Dagblaðið Vísir - DV - 12.05.2005, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 12.05.2005, Blaðsíða 4
4 FIMMTUDAGUR 12. MAÍ2005 Fréttir T3V Anders Hansen, fyrrverandi blaðamaður og hrossabóndi, hefur keypt ferðamanna- paradísina Leirubakka í Landsveit af íslenskum aðalverktökum. Sveinn R. Eyjólfsson, fyrrverandi eigandi Leirubakka, segir jörðina nú vera orðna þá dýrustu á landinu. Leirubakki Fimmtán \ ára uppbyggingarstarf Sveins R. Eyjólfssonar skiiarsérnú iháu verði. Sveinn R. Eyj- I ólfsson Segir Leirubakka nú orðna dýrustu \jörð á Islandi og \er sáttur við sitt. Ásdís Halla byrjar af krafti Fyrsta skóflustunga að nýrri verslun BYKO á Akur- eyri, sem áætlað er að opni að ári liðnu, vorið 2006, var tekin i gær að viðstöddu margmenni. Kristján Þór Júl- íusson bæjarstjóri áAkureyri tók fyrstu skóflustunguna og voru Jón Helgi Guðmunds- son forstjóri BYKO ogÁsdís Halla Bragadóttir, verðandi forstjóri BYKO, viðstödd at- höfnina. Verslunin mun hafa í för með sér ýmsar nýjungar og bætta þjónustu við við- skiptavini. Hún verður alls 5.500 fm að stærð og mun rísa á lóð BYKO í Krossanes- haga, en svo nefnist nýtt byggingasvæðið nyrst í Gler- árhverfi. Pétur Blöndal mótmælir Pétur H. Blöndal, þing- maður Sjálfstæðisflokksins, lýsti því yfir á Alþingi síð- degis í gær að hann myndi greiða atlcvæði gegn 9. grein fiumvarps um fjarskipti sem nú er tii umræðu á Alþingi. Þessi grein gerir ráð fyrir að fj arskiptafyrirtækj - um sé skylt að veita lögregiu upplýsing- ar um skráðan eig- anda ákveðins símanúmers og/eða eiganda eða not- anda ip-tölu töivu. Meiri- hluti samgöngunefndar þingsins lagði til að þetta ákvæði frumvarpsins yrði samþykkt óbreytt en þessi grein frumvarpsins hefur verið gagnrýnd harðlega af Persónuvemd. Iðandi starfsmenn í gær höfðu tæplega fimm þúsund starfsmenn íslenskra fyrirtækja lagt að baki 121 þúsund kílómetra í átakinu Hjólað í vinnuna eða nimlega níutíu hringi í kringum landið, samkvæmt fréttatilkynningu frá ÍSÍ. Ekki em allir sem leggja það á sig að hjóla. 58 pró- sent hjóla og næst eru 40 prósent sem ganga og rest- in notar strætó og línu- skauta, svo eitthvað sé nefnt. Keppninni lýkur á morgun, föstudaginn, 13. maí. Liðakeppni fyrirtækja er í gangi og verða verðlaun veitt þremur efstu liðunum 19. júnf næstkomandi. Dýrasla Jörð á Islandi seld á 210 milljánir Ferðaþjónustuparadísin Leirubakki í Landsveit hefur verið seld á 210 milljónir króna. Kaupandi er Anders Hansen, fyrrverandi blaðamaður á Morgunblaðinu og hrossabóndi á Árbakka á Rangárbökkum, og staðgreiddi hann jörðina sem fyrir bragðið er orðin sú dýrasta á landinu. Að baki Anders stendur Þjóðverji sem fáir vita hver er. Undanfarin fimmtán ár hefur Sveinn Eyjólfsson, fyrrverandi eig- andi DV, og fjölskylda hans byggt upp húsakost og aðstöðu á Leimbakka en Sveinn seldi íslenskum aðalverktök- um staðinn fyrir nokkrum mánuðum á 180 milljónir. Verktakamir hafa því hagnast verulega á skömmum tíma eftir viðskiptin við Anders Hansen sem sjálfur seldi hrossabú sitt á Ár- bakka fyrir nolckru á 110 milljónir. Anders þögull „Ég hef ekki áhuga á að tala um þetta," segir Anders Hansen inntur eftir þessum milljónaviðskiptum en samkvæmt öðrum heimildum hyggst Anders byggja upp menningartengda ferðaþjónustu á Leimbakka en staðn- um fylgir ferðasetrið Helduhof þar sem Hekla er kynnt ferðamönnum á margvíslegan Dýrasta jörðin „Þetta er líklega dýrasta jörð á ís- landi eftir þessi viðskipti. Allavega hef ég ekki heyrt af neinni dýrari," segir Sveinn