Dagblaðið Vísir - DV - 02.04.2005, Side 17

Dagblaðið Vísir - DV - 02.04.2005, Side 17
DV Helgarblað LAUGARDAGUR 2. APRÍL 2005 1 7 Fréttbr rblctð _>>ul II 10«1 ww«^“ra‘“’ dópista bæjarins. Hann er sagður hafa lifað meira eða minna á sölu róandi lyfja og amfeta- míns í töfluformi auk ritalins sem hann fékk ávísað á sjálfan sig hjá læknum sem hann var í kunningsskap við. Bragi var með fleiri en einn lækni í takinu og átti alltaf nóg af lyfjum. Fíklarnir vissu af honum og leituðu til hans í neyð en dýrt var dópið hjá Braga. Róandi lyf eru ekki dýr og pakki eða glas með 50 eða 100 töflum kostar innan við þúsund krónur samkvæmt verðlagi í dag. En fyrir dópista í frá- hvörfum var hver tafla dýr- mæt og Bragi nýtti sér það en sagnir herma að Bragi hafi selt hverja töflu fyrir ekki minna en fimm hundruð krónur. Ritalinið og amfeta- mínið seldi hann dýrara. Það var því oft stöðugur straumur til Braga, einkum um helgar en hann var oftast heima við og drukkinn. i i 4 4 ’A 4 6S ára kaiitnanni banitð á htóiroiU sínu við KJ Fimmta man í Reykjavík Hinn grunaði hefur áöur _______ komiö viö sögu dómsmála Geðsjúkur afbrotamaður á reynslulausn Sumir töldu hann lúra á peningum Misjöfnum sögum fer af Braga og víst að ættingjar hans kynntust annarri hlið hans en þeir heimildarmenn okkar sem leituðu til hans eftir dópi. Bragi var ekki vinsæll hjá þeim en hann þótti mikill gyðingur í við- skiptum. Margir töldu hann eiga meira fé en ætla mætti og hann lægi á því heima eins og ormur á gulli. Því var ekki óalgengt að menn gerðu tilraun til að ræna hann en Bragi sá við öllum, þó drukkin væri. Eitt sinn réðst gest- komandi piltur á hann og reyndi að ná af honum mikilli lýklakippu sem hann gekk jafnan með um mittið og talið var að á henni væri lykillinn að meintum auðæfum hans. Bragi gerði sér þá lítið fyrir og fleygði gestinum niður af svöl- um húss síns en það er talsvert fall og hið mesta lán að maðurinn skyldi ekki stórslasast. Hann slapp án teljandi meiðsla en hún var fljót að fljúga fiskisagan í und- irheimunum og Bragi fékk lengi vel eftir þetta frið og menn þorðu ekki að leggja til hans. Á fyrri árum starfaði Bragi lengi hjá Ríkisskipum en seinni árin var hann við garðyrkju á sumrin. Hann sló þá garða, klippti tré og runna auk þeirra verka sem til féllu í görðum á 4 A a A i\ q ú saKaw3^ulf a reynslulausn bis. 14 og 15 Hörmungasaga Braga Bragi hafði orðið konu sinni að bana og var sjáifur drepinn af geðsjúkum manni í Ibúð sinni 15 árum síðar. sumrin en hann var ékki í fastri Konan gafst upp og þau skildu Hann mun alla tíð hafa verið drykkfelldur en hann var kvæntur Guðbjörgu Pétursdóttur, mikilli sómakonu sem ekki átti sjö dag- ana sæla þegar Bragi var á drykkjutúrum. Þau áttu saman fjögur börn en auk þess átti Bragi bam framhjá Guðbjörgu á meðan þau voru gift. Valur sonur hans er eitt barnanna sem Bragi átti með konu sinni og hann staðfestir að hjónabandið hafi reynst móður hans erfitt. „Ég var ekki alinn upp hjá þeim og fór ekki að umgangast föður minn fyrr en ég var kominn Húsið fyrir breyt- ingar Svona leit hús- iðút þegar hörmung arnar riðu yfir. undir tvítugt. Ég vissi að hann drakk alla tíð illa en síðari ár var hann búinn að skemma sig á drykkju," segir Valur en hann full- yrðir að faðir hans hafi ekki borið mikið úr býtum fyrir sölu á lyfjum og hafi dáið blásnauður. „Ég held að þessi sala hans sé orðum aukin og held að hann hafi að mestu sett þær pillur sem hann fékk ofan í sjálfan sig. Ég aðstoðaði hann með peninga síðustu árin og veit ekki hvernig hann hefði farið að því að lifa ef svo hefði ekki verið. íbúðin á