Dagblaðið Vísir - DV - 24.02.2005, Síða 8
8 FIMMTUDAGUR 24. FEBRÚAR 2005
Fréttir J3V
Sturla leyfir
aksturfram
og til baka
Sturla Böðvarsson sam-
gönguráðherra frá Ólafsvík
hefur ákveðið að breyta
reglum um akstur leigubif-
reiða á milh höfuðborgar-
svæðisins og Reykjaness.
Tilgangur breytinganna er
að bæta þjónustu við flug-
farþega og auka hagræði
við akstur til og frá Flug-
stöð Leifs Eiríkssoncir. Til
þessa hefur leigubílstjórum
aðeins verið heimilt að aka
með farþega aðra leiðina
og hafa þeir því orðið að
snúa til baka án farþega.
Með fyrirhugaðri breytingu
sameinast þessi svæði í eitt
aksturssvæði og er bifreiða-
stjórum beggja svæðanna
um leið heimilt að aka með
farþega báðar leiðir.
Kanna munna
barna
Nú stendur yfir lands-
rannsókn á munnheilsu ís-
lenskra barna á aldrinum
sex, tólf og fimmtán ára.
Þetta er fyrst áfangi um-
fangsmikillar rannsóknar á
tannheilsu
íslendinga
sem fyrir-
huguð er.
Markmið
rannsóknar-
innar er almennt að fá upp-
lýsingar um munnheilsu
Islendinga og að fá upp-
lýsingar um hvað tengist
slæmri munnheilsu. Verið
er að kanna munnheilsu
sex, tólf og fimmtán ára
barna í grunnskólum á höf-
uðborgarsvæðinu og næsta
nágrenni en í vor verða
börn á landsbyggðinni
skoðuð. Gert er ráð fyrir að
ljúka rannsókninni á yfir-
standandi skólaári.
Bflveltur á
Reykjanesi
Tvær bílveltur urðu á
skömmum tíma á Reyk-
janesi í vikunni. Laust
fyrir miðnætti á sunnu-
dagskvöldið missti varn-
arhðsmaður stjóm á
jeppabifreið sinni á
Vogavegi sem valt út fyrir
veg og hafnaði á toppn-
um. Sá bandaríski slapp
án meiðsla en biff eið
hans skemmdist mikið.
Laust eftir miðnætti varð
önnur bilvelta, nú á
Sandgerðisvegi. Ung
stúlka missti þar stjórn á
bifreið sinni vegna hálku
og fór bifreiðin út fyrir
veg og valt. ökumaður-
inn var talinn viðbeins-
brotinn.
Eldur kviknaði í listamiðstöðinni Straumi í síðustu viku. Lögreglan lagði hald á
kannabisplöntu sem listamaðurinn Tryggvi Hansen hafði ræktað í húsinu. Á þriðju-
daginn var málið tekið fyrir í bæjarstjórn Hafnarfjarðar og eru ekki allir á eitt sáttir
um plönturæktun myndlistarmannsins í Straumi. Sjálfur segir Tryggvi ekkert að því
að rækta kannabis. Það örvi sköpunargáfuna sem sé listamönnum nauðsynlegt.
Hafnarqapðarbær leigir lista-
miðstöð nndir kannabisrnklun
„Ég sé ekki glæpinn í því að rækta plöntur til að róa hugar-
ástandið," segir Tryggvi Hansen myndlistarmanns sem hefur
síðustu mánuði fengið að búa í listamiðstöðinni Straumi í Hafn-
arfirði. í síðustu viku kviknaði í Straumi og lagði lögreglan í kjöl-
farið hald á kannabisplöntu sem Tryggvi hefur ræktað í húsinu.
Tryggvi, sem er menntaður
myndlistarmaður, segist vilja lifa
öðruvísi lffi. Hann sé einfaldlega
þannig maður. „Ég vil geta ræktað
allt sem þarf til að lifa á einum og
sama staðnum. Mat, grænmeti eða
kartöflur. Þó að ein planta sé til að
örva sköpunargáfuna sé þar með
talin sé ég ekki glæpinn í því."
En ekki eru allir á sömu skoðun
og Tryggvi. Lögreglumaðurinn og
bæjarfiilltrúinn Gissur Sigurðsson
tók mál Tryggva upp á bæjar-
stjórnarfundi í Hafnarfirði á þriðju-
daginn.
Listamiðstöðin Straumur á ekki
að vera notuð til ræktunar á kanna-
bisplöntun var hnan sem gefln var á
bæjarstjórnarfundinum.
Ekki Hafnfirðingur
Sú spurning hlýtur því að vakna.
Af hverju fékk Tryggvi að vera þarna
á annað borð? Marín Hrafnsdóttir,
menningarfulltrúi Hafnafjarðarbæj-
ar, segir: „Þetta er listamaður sem
fékk að vera þarna upp frá. Því
miður reyndist hann síðan vera bara
hálfklikkaður."
