum auðveldara að þekkja björtustu reiki-
stjörnurnar. Skýringar við töflur þessar er að finna á bls. 3. f töflunum
er hæð yfir sjóndeildarhring tilgreind í gráðum sem reiknast frá 0 við
sjónbaug upp í 90 í hvirfilpunkti. Ef reglustiku er haldið Ióðrétt í út-
réttri hendi svarar hver sentimetri nokkurn veginn til einnar gráðu á
himninum.
Þótt fyrrnefndar töflur miðist við Reykjavík má yfirleitt nota þær
annars staðar á landinu án mikillar skekkju. Tölurnar sem sýna hve-
nær reikistjörnurnar eru í hásuðri verður þó að leiðrétta um 4 mínútur
fyrir hverja gráðu sem munar á Iengd staðarins og lengd Reykjavíkur
(bæta við ef staðurinn er vestar en Reykjavík en draga frá ef hann er
austar).
Til frekari glöggvunar fer hér á eftir mánaðarlegt yfirlit um stöðu
þessara björtustu reikistjarna eins og þær munu sjást frá íslandi á ár-
inu 1995. Stjörnurnar eru (talið frá sól): Merkúríus, Venus, Mars, Júp-
íter og Satúrnus. Á eftir þessu yfirliti er svo fjallað sérstaklega um hin-
ar daufari reikistjörnur sem eru lengra frá sól: Úranus, Neptúnus og
Plútó.
(64)