Eyjólfsson, sem sér ekkert eftir Leimbakka þó svo hann hafi fengið minna fyrir staðinn en íslenskir aðal- verktakar sem keyptu hann af honum fyrir stuttu. „Þetta em bara eignir sem maður tengist ekki tilfinningabönd- um. Það sem máli skiptir er að fá sæmilegt verð fyrir þær,“ segir Sveinn. Brokkgengur ferill Samkvæmt heimildum DV stað- greiddi Anders Hansen Leimbakka og hefur því augljóslega í einhverja sjóði að sækja. Á hrossaræktarbúi sínu á Árbakka ræktaði Anders svokallað Svaðastaðakyn en Árbakki varð illa úti í jarðskjálftunum á Suðurlandi fyrir tæpum fimm árum. Fékk Anders þá einhverjar bætur en aldrei þær 210 milljónir sem hann greiddi fyrir Leimbakka. Anders var á yngri árum blaðamaður á Morgun- blaðinu og skrifaði ásamt Hreini Loftssyni hæsta- réúarlögmanni bókina Valdatafl í Valhöll sem fjallar um átök Gunnars Thoroddsen og Geirs Hallgrímssonar í Sjálfstæð- isflokknum. Anders var einnig virkur í starfi ungra sjálfstæðismanna en sneri sér að viðskiptum, stofnaði sjopp- xma Staldrið f Breiðholti, tíma- ritið Mannlíf auk annars en lenti snemma í fjárhagsörðugleikum sem hann hefur verið að vinna sig út úr síðan. Miðað við þessi fast- eignakaup virðist það hafa heppnast. Anders Hansen Reiðir fram stórfé með aðstoð huldumanns frá Þýska- landi. „Þetta er líklega dýrasta jörð á íslandi eftir þessi viðskipti. Allavega hefég ekki heyrt afneinni dýrari.1 Ég vildi að ég væri Selma Einn af löstum annars ágætrar persónu Svarthöfða er öfundsýkin. Honum tekst alla jafna að halda henni niðri en stundum blossar hún upp. Það gerði hún þegar Svarthöfði frétti að Selma Bjömsdóttir, Eurovision-stjama okkar íslendinga, hefði skellt sér í Brimborg og keypt nýjan Ford-jeppling, svona rétt til að ná sér niður áður en haldið var í ferðalagið langa til Úkraínu. Svart- höfði hefur löngum litið þennan jeppling hým auga en aldrei verið ná- lægt því að hafa efni á að kaupa bif- reið á borð við þá sem Selma festi kaup á. Það er ekld laust við að hugur Svarthöfði Svarthöfða hafi reikað að frétt sem birtist fyrir nokkrum dögum þess efn- is að Landsbankinn hefði ákveðið að styrkja Selmu til að hún gæti einbeitt sér að fullu að undirbúningi fyrir Eurovision. Svarthöfði, þessi skepna sem hann er, hugsaði með sér að þetta væri nú ekki flókið. Selma hefði auðvitað labbað beint upp í Brimborg með peninga frá Landsbankanum, skipt út hinum þreyúa sjö ára gamla Daihatsu og farið út á nýjum jeppling. Hvernig hefur þú það? „Ég hef það alveg prýðilegt," segir Þrúður Vilhjálmsdóttir, leikkona og flugfreyja. „Ég er á leiðinni til Boston á eftir og hlakka bara til. Ég stoppa stutt þar, og verð komin fyrir helgi. Annars er ég mest að hugsa um atriði sem ég tek þátt íá opnun Listahátlð- ar á iaugardaginn. Það heitir Óðurinn til kindarinnar og er svona hreyfílistaverk. Ég er viss um að það verður gaman." Það er kannski algjör tilviljun að hún skuli hafa keypt sér nýjan bíl á þess- um tímapunkti. Selma er harðdugleg kona sem hefur leikið, sungið og dansað af miklum móð undanfarin ár. Svarthöfði öfundar hana hins veg- ar af nýja bílnum. Hann vildi vera Selma, síkát og syngjandi á nýjum bfl, burtséð hvort harm sé í boði Lands- bankans eða ekki. Svarthöfði vonar bara að það verði undankeppni fyrir Eurovision á næsta ári. Þá ætlar hann að vera með, verða fulltrúi íslensku þjóðarinnar og fá styrk frá Lands- bankanum. Kannski fær hann þá líka nýja bilinn sem hann hefur alltaf dreymt um. Svaithöföi

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.