Símon Jón Jóhannsson, formað-
ur menningarmálanefndar, segir:
„Við leyfðum honum að vera þarna í
góðri trú. Það er betra að hafa ein-
hvern þarna upp frá en engan því
þetta er afskekkt. Ég þekki Tryggva
líka bara af góðu, en hann er ekki
Hafnfirðingur. Hann er frá Akur-
eyri.“
Óreglufólk
Eldurinn sem leiddi til þess að
upp komst um kannabisræktun
Tryggva kviknaði á fimmtudeginum
í síðustu viku. Að sögn Tryggva var
þetta ekki stór eldur en nóg til þess
að athygli yfirvalda beindust að
staðnum. Reyndar hefur Straumur
áður komist í fréttirnar þegar deilur
Marínar menningarfulltrúa og
„Ég vil geta ræktað
allt sem þarf til að lifa
á einum og sama
staðnum."
Sverris Ólafssonar myndlistar-
manns stóðu sem hæst. Það virðist
engin lognmolla vera í kringum
þessa fögru listamiðstöð.
„Ég hafði leyft ungum manni og
kærustu hans að búa hérna hjá
mér," segir Tryggvi. „Það var tóm
óregla á þeim og ég held að eldurinn
hafi kviknað út frá sjónvarpinu
þeirra. Ég þurfti sjálfur að lilaupa til
og ná í slökkvitæki til að slökkva
eldinn."
Langar í Hobbita-holu
Lúðvík Geirsson bæjarstjóri í
Hafnarfirði hefur fengið skriflega
fyrirspurn frá Gissuri lögreglumanni
og bæjarfulltrúa um framtíðar-
áædanir fyrir Straum. Ætlunin er sú
að halda áfram að leyfa listamönn-
um að búa í húsinu þó að trúlega
muni menningarmálabatterí Hafn-
arfjaröar draga dýrmætan lærdóm
af þessari reynslu.
Sjálfur segist Tryggvi vera hálf-
feginn að þetta mál hafi komið upp.
Örlögin hafi komið honum þarna
inn og nú séu örlögin að koma
honum út aftur.
„Nú langar mig til að komast út á
land og búa til vistvænt þjóðlegt
þorp. Svona einskonar hobbita-hol-
ur þar sem hægt er að rækta plöntur
utan á húsunum. Mér finnst
Straumur samt fi'nt
svæði. Það á að halda
áfram að leyfa lista-
mönnum að búa þarna."
simon@dv.is
andri@dv.is
Fundur Samherja með Stöðfirðingum vegna lokunar fiskvinnslu
Þorsteinn boðaði uppsagnir Stöðfirðinga á Reyðarfirði
Fyrirhuguð lokun frystihúss
Samherja á Stöðvarfirði leggst þungt
á íbúa. Á fimmta tug starfsmanna
munu missa vinnu sína og uppsagn-
irnar eru taldar hafa bein eða óbein
áhrif á alla íbúa bæjarins, en frysti-
húsið hefur um árabil verið lang-
stærsti vinnustaðurinn á Stöðvar-
firði.
Sveitarstjórn Austurbyggðar,
sameinaðs sveitarfélags Stöðfirð-
inga og Fáskrúðsfirðinga, brást við
með að óska eftir því við forstjóra
Hvað liggur á?
Samherja, Þorstein Má Baldvinsson,
að hann kæmi til fundar við sveitar-
stjórnina vegna málsins næst þegar
hann ætti leið um Austurbyggð.
Síðan liðu tvær vikur.
í pistli í nýútkomnum Austur-
glugga ritar einn sveitarstjórnar-
manna í Austurbyggð, Björgvin Val-
ur Guðmundsson, um það þegar
Þorsteinn Már kom loks austur og til
fundar við sveitarstjórnina. Björgvin
Valur, sem situr við annan mann í
minnihluta sveitarstjórnar Austur-
byggðar, segir að einhverra hluta
Pað liggur langmest á að komast heim Iþessum töluðu oröum,"segir Sverrir Berg-
mann, söngvari Daysleeper og dagskrárgerðarmaður á Popp-Tíví.„Svo liggur mérá
að hætta að fitna. Ég er að byrja í ræktinni og er raunar á leiðinni þangað seinni
partinn í dag. Ég fer ekki á morgnana í ræktina, þyrfti að vera hálfruglaður til
þess.“
vegna hafi Þorsteinn Már ekki kom-
ist alla leið til Stöðvarfjarðar heldur
farið fram á það við forsvarsmenn
Austurbyggðar að þeir legðu á móti
land undir fót og hittu forstjórann á
Reyðarfirði, sem eins og
landafærðiáhuga-
mönnum ætti að
vera kunnugt að er
næsti fjörður við
Fáskrúðsíjörð.
Björgvin furðar
sig á þessu í pistli
sínum og einnig því
að forsvarsmenn
sveitarstjórnar hafi
samþykkt að keyra
rúma hundrað kíló-
metra, yfir í annað sveitarfélag, til að
fara til fundar við Þorstein, sem
flestir íbúa Stöðvarfjarðar hugsa nú
þegjandi þörfina vegna lokunar
frystihúss staðarins, sem samkvæmt
pistlinum verður 1. október næst-
komandi.
Bjorgvin Valur SveitarstjórnarmaÖurinn furöarsig á þvl
TnmH^ríVerTlÓTrAUStUrby^ f°rstjóra
Samherja hafi þurft að fara fram I öðru sveitarfélagi.
Forstjórinn Þorsteinn Már. Lok-
ar á Stöðvarfirði en vill helst ekki
funda þar að mati Björgvins Vals.