Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.2005, Síða 40

Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.2005, Síða 40
40 LAUGARDAGUR 12. MARS 2005 Helgarblað DV fOYFRENb Veislur eru sérfag Kökumeistarans. Hversu stór, lítil eöa framandi ósk þín er þá leggjum við okkur í líma við að uppfylla óskina. Ertu að ferma? Kíktu á www. kokumeistarinn. is eða hafðu samband í síma 555-6655 Kökumeistarinn hefur í gegnum tíðina unnið til margra verðlauna fyrir kökugerð hérlendis og erlendis. Þú getur treyst honum fýrir veislunni þinni. Verslun Kökumeistarans l Firði, Hafnarfirði er opin: mánudaga til fóstudaga 8:00 - 19:00 laugardaga frá 8:00 - 17:00 sunnudaga frá 10:00 - 17:00 Tanja Sif Árnadóttir er útskrifaður við- skipta- og markaðsfræðingur frá HA. Hún hefur vakið athygli fyrir módelstörf gegnum tíðina en núna er hún að undir- búa umsókn sína í Listaháskóla íslands en draumurinn er að komast í fatahönn- un. Það sem fæstir vita er að Tanja er húðflúruð víða um líkamann. Hún leyfði okkur að kíkja á tattúin og sagði okkur söguna á bak við þau. „Ég fékk mér fyrsta tattúið mitt þegar ég var að verða 17, þá fékk ég mér á ökklann," segir Tanja Sif en síðan hefur hún fengið sér fjögur tattú í viðbót, á hnakkann, aftan á hálsinn, á mjóbakið og undir iiina sem er það nýjasta. Aðspurð að því hvort hún sjái eftir einhverju af þeim segist hún alls ekki gera það. „Ég sé ekki eftir neinu þeirra en ef ég á að nefna eitt þá verð ég að segja það sem ég fékk mér í Bandaríkjunum, það var bara svo illa gert en ég hef látið laga það svo ég er ánægð með það í dag." Hvað sársaukann varðar er Tanja ekki í vafa um það hvað var verst. „Það sem ég fékk mér á hnakk- ann var alveg hræðilega vont, það var eins og verið væri að bora ein- hverju lengst í hausinn á mér. Fyrsta tattúið var líklega sársaukaminnst, ég man ekki eftir að hafa fundið neitt sérstaklega fyrir því,“ segir Tanja. Deitar bara krabba Stærsta tattúið hennar er mynd af krabba á mjóbakinu en hún er krabbi sjálf. „Ég fékk mér krabbann sem er á flmmtíukalhnum. Svo tók ég líka meðvitaða ákvörðun ekki alls fyrir löngu að deita bara menn sem eru krabbar og ég hef staðið við það. Kærastinn minn, Börkur Hrafh Birg- isson er til dæmis krabbi," segir Tanja og tekur fram að henni þyki mjög vænt um öll tattúin sín. „Mér Goðið Þengur Fyrsta tattúið hennar, nett rún á hægri ökkla Annar krabbi Þetta merkir krabbann en að sögn Tönju var þetta virkilega sársaukafuilt Jarðarber Nýjasta tattúið, iítið og sættjarð- arber undir ilinni. þykir fallegast að vera með listræn og smekkleg tattú og mér finnst mín tattú öll flokkast undir það, þau eru ekki of stór eða flókin. Annars er ég ánægð með alla staðina sem ég hef valið, ég get hulið þá en þeir eru heldur ekki á einhverjum huldum stöðum sem enginn sér nokkurn tímann. Ég get vel hugsað mér að fá mér fleiri í framtíðinni," segir hún og bendir á að það séu vissir for- dómar í þjóðfélaginu í garð þeirra sem eru með stór og mikh tattú. Lukka sem fylgir tattúunum „Ég hef ahtaf verið með ein- hverjum þegar ég hef fengið mér tattú, ég var til dæmis með systur minni þegar ég fékk mér fyrsta tattúið og mömmu þegar ég fékk mér á hnakkann og það nýjasta á il- inni fékk ég mér með með írisi Ann vinkonu minni svo þau öll skipta mig miklu máli," segir Tanja en öll tattúin hefur hún fengið sér á orku- staði líkamans. „Eitt af tattúunum er rún sem merkir goðið Þengur og annað er Auga Ra sem táknar eg- ypska sólguðinn Ra. Ég trúi því að þau tvö hafi alltaf veitt mér mikla gæfu og lukku gegnum tíðina," seg- ir Tanja og bætir við að lokum að henni finnist sumir krakkar í dag fá sér tattú ahtof snemma, ungir krakkar hafi ekki þroska í að velja sér eitthvað sem mun fylgja þeim alla tíð. Fimmtíukallskrabbinn Tanja erkrabbi og deitar bara menn sem eru krabbar. Auga Ra Tákn egypska sólguðsins hefur verið Tönju til heilla.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.