Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.2005, Blaðsíða 34
SmfíRHKÍ BIÚ
Huasauu síoiit
SIMI 504 0000
HEIMSFRUMSÝNING
FH I IVÁ I I I K'i I J I II A
q57 DIE ANOTHER DAY
Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15 Sýnd í lúxus kl. 5.45, 8 og 10.15 B.l. 12 ára
REOÍIBOEinn . írfí
SÍMI 551 9000
lceland International Film Festival
f * * U.H.T. Ríís ?
ownfall
Magnþrungið meistaraverk um
siðustu dagana i lifi Hitlers séð
með augum Traudl Junge sem var
einkaritari Hitlers. Túlkun Bruno
Ganz á Hitler er stórkostleg. Ein
besta striðsmynd allra tlma.
Downfall - Sýnd kl. 7 og 10
Hotel Rwanda - Sýnd kl. 5.50, 8
og 10.15
..." SV MBL
Nyjasta mynri eins allra virtasti loikstjori heims ■.
SÍÉM!, gEE'.l„ M tóiks'i»'a .«"»■' !<•»>» nýtt },f ckuirki; episk
Trlfím'! f f iir.in.í i lioril.iy.mivnd og islfrvaga, sem á sér cngan liko og
SlíSf “btesSSofsljal'SGabrfei "» ‘
Garcla Bcrnal og Fele Martinc/. HOUSC OI tnB Flying DacjgerS
Bad Educatlon - Sýnd kl. 5.50 og 8 - Sýnd kl. 5.50 og 10.15
Lífið eftir vinnu
BlÓ • Kvikmyndasafn íslands
sýnir hina umtöluðu mynd Sams
Peckinpah, Strawdogs, eða Rakk-
arnir, í Bæjarbíói í Hafnarfirði
klukkan 20. Hún segir frá ungum
hjónum sem lenda í ofbeldisseggj-
um sem niðurlægja þau á ýmsan
hátt. Aðalleikarar eru Dustin
Hoffinan og Susan George.
Tónleikar • Dómkirkjukór
Gautaborgar syngur á tónleikum í
Reykholtskirkju klukkan 20.30.
• Tangósveit lýðveldisins heldur
síðasta tangókvöld vetrarins í Iönó
klukkan 20. Sveitin er skipuð þeim
Hjörleifi Valssyni fiðluleikara, Tatu
Kantomaa bandoneonleikara, Ast-
valdi Traustasyni harmónikuleik-
ara, Vigni Þór Stefánssyni píanó-
leikara og Gunnlaugi T. Stefánssyni
kontrabassaleikara.
Fundir og fyrirlestrar •
Astþór Gíslason sjávarlíffræðingur
flytur erindi í Norræna húsinu
klukkan 12 um alþjóðlegar haf-
rannsóknir á Mið-Atíantshafs-
hryggnum.
• Síðasta HeimspeJdkaffihús vetr-
arins verður á Café Cultura, Hverf-
isgötu 18, klukkan 20.30.
• Aöalheiður K. Þórarinsdóttir og
Halldóra Eyjólfisdóttir sjúkraþjálfar-
ar á LSH munu ræða um líkams-
rækt sem vörn gegn krabbameini á
aðalfundi Krabbameinsfélags Hafii-
arfjarðar, sem haldinn verður í Há-
sölum, safnaðarheimili Hafnar-
fjarðarkirkju við Strandgötu, klukk-
an 20.
Knightley, Kris
Kristofferson, Jenni
ferJason Leigh.
Corgan með
sóloplötu
Billy Corgan heldur tvenna
tónleika með sólóefiú í London
í næsta mánuði. Þar hyggst
hann kynna efni af væntanlegri
sólóplötu sinni. Corgan,
sem er þekktastur
sem aðalspraut-
an í Smashing
Pumpkins,
hefur látið
lítið fyrir sér
fara síðan
hann gaf út
plötu með
Zwan, en er nú
tilbúinn að
henda sér aftur í
slaginn.
Britney
klónuð
Nú keppast sífellt fleiri um að
klóna poppdrottninguna Britney
Spears. Þótt flestir láti sig reynd-
ar bara dreyma um
að klóna Britn-
eyhafasum-
ir gengið
lengra. Nú
hefur út-
varpsstöð
ÍKanada
einhvem
veginnkom-
istyfir óléttu-
próf söngkonunn-
ar, sem hún tók á hóteli í
Ottawa. Útvarpsstöðin Hot 89,9
hefur nú boðið óléttuprófið,
stútfullt af DNA-efiii söngkon-
unnar, til sölu hæstbjóðanda.
Forsvarsmenn útvarpsstöðvar-
innar hafa heitið því aö kaupa
gjöf handa ófæddu bami Britney
fyrir ágóðann af sölunni.
10 myndir
halda áfram
Aftur til framtíðar
Það er svolítið erfitt að setja
þessa mynd í sérstakan flokk. Er
þetta vísindaskáldsaga, spennu-
mynd eða bara hreint drama með
yfirnáttúrulegu yfirbragði? Ég held
ég kjósi síðasta kostinn því að það
sem kemur fram í þessari sögu er
sett fram á frekar lágstemmdan og
hversdagslegan hátt.
Myndin fjallar um Jack Starks,
fyrrverandi hermann sem er á leið
heim eftir Flóabardagann fyrsta, eft-
ir að hafa verið skotinn í höfuðið og
legið á sjúkrahúsi í eitt ár að berjast
við minnisleysi. Á leiðinni hjálpar
hann ungri stúlku og útúrdópaðri
móður hennar með bíl sinn og
stuttu eftír það fær hann far hjá
ókunnugum manni sem endar á því
að myrða lögreglu-
mann og láta líta út
fyrir að Starks hafi
framið verknaðinn.
