Dagblaðið Vísir - DV - 12.05.2005, Qupperneq 27
DV Sport
FIMMTUDAGUR 12. MAÍ2005 27
Tvö landslið
til Færeyja
Tvö handboltalandslið, A-
landslið karla skipað leikmönnum
úr íslensku
deildinni og 20 ^ .
áralandslið
kvenna, eruá ,
leiðinni til Færeyja JS f
þar sem þau munu
spila á næstunni tvo
vináttulandsleiki við lið
heimamanna. Viggó
Sigurðsson hefur §
tilkynnt A- /
landsliðshópinn
enhannlítur / ■
einnig á þessa >:
leiki sem undir-
búning íyrir 21 árs landsliðið sem )f,
er að fara í úrslitakeppni í Ung-
verjalandi. Sexleikmenn 21 árs
landsliðsins eru í hópnum og þrír
af þeim munu spila sína fyrstu A-
landsleiki í ferðinni, Andri Stefan,
Árni Björn Þórarinsson og Kári
Kirstjánsson. Hópur Viggós lítur
annars þannig út. Markverðir:
Birkir ívar Guðmundsson úr
Haukum, Björgvin Gústavsson úr
HK og Roland Eradze úr ÍBV.
Aðrir leikmenn: Þórir Ólafsson,
Andri Stefan, Ásgeir Örn
Hallgrímsson og Vignir
Svavarsson úr Haukum, Bjami
Fritzson og Ingimundur
Ingimundarson úr ÍR, Baldvin
Þorsteinsson, Heimir Örn
Árnason og Vilhjálmur Halldórs-
son úr Val aukÁrna Sigtryggs-
sonar úr Þór Ak., Árna Björns
Þórarinssoonar úr Víking og
Kára Kristjánssonar úr ÍBV.
Fimm stelpur
á heimavelli
Á föstudaginn hefst í
Digranesí riðill í forkeppni
Evrópukeppni 17 ára landsliða
kvenna þar sem Rússland,
Litháen og Búlgaría keppa um tvö
laus sæti í úrslitakeppnina við
íslenska stúlknalandsliðið.
Úrslitakeppnin fer síðan fram í
Austurríki í ágúst. Karl Erlingsson
og Magnús Jónsson eru þjálfarar
hðsins hafa vahð 17 manna hóp
og koma flestar stelpur úr HK eða
fimm. Þessar stelpur,
markvörðurinn Olöf Kolbrún
Ragnarsdóttir og útileikmennirnir
Arna Sif Pálsdóttir, Auður
Jónsdóttir, Brynja Magnúsdóttir
og Rut Jónsdóttir spila því á
heimavelli í þessu móti. Aðrir
leikmenn í hópnum eru
Gróttustelpumar Guðrún Ósk
Maríasdóttir, Agnes Ámadóttir,
Karóh'na Gunnarsdóttir og
Þórunn Friðriksdóttir,
Framararnir Hildigunnur
Einarsdótúr, Sara Sigurðardóttir
og Stella Sigurðardótir, ÍR-
ingarnir Rebekka Skúladóttir og
Þórey Sigurðardóttir auk Sunnu
Jónsdóttir úr Fylki, Ester
Óskardóttur úr ÍBV og Kristínu
Köm Collins úr Holstebro.
Lebron rak
umbann sinn
LeBron James, leikmaður
Cleveland Cavaliers í NBA-körfu-
boltanum, hefur shtið samstarfi
sínu við umboðsmanninn Aaron
Goodwin eftir tæplega þriggja ára
samstarf. Þetta sætti furðu
íþróttaspekinga enda hefur Good-
win landað hvetjum auglýs-
ingasamningnum á fætur
öðrum fyrir James á síð-
ustu tveimur árum.
Þar ber einna hæst 90
miUjón doUara skó-
u samningur við Nike
áður en James lék
sinn fyrsta leik í
NBAenauglýs-
ingatekjumar
sem Goodwin útvegaði
James nema um 135
miUjón doUara eða
tæplega 9 miUjörðum
íslenskra króna.
Landsliðsmaðurinn Ólafur Víðir Ólafsson mun ekki leika með HK á næstu leiktíð
enda er stjórn handknattleiksdeildar HK búin að segja upp samningnum við hann.
Formaður handknattleiksdeildarinnar segir Ólaf hafa verið erfiðan í samstarfi.
Spilan ekki fótbolta
é launum hjé ok'
Það kom flatt upp á Ólaf Víði að stjóm handknattleiksdeildar-
innar skyldi segja upp samningnum við hann enda er í raun ver-
ið að reka hann frá félaginu. Ólafur Víðir segist hafa viljað vera
áfram hjá félaginu sem hann er alinn upp hjá en hann hafði ekk-
ert val um það. Stjórn og þjálfari HK var ekki ánægt með
framkomu hans og taldi því best fyrir alla aðila að hann myndi
spila handbolta með öðm félagi næsta vetur.
„Þessi ákvörðun kemur út af upp-
söfnuðum samstarfsörðugleikum. Við
teljum að það sé best fyrir alla aðila að
Ólafur Víðir leiki með öðm félagi en
okkur næsta vetur," sagði Hilmar Sig-
urgíslason, formaður handknattleiks-
deildar HK, en hann er langt frá því að
vera sáttur við hvemig Ólafur Víðir hef-
ur hagað sér undanfarið en Ólafur
ákvað að byrja að leika knattspymu
með meistaraflokki HK í óþökk hand-
knattleiksdeildarinnar.
Menn fá greitt í dag
„Menn fá auðvitað borgað fýrir að
leika handbolta í dag. Hann er í vinnu
hjá okkur, hættir að æfa nánast um leið
og tfmabilinu lýkur og það næsta sem
maður fréttir er að hann sé farinn að
leika fótbolta á launum hjá okkur.
