Dagblaðið Vísir - DV - 18.06.2005, Síða 62
62 LAUGARDAGUR 18. JÚNÍ2005
Síðast en ekki síst DV
Rétta myndin
Skrautlegir gestir á sautjánda júnf.
DV-mynd Höröur Sveinsson.
íslenskir úlfaldar teknirtil gjaldþrotaskipta
íslenskir úlfaldar hafa verið
boðaðir til skiptafundar þann 7.
september næstkomandi. í Lögbirt-
ingablaðinu sem gefið var út á
þriðjudaginn greinir frá þvf, að með
úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur
frá 31. maí hafi íslenskir úlfaldar ehf.
verið teknir til gjaldþrotaskipta.
Frestur við gjaldþrotaskiptin er mið-
vikudaginn 7. september klukkan
10.45 og er skorað á alla þá, sem telja
til skulda eða annarra rétt-
'■iJtiiilJi inda á hendur búinu eða
eigna í umráði þess, að lýsa kröfum
sínum fyrir Rúnari S. Gíslasyni hdl.
innan tveggja mánaða frá fyTri birt-
ingu innköllunarinnar.
íslenskir úlfaldar sem stofnaðir
voru árið 2001 eru, samkvæmt
firmaskrá íslands, fyrirtæki sem
sérhæfir sig í hugbúnaðargerð og
ráðgjöf varðandi hugbúnað. Það
eru engin önnur tengsl fyrirtækis-
ins við eyði-
merkurdýrið
úlfalda önnur
en nafngiftin.
Úlfaldar eru
ekki komnir_____________________
til fslands.
Ekld náðist í skráðan eiganda fyrir-
tækisins vegna málsins og síma-
númerið hjá fslenskum úlföldum
er ótengt.
Erlendur úlfaldi
Islenskir bræður hans ífori
hugbúnaðarfyrirtækis haft
ið teknir til gjaldþrotaskipt
Hvað veist þú um
súrmjólk
1. Hvaða tvö fyrirtæki
framleiða súrmjólk?
2. Hvað eru margar teg-
undir af súrmjólk til?
3. Hvað er mikil fita í 100 g
af venjulegri súrmjólk?
4. Er til græn súrmjólk?
5. Hvað er búið að kljúfa
mikið af mjólkursykrinum í
léttsúrmjóik?
Svör neðst á síðunni
Hvað segir
mamma?
„Hann gerir
það sem
hann ætlar
sér. Það hef-
ur hann
alltafgert
segir Fann-
eySigurð-
ardóttir,
móðir
Bjarka Sig-
urðssonar,
sund-
kappaog
göngugarps. „Það
kom mér alls ekki á óvart þegarhann fór
að skara fram úr I sundinu. Hann er nefn-
inlega með þannig skap, keppniskap. Við
erum stolt afhonum og höfum alltaf
hvatt hann áfram í þvl sem hann tekursér
fyrir hendur. Ég efa það ekki að hann eigi
eftir að klára gönguna I kringum landið.
Ég býst við þvlað ég fylgi honum úr vör,
hitti hann á miðri leiö og taki á móti hon-
um. Svo verður bara að koma i Ijós hvaö
honum dettur íhug næst. Það er aldrei að
vita. En ég hefengar áhyggjuraf honum.'
Bjarkl Slgurðsson er 23 ára og
hreyfihamlaður. Hann leggur af stað
á mánudag I gönguhringinn I
krlngum landlð með félaga sfnum,
Guðbrandi Einarssyni, sem er nær
bllndur. Gönguna kalla þeir Haltur
leiðir bllndan. Bjarki á fjölda íslands-
meta I sundi og hefur tekið þátt I
Norðurlanda- og Evrópumótum og
ólympfuleikum.
Gott hjá Ólafí Páli Sigurðssyni að gefast
ekki upp þrátt fyrir harkalegar lögreglu-
aðgerðir, standa fastur á sannfæringu
sinni og ætla að halda áfram að mót-
mæla fyriraustan.
1. Það eru Mjólkursamsalan og Norðurmjólk. 2. Það eru
ellefu tegundir til. 3. Það eru 3,9 g af fitu í hverjum 100
g af venjulegrl súrmjólk. 4. Nei. 5. Það er búið að kljúfa
yfir 80% af mjólkursykrinum.
mmmvm
mwaymoN
mmmxuL
BMOQP/eOFTHE
TtQ&UR&m
fmeumtoMLM
mit&WKUskmi
éavmtom
HAWH
..mp
fWK
MFF!!!
Geir Jón Þórisson, yfirlögreglu-
þjónn í Reykjavík, er alltaf á staðn-
um þegar mótmæli fara fram þótt
sjaldan sjáist hann með mótmæla-
skilti í hönd. „Ég hugsa að ég hafi
verið viðstaddur um 95% af þessum
mótmælum síðan ég byrjaði árið
1992,“ segir yfirlögregluþjónninn og
bætir við að honum finnist dásam-
legt að standa úti í sólinni í blíðskap-
arveðri á mótmælum.
Geir Jón lét sig eldd vanta á
fimmtudaginn þegar gæsluvarð-
haldi yfir Paul Gill, sem skvetti skyri
á álfurstana á Nordica-hótelinu, var
mótmælt.
„Þetta er yfirleitt prútt fólk sem
fer eftir settum reglum og eftir því
sem samfélagið sættir sig við. Enda
tel ég að mótmælendur séu að vinna
fyrir einhvérn málstað en ekki að
skaða eða valda tjóni, en svoleiðis
mótmæli þekkjum við nú yfirleitt
ekki og þess vegna var okkur tölu-
vert brugðið yfir því sem gerðist á
hótelinu," segir Geir Jón um aðgerð-
ir Pauls Gill og félaga.
Við mótmælin fýrir framan dóms-
málaráðuneytið gerði Geir Jón sér far
um að taka í höndina á einum
þeklctasta mótmælanda íslands,
Elísabetu Jökulsdóttur. Spurður um
hvort það hafi verið lögregluþjónn-
inn Geir Jón eða persónan Geir Jón
sem hafi tekið í hönd hennar sagði
hann: „Það var bara hvorutveggja. Ég
hef gert mér far um að hitta þetta fólk
og tala við það og spyija hvað það séu
að plana og áætla með mótmælin.
Enda hafa mótmælendur oftast haft
samband við okkur að fyrra bragði og
sagt okkur frá fýrirætlunum sínum.
Þeir hafa jafnvel beðið okkur að
halda frá þeim einstaklingum sem
spifla fyrir mótmælum með háttalagi
sem þeir vilja ekki.“
irscrgun
Hitinn undanfarið hefur komið
flestum (opna skjöldu.
Slðdegis I dag er þó búist við .
rigningu á sunnanverðu í
landinu. Munu baendur trúlega J
þakka slnum sæla enda ergras
víða hálfbrunnið eftir
áburðargjöf og brakandi þurrk.
Regndropamir gætu
þó bjargaö
einhverju þótt
borgarbúar
kjósífrekar jj, • •
sólina. h G, .
Kaupmannahöfn 17 Krít/Chania 30 Alicante 30
Osló 23 Berlín 23 Rimini 31
Stokkhólmur 23 Frankfurt 28 New York 24
Helsinki 22 Las Palmas 35 San Francisco 20
London 26 Barcelona 27 Orlando/Flórída 34
Sólarupprás Sólarlag ( Árdegisfióð 02.52
í Reykjavík Reykjavík Siðdegisflóð 1531
0235 24.03