Dagblaðið Vísir - DV - 12.05.2005, Síða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 12.05.2005, Síða 6
6 FIMMTUDAGUR 12. MAÍ2005 Fréttir DV Eiður Smári og Björn Ingi „Hér halda allir með Chelsea og Eiður Smári Guðjohnsen er aðal- hetjan,“ segir Björn Ingi Hrafnsson, að- stoðarmaður utan- ríkisráðherra, Björn er nú í Kalangala- héraði í Afríku. Á heimasíðu sinni segir Björn Ingi íslendinga hafa átt mikið samstarf við heimamenn þar sem þekki þjóð okkar sundur og sam- an. Þar séu menn ekki í vafa hvaða knattspyrnu- maður stendur fremst í dag. „íslendingurinn er bestur, segja eyjaskeggjar stoltir og ekki fer á milli mál að þeir telja sig eiga eitthvað í ljóshærða snill- ingnum í treyju númer 22." Langþráðar endurbætur Á dögunum undirritaði heilbrigðisráðherra samn- ing um endurbætur á þriðju hæð Heilsugæslu- stöðvarinnar á Ak- ureyri. Ellefu ár eru síðan ríkið keypti húsnæðið. Þá strax voru gerðar kröfur um end- urbætur á öllu húsinu. Með endurbótunum sér loks fyr- ir endann á marga ára ferh og verður stöðin þá loks orðin eins og ætlast var til við kaupin 1994. Hæðinni verður lokað á meðan end- urbótunum stendur og mun starfsfólk dreifa sér á aðrar hæðir á meðan. Besti rœðumaðurinn Sigmar Guðmundsson sjónvarpsmaður. „SteingrímurJ. Sigfússon er án alls vafa langmælskastur, mest sannfærandi og meö líf- legasta stílinn,þótthonum hætti til að vera æstari en til- efnið leyfir. Hann var hins veg- ar glataður þegar hann missti sig út í tal um gungur og druslur. Davíð Oddsson getur verið hrikalega fyndinn,jafn- vel meinlega fyndinn og dreg- ur stundum andstæðinga sína sundur og saman I háði sem oft er stórskemmtilegt." Hann segir / Hún segir „Ég hrífst mest að ræðu- mönnum sem tala frá hjart- anu.Hafsteinn Þór Hauksson, formaður SUS, er til dæmis ræðumaður sem trúir á það sem hann segir, talar alltafaf mikilli sannfæringu og það smitar út frá sér. Magnús Norðdal, sem valinn var ræðumaður Cicero-keppnin- ar hér í Háskólanum fyrir skömmu, hrifur Itka fólk með sér þegar hann er I ræðustól. “ •r- Þingflokkur Frjálslynda flokksins er í uppnámi eftir að sá kvittur komst upp að Gunnar Örlygsson alþingismaður væri að yfirgefa flokkinn. Magnús Þór Haf- steinsson, varaformaður flokksins er furðu lostinn og Sigurjón Þórðarson segir Gunnar vera að bregðast kjósendum sínum. bregst kjosendum smum ,Með því er Gunnar ekki að bregðast fíokknum heldur kjósendum sínum því helsta baráttumál okkar er breyt- ing á kvótakerfinu sem Sjálfstæðis- flokkurinn ver með öllum ráðum." „Þetta eru svik við kjósendur flokksins," segir Sigurjón Þórðarson, þingmaður Frjálslynda flokksins. Gunnar örlygsson hefur gengið úr flokknum og mun hafa sótt um inngöngu í Sjálfstæðisflokkinn. Sigurjón Þórðarson, segir það sorglegt ef Gunnar Örlygsson sé að hverfa í Sjálfstæðisflokkinn. „Með því er Gunnar ekki að bregðast flokknum heldur kjósend- um sínum því helsta baráttumál okkar er breyting á kvótakerfinu sem Sjálfstæðisflokkurinn ver með öllum ráðum,“ segir Sigurjón. Týndur í tvo daga Ástæður brotthvarfs Gunnars eru enn á huldu. Allt bendir til þess að óánægja með samstarfsfólk og ósig- ur í varaformannskosningum spili inn í og hitt að hann vill færa flokk- inn lengra til hægri en hann nú er. „Mér er sagt að Gunnar sé búinn að segja sig úr Frjálslynda flokknum þó að hann