Hann sá ekkert að því að spila fótbolta
en við emm ekki ánægðir með það
enda greiðum við honum laun og höf-
um engan áhuga á því að fá hann
meiddan til okkar eftir sumarið. Þetta
er ekki eina ástæðan enda uppsafnað
eins og ég sagði en þetta er hluti af
ástæðunni," sagði Hilmar.
Ólafur Víðir er byrjaður að spila
með fótboltaliði HK á fullu en hann
skoraði seinna mark félagsins í 2-0 sigri
á Fram á þriðjudag. Hann var ánægður
með markið þegar DV Sport ræddi við
hann í gær en ekki eins kátur með að
hafa verið rekinn ff á félaginu.
.Auðvitað er ég hundfúll með þess-
að niðurstöðu enda búinn að vera hjá
félaginu í 18 ár og ólst nánast upp í
Digranesi," sagði Ólafur
Víðir sem áttar sig illa á
því hvað stjómin
meini með að hann
hafi verið erfiður í
samstarfi. „Ég tel að
samstarf okkar hafi
alla tíð verið mjög
gott. Ég sagði skoðun
mína á ákveðnum hlutum fyrr í vetur
en ég veit ekki til að menn hafi verið að
erfa það eitthvað."
Ólafur Víðir segir að samstarf hans
og þjálfarans, Migliusar Astrauskas,
hafi verið gott og að hann hafi verið
ánægður með hans störf. Þess vegna
kemur það honum á óvart að Miglius
skuli láta hann fara.
Furðuleg ákvörðun
„Þjálfarinn óskar eftir því að ég sé
leystur undan sammngi. Ástæðan er sú
Ósáttir Miglius Astrauskas, þjálfari HK, (til vinstri) vill ekki
hafa ÓlafVíöi Óiafsson áfram f liði sinu og létþví stjórnina
segja upp samningnum við hann. Ólafur Vfðir er ekki sáttur
við stjórnina enda vildi hann ieika áfram með félaginu sem
hann hefur alist upp hjá.
að hann telur að ég sé búimr að gera allt
sem ég get fyrir félagið eða þurfi á
breytingu að halda. Hann er örugglega
að hugsa um hag félagsins en mér
finnst þetta furðulegt enda var ég að
leika vel og vann mér til að mynda sæti
í landsliðinu í vetur. Það sem stendur
upp úr er að þjálfarinn vill ekki hafa
mig áfram og við því er lítið að gera,“
sagði Ólafúr Víðir Ölafsson sem er ekki
búinn að ákveða hvar hann leikur á
næstu leiktíð.
henry@dv.is
Kristinn klár
en Sigurður Ari
enn undirfeldi
Handknattleiksmennimir Krist-
inn Björgúlfsson úr Gróttu/KR og
Sigurður Ari Stefánsson úr ÍBV em
þessa dagana undir smásjánni hjá
norska úrvalsdeildarfélaginu Elver-
um. Kristni hefur þegar verið boðið
til Noregs í lok mánaðarins, þar sem
hann mun dvelja í nokkra daga til að
skoða aðstæður hjá félaginu. Elver-
um leikur nú í efstu deild í Noregi á
ný eftir nokkur mögur ár og leitast
við að styrkja lið sitt.
DVSport náði tali af Kristni og
kannaði stöðu mála. „Ég reikna fastlega
með því að ég gangi til liðs við félagið.
Mér er sagt að þetta sé skemmtilegur
klúbbur og góð stemning yfir þessu hjá
þeim. Mér skilst að þessi bær sé ekld
ósvipaður Akureyri að nokkm leyti og
það em víst alltaf þéttir þúsund manns
á leikjum hjá liðinu, þannig að mér líst
bara ágætlega á þetta. Ég hef séð
myndband af einum leik með liðinu og
ég gat ekki séð annað en að þetta liti
bara vel út,” sagði Kristinn.
Spenntur
Sigurður Ari Stefánsson hjá ÍBV
er á kafi í prófum um þessar mundir
og hann staðfesti við DV Sport að
hann væri með tilboð á borðinu ffá
norska liðinu og hygðist jafnvel fara
út til Noregs eftir að prófum lyki til
að skoða aðstæður. „Ég er í daglegu
sambandi við umboðsmann minn,
sem er að þreifa fýrir sér í _
Evrópu. Hann er í sam-
bandi við
nokkur(
félög
°g
með spólu frá mér. ]
Ég mun vera op-'
inn fyrir
öllu þegar < _____„
ég er búinn
í prófun-
um,“ sagði
Sigurður,
baldur@dv.is
NVONGOOSE
—Blvöru fjallahjól
Sumartilboð
\e6>°
keðjuhlíf, standari og
bjalla fylgir með
Frábært tilbod á Mongoose barna og
krakkahjólum. Mikid úrval af hjálmum
verð frá 2.990
%\3?°
| ilwti|iMl| nrllrúr ajgr)jngjggri [7 |j»
»7»
'Verð áður
14.90°_ álmartn (óltjeiisur og tianJhrEmsm
verð nú
11.900
hjálpardekk, keðjuhlíf, standari
og bjalla fylgir með WWW gap is
fardu Inn 6 gap.ia og akoöaðu
tllboðln...
Á leið til Noregs?
SigurðurAri Stefánsson
sló i gegn með ÍBV f
vetur og vakti áhuga
erlendra liða á sér.
---------------ion—
FJALLAHJOLABUÐiN FAXAFENI 7
S: 5200 200 MÁN - FÖS. KL. 9-18. LAU. KL. 10-16 WWW.gap.ÍS