Freyr

Árgangur

Freyr - 15.05.1951, Blaðsíða 18

Freyr - 15.05.1951, Blaðsíða 18
174 FREYR 2. Vel ræstur mýrarjarðvegur er yfirleitt í minnstri þörf fyrir N-áburð, sendinn eða grunnur jarðvegur að öðru jöfnu í mestri N-þörf. 3. P-áburð skal bera á allt ræktað land, sem ekki fær búfjáráburð, a. m. k. við og við, en sízt er hans að öðru jöfnu þörf á gömlum túnum. Sandar og melar virðast oft fátækir af nýtanlegri fosforsýru. 4. Kalí verður að bera á með N-áburði til þess að tryggja uppskeru. Helzt má vænta kalískorts á framræstum mýrum, en sízt í steinefnaríkum jarðvegi. 5. Þar sem þvagáburður er eingöngu not- aður, er rétt að bera á fullan skammt af P-áburði (135 kg þrífosfat eða 30 kg súper- fosfat á ha). 6. Með fiskimjöli og hvers konar fiskiúr- gangi þarf að bera á kalí (160 kg klórs. kalí á ha). 7. Ljúka skal dreifingu tilbúins áburðar í byrjun gróanda. Óhætt er að blanda sam- an áburðartegundum, sé blöndunni dreift samdægurs. Kartöflur og aörar matjurtir: N-áburður: ammonsúlfatsaltpétur mun hæfilegastur fyrir kartöflur, en kalkamm- onsaltpétur fyrir aðrar matjurtir. Brenni- steinssúrt kalí skal nota sem kalíáburð til hvers konar matjurtaræktar. Áburður á 100 fermetra: • S 5* $ •iO K 3 -O •§ ^ 2 kg kg kg 1. Ammonsúlfat-saltp. 6 2.5 eða kalkammonsaltp. 7.5 3.0 2. Þrífosfat 4.5 2.5 2 eða superfosfat 10 5.5 4.5 3. Brennisteinssúrt kalí 4.5 2 1.5 Fyrir sandjörð eða ófrjóa móajörð mun rétt að auka nokkuð við ofangreindan á- burðarskammt, en draga úr N.skammtin- um á vel ræstum mýrarjarðvegi, eða á landi, sem orðið er mjög frjótt vegna ríkulegrar lífrænnar áburðargjafar síðustu árin. Þar sem eyða á arfa með tröllamjöli skal skammturinn af ammonsúlfatsaltpétri minnkaður um 1 y2—2 kg. — Ráðlegt er að bera um 15 kg af bóraxi á ha gulrófna- lands (150 g á 100 m2), og má t. d. blanda bóraxinu saman við kalíáburðinn. — Gefið arfanum aldrei tóm til að spretta. Eyði- leggið hin nýspíruðu fræ með því að raka yfir eða herfa garðinn áður en arfaplönt- urnar koma upp. Sé tröllamjöl notað gegn arfa má bera 2.5—3.5 kg á 100 m2, en mjög skal varast að nota óhóflega mikið af þessu efni. Áburðarsala rílcisins 1951. JÓNAS PÉTURSSON: Hvað skal gera, er kýrnar bera ? í maíhefti Freys, 10. tbl. 1950, er stutt greinarkorn með yfirskriftinni: „Brodd- mjólk handa ungviðum,“ og undirskriftin er: Sveitakona. Þar segir sv.o: „Oft virðist knýjandi þörf að mjólka þær — (þ. e. kýrn- ar) sökum þess að júgrin verða hörð af mjólk og stálmabólgu, og líka af ótta við júgurbólgu, sem getur orðið magnaðri, ef mjólkin stendur í júgrinu fyrir burð.“ Þessi setning vakti þegar athygli mína er ég las, og hefir dregist lengur en ég ætlaði, að gera við hana athugasemd, enda þótt ritstjóri Freys léti þá þegar fylgja allnákvæma greinargerð um eðli og hlutverk brodd- mjólkur. Ég tel hugsun þá, sem fram kemur í þess- ari tilfærðu setningu, byggða á allútbreidd- um og mjög háskalegum misskilningi. Er ég var við eftirlitsstörf nautgriparæktarfé- laganna í Eyjafirði, skömmu fyrir 1940, barst mér til eérna, frá þýzkum manni, dýralæknisfróðum, að þýzkar rannsóknir hefðu sýnt, að forðast skyldi að mjólka kýr

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.