Starks er dæmdur
ósakhæfur vegna geð-
veilu og sendur á geð-
sjúkrahús þar sem
yfirlæknirinn Thomas
Becker setur hann í
sérstaka meðferð þar sem hann er
lokaður inni í líkgeymslu klukku-
tímunum saman.
Það sem gerist í geymslunni er
að Starks byrjar að fá minnið aftur
en hann fær lfka þann eiginleika að
getta farið fram í tímann, eða allt til
ársins 2007, þar sem hann hittir
stúlkuna ungu sem hann hjálpaði
mörgum árum áður. Hún er þá
orðin bitur, einmana gengilbeina og
Jack þarf að sannfæra hana um að
hann sé sá sem hann segist vera, en
hún segir honum að sá Jack Starks
sem hún þekki hafi dáið á geð-
sjúkrahúsinu rúmum tíu árum áður.
Jack þarf því að berjast við tím-
ann og finna upplýsingar sem
hreinsa hann af morðinu sem hann
er sakaður um, koma starfsfólki
Ómar fór í bíó
The Jacket
Sýnd í Sambióunum og
Háskólabíói.
Leikstjóri: John Maybury.
Aðalhlutverk: Adrien
Brody, Keira
allur leikarahópurinn, halda sig við
frekar þunglamalegan leik til þess að
ýta undir ömurleikann sem um-
kringir persónttrnar og maður fær
stundum á tilfinninguna að maður
horfi á íslenska kvikmynd.
Útíit myndarinnar er allt mjög
flott; grátt, kalt og þunglamalegt, og
nær leikstjórinn John Maybury að
láta manni líða hálfilla í þessu um-
hverfi. En hann nær manni aldrei
með sögunni og fyrir vikið er eins og
myndin reyni að líta út fyrir að vera
mun dýpri og merkilegri en hún í
rauninni er.
Ómar öm Hauksson
L
sjúkrahússins í skiln-
ing um það að hann sé
ekki geðveikur og
reyna að breyta örlögum stúlkunn-
ar.
Það er ekki hægt annað en að
líkja þessari mynd að einhverju leyti
við hina mun betri Jacob’s Ladder
sem kom út árið 1990. Myndirnar
fjalla báðar um hermenn sem
„deyja” í byrjun myndarinnar,
hressast og byrja svo að upplifa
hræðilegar minningar eða sýnir sem
gætu verið raunverulegar eða ekki.
The Jacket heldur sig samt meira
í raunveruleikanum þar sem Jacob’s
Ladder var meira hryllingsmynd, og
skrambi góð sem slík. Myndin nær
eiginlega aldrei að mynda neina
spennu og heldur sig við sama hrað-
ann út í gegn. Það gerir hana helst til
flata og náttúrlega óspennandi.
Brodie og Knightíey, og reyndar
Tökur heQast á Farangri Árna Ólafs
Lágstemmt fjölskyldudrama
IÁrni Ólafur Gerirfyrstu
kvikmyndslna í fullri lengd.
Um þessar mundir eru að hefjast
tökur á nýrri mynd Árna Ólafs Ás-
geirssonar sem gengur undir vinnu-
heitínu Blóðbönd.
,Ætli það megi ekki segja að þetta
sé lágstemmt fjölskyldudrama,” seg-
ir Árni Ólafur. „Þetta er saga um
hjón sem eiga tíu ára dreng og ann-
að barn á leiðinni. Þau eru á mjög
góðum stað í lífinu, bæði veraldlega
og andlega. Ungi drengurinn lendir
síðan í einhverju smá slysi og endar
uppá spítala. Þar eru gerðar blóð-
prufur og svo framvegis en þegar
faðirinn sér í hvaða blóðflokki strák-
urinn er í kemur í ljós að hann er
ekki pabbi stráksins. Myndin er síð-
an um hvernig fjölskyldan tekst á við
þessar upplýsingar."
Hjónin Pétur ogÁsta eru leikin af
þeim Hilmari Jónssyni og Margréti
Vilhjálmsdóttur. Önnur hlutverk eru
í höndum Ólafs Darra Ólafssonar,
Elmu Lísu Gunnarsdóttur og
Laufeyjar Elíasdóttur.
Þetta er fyrsta mynd Árna Ólafs í
fullri lengd en hann er menntaður í
kvikmyndagerð í Póllandi.
Tökur á myndinni hefjast á
mánudaginn í næstu viku og er
myndin einungis tekin á Stór-
Reykjavíkursvæðinu. Gert er ráð fyr-
ir að tökur standi yfir í um fimm vik-
ur, þ.e.a.s. að þeim ljúki í júní.
Myndina á síðan að frumsýna næsta
haust, í byrjun október.
Myndin er framleidd af Snorra
Þórissyni og Pegasus. Hún hlaut
styrk uppá 38 milljónir úr sjóði Kvik-
myndafélags íslands og er áætíaður
kostnaður við myndina 1,3 milljón
evrnr, eða um 105 milljónir íslenskra
króna.
Heildaraðsókn á Iceland
Intemational Film Festival var
komin 32.463 manns í gærdag og
ákveðið hefur verið að tíu mynd-
ir haldi áfram í sýningum vegna
gríðarlegrar aðsóknar. Myndim-
ar sem halda
áframeru
Downfall,
Bad Edu-
cation, Hot-
el Rwanda,
House of
the Flying
Daggers, The
Motorcycle Di-
aries, Napoleon
Dynamite, Vera Drake, Beyond
the Sea, Garden State og Maria
FullofGrace.
t