Klapparstígnum var seld nauðungarsölu mánuði áður en hann dó og það fundust engar eignir í búi hans,“ segir hann. Dó blásnauður Valur segir föður sinn hafi ver- ið ágætis mann sem alls ekki hefði átt að drekka vín. „Mér þótti vænt um föður minn en ég gerði mér ljóst hvað hann var orðinn skemmdur síðustu fimm- tán, tuttugu árin sem hann lifði. Ég býst við að karlinn hafi verið sjálfum sér verstur og það kemur mér mjög á óvart ef einhver hefur haldið að hann lægi á einhverju fé. Það var af og frá. Hann hafði aldrei neinn áhuga á peningum," segir Valur sem rekur sitt eigið fyrirtæki og á konu og börn frá fýrri samböndum. Hann segir hin systkinin ekki hafa verið í sambandi við föður sinn eftir að þau móðir hans skildu. Aðeins hann hafi gert það en þau áttu ólíkar minningar um pabba sinn þar sem Valur leið ekki fýrir drykkju hans. Það skýr- ir hvers vegna hann var einn um sambandið við Braga. Þrátt fyrir erfiða æsku rættist vel úr börnum Braga og þau hafa öll spjarað sig vel í lífinu. Inni á milli tókst Braga að vera þurr og var hann edrú í einhverjar vikur og var þá mikið heima við og horfði á sjónvarp. Náinn ættingi lýsir honum sem skemmtilegum manni þegar sá gállinn var á hon- um. Hann var góður við þá sem honum þótti vænt um og gat ver- ið gjafmildur ef honum datt það sjálftim í hug. Ráðfærði sig við miðil Eftir morðið á Braga var íbúð- in gerð upp og sá fyrsti til að búa þar eftir breytingarnar var Brynj- úifur Jónatansson. Hann segist hafa verið smeykur til að byrja með að flytja inn'í íbúðina þar sem honum var kunnugt um hörmungarnar sem þar höfðu átt sér stað. Hann ráðfærði sig við miðil áður en hann flutti inn en sá sagði íbúðina ekki bera þess merki að þessi voðaverk hefðu verið framin, andi hennar hefði hreinsast með láti Braga. Brynjúlfur bjó á Klapparstígn- um í rúmt ár og segist aldrei hafa fundið fýrir slæmum anda en minnist þess þó að stúlka sem bjó um tíma í næstu íbúð hafl fundið fyrir ónotum um tíma. Brynjúlfur er nú fluttur annað en segir þó ástæðuna fyrir flutn- ingnum ekki vera ódæðin sem framin höfðu verið í íbúðinni. Hús með skuggalega fortíð Klapparstígur 11 á sér ekki fagra fortíð. Þau ár sem Bragi bjó þar stóð hann ekki í þrifum upp fyrir haus, fjarri lagi. Þeir sem heimsóttu hann segja að útlitið á íbúðinni hafi verið eins og jafnan hjá drykkjumönnum en þeir velta sér sjaldnast upp úr hrein- I Bragi var ógæfumaður | I Seldi lyf og ffkniefni I | hörmungaibúðinni. gemingaleginum. Á gólfum var teppi sem líklega hafði ekki verið ryksugað í nokkur ár og óhreint leirtau var ekkert að ergja íbú- ann. Síðustu árin var Bragi í sam- bandi við konu sem drakk með honum og dópaði. Hún hefur far- ið skelfilega illa með sig á dópinu og var oft fársjúk eftir að hafa sprautað sig í áraraðir. Ekki er ólíklegt að Braga hafi þótt vænt um hana en varla er hægt að segja að samband þeirra hafi byggst á sterkum grunni. Hún tók sig stundum til og lagaði til í kringum Braga en tæplega hafa það verið neinar stórhreingern- ingar. Eftir lát Braga seldi íbúð- alánasjóður íbúðina eftir að hafa keypt hana á uppboði. Síðan þá hefur svo sannarlega birt yfir þessari litlu íbúð á Klapparstígn- um því því gagngerar breytingar hafa verið gerðar á húsinu sem er tæplega hundrað ára gamalt. Kannski er eins gott að veggir þessa húss geta ekki sagt frá því sem gerðist innan þeirra. Nóg er nú samt, því óvíða hér á landi hafa tvö morð og tilraun til manndráps átt sér stað í einni og sömu íbúðinni. Fyrir utan allt annað, sem veggirnir einir geyma og munu aldrei segja frá.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.