hafl ekki sent okkur neitt um það enn,“ segir Magnús Þór Haf- steinsson sem sigraði Gunnar í vara- formannskosningum á landsfundi Frjálslynda flokksins á Kaffl Reykja- vík fyrir nokkru. „Við höfum ekki séð Gunnar hér á Alþingi í tvo daga og ekki heyrt frá honum. Ég veit að hann hefur ekki boðað fjarvistir þannig að ég veit ekki hvað ég á að halda," segir Magnús Þór. Vildi til hægri Margrét Sverrisdóttir, fram- kvæmdastjóri Frjálslynda flokksins, tekur í svipaðan streng þó að hún geti ekki staðfest úrsögn Gunnars Örlygssonar úr flokknum þar sem ekkert erindi þess efnis hafi borist frá honum: „En það er einhver kvittur í gangi um þetta. Ég veit ekki hvað veldur nema hvað að ég ímynda mér að hann hafi viljað fara lengra til hægri en við hin,“ segir Margrét Sverris- dóttir. Magnús Þór Hafsteinsson, vara- formaður flokksins, kannast heldur ekki við neina misklíð á milli sín og Gunnars Örlygssonar enda lýsti sá síðarnefndi þvíyfir að engin eftirmál yrðu þótt hann hafi tapað varafor- mannsslagnum: „Okkur hefur aldrei lent saman eftir þetta og ég veit ekki um neitt einstakt atvik sem getur útskýrt brotthvarf hans nú. Við Gunnar höf- um unnið ágætlega saman þó svo við höfum ekki verið neinir sérstakir vinir," segir Magnús Þór. Týndur? Ekki náðist í Gunnar Örlygsson í gær og engu líkara en jörðin hefði gleypt hann. Gunnar vakti mikla at- hygli þegar hann náði kjöri á þing fýrir Frjálslynda flokkinn í síðustu kosningum og þá ekki síst vegna þess að hann hóf þingmanns- feril sinn með því að sitja af sér ölvun- arakstur í fangelsi fyrstur þing- manna. Gunnar Örlygsson Fjarverandi af Alþingi í tvo daga. Félagi hans segir Gunnar bregðast kjósendum með þviað yfirgefa flokkinn. i j Meindýraeyðir kallaður að Fellaskóla Loðnar pöddur hræddu nemendur María Rún Bjarnadóttir laganemi. „Þetta voru pínulitlar og loðnar pöddur, alveg viðbjóðslegar" sagði Sverrir Örn Sverrisson, nemandi í Fellaskóla. Sverrir var í matreiðslu- tíma þegar torkennileg skordýr fundust í skólastofunni. Meindýraeyðir • var kallaður út k þegar skordýr- ■ anna varð vart W í Fellaskóla í I Breiðholti. DV jr var á staðnum en var meinaður aðgangur að skólastofunni. Þorsteinn Hjartarson Þorsteinn Hjartarson Skólastjórinn vildi ekki láta Ijósmynda matreiðslustofuna. skólastjóri bauðst hins vegar til þess að leyfa myndatöku í öðru eldhúsi í skólanum, alls ótengdu málinu. Að sögn skólastjórans var ekki um fár að ræða. Hann staðfesti að pöddur hefðu fundist og að beðið væri eftir meindýraeyði til að sjá til þess að pöddurnar færu. Ekki er ljóst um hvernig skordýr er að ræða. Sverrir örn og samnemendur hans sögðust hafa orðið skelkuð þegar þau sáu þessi dýr. í fyrstu hafi átt að halda áfram kennslu, en hún var fljótlega felld niður. Idolstjarna mótmælir Ungir jafliaðarmenn í Reykja- vík efndu til mótmæla fyrir fram- an Alþingishúsið í gær. Þeir eru óánægðir með að frumvarp um afnám fyrningarffests í kynferð- isafbrotum gegn börnum var ekki tekið fyrir á þinginu. Guð- rún Bima Ingimundardóttir, stjórnarmaður í ungra jafri- aðarmanna, skipulagði mót- mælin. Hún vakti mikla athygli með þátttöku sinni í Idol- stjörnuleit í vetur en hefur nú snúið sér að pólitík. Guðrún sagðist ánægð með mótmælin í gær, þetta væri afar mikilvægt mál.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.