Freyr

Årgang

Freyr - 15.05.1951, Side 22

Freyr - 15.05.1951, Side 22
Metkýr. Freyr hefir sagt frá kúnni Ljóraalind Jóns G. Guð- manns á Akureyri og það álit, að hún mundi vera metkýr þessa lands að fornu og nýju. Nú lítur út fyrir, að nvtt ársmet hafi verið sett af Gráskinnu á Galtalæk við Akureyri. Metár Ljómalindar var smjör- fita hennar 268,25 kg smjörfita en smjörfitumagn Gráskinnu var 277,87 kg árið sem leið. Gráskinna fæddist árið 1945. Á síðasta reikningsári var nyt henn- ar 4841 kg og fitumagnið 5,74%. Hún komst í 28 kg á dag og mjólkaði yfir 20 kg á dag í 10 vikur. Fitumagnið 5,74%. Takið eftir því bændur! Svona eiga kýr að vera! Mjólkurmagn 1950. Á árinu 1950 var mjólk innvegin á hinum ýmsu mjólkursamlögum, sem hér segir: Fitu- Mjólk magn kg % Mjólkurstöðin Reykjavík ........ 4.382.533 ? Mjólkurbú Flóamanna .............. 14.970.389 3,62 Mjólkursamlag Borgfirðinga ..... 4.579.253 3,62 Mjólkurstöð Kf. ísfirðinga ....... 445.036 ? Mjólkursamlag Húnvetninga ...... 1.712.712 3,35 Mjólkursamlag Skagfirðinga ..... 2.341.708 3,57 Mjólkursamlag KEA .............. 7.893.435 3,59 Mjólkursamlag K. Þ.............. 1.441.294 3,64 Mjólkurinnlegg bænda hafði vaxið á árinu á öllum stöðum nema í Húnavatnssýslu, miðað við árið á undan. Lang mest var aukningin, hlutfallslega, í 'Skagafirði. Fóðurflutningar loftleiðis. Um unddanfarin ár hefir sá háttur verið á hafður um flutninga í Öræfi, að meginmagn þeirra hefir fram farið loftleiðis. í harðindunum í vor hefir ver- ið tekin upp sú aðferð nokkrum sinnum, að flytja kraftfóður og hey með flugvélum á þá staði, sem þessum nauðsynjum varð ekki á komið á annan hátt. Var fóðrinu fleygt út úr vélunum. Flutningar þessir eru mjög dýrir þar eð vélarnar verða að fljúga tóm- ar heirn aftur, en hjálp er það í þeim vanda, sem að höndum hefir borið að undanförnu, þegar á eng- an hátt varð um landið komizt á vissum svæðum. Mjölkpropogandan heitir sænskt tímarit. í nr. 4 af timariti þessu í ár er frá því sagt hvernig Finnar byggi votheysturna sxna r hinum nyrstu byggðum landsins, þar sem frostin eru einatt um og yfir 40 stig tímum saman að vetrinum. Þeir byggja sívalninginn úr steini og svo hólk þar utan yfir úr timbri en 15 cm bil á milli steinveggja og tréklæðningar fylla þeir með sagi. Á yfirborði fóð- ursins í turninum hafa þeir um 50 cm þykkt lag af hálmi úti við veggina, en þynnra í miðju. Á þennan hátt verja þeir fóðrið gegn frosti í þeim feikna kuld- um, er þar rikja á vetri hverjum. Vinna við nautgripahirðingu. I Minnesota og Visconsin í U.S.A. er vinnan við venjuleg fjósstörf talin 150 tímar á kú og 30 tímar á ungdýr um árið. Að svipaðri niðurstöðu hafa Svíar komizt við rannsóknir um þessi efni. Norð- menn hafa nú framkvæmt hliðstæðar rannsóknir í 8 fjósum. Var vinnuþörfin mjög misjöfn 1 hinum ým- issu fjósum en 136 stundir á reiknaðan stórgrip að meðaltali á móti 125 stundum á reiknaðan stórgrip í hinum nefndu löndum. Fjöldi gripa í fjósum þeirra búa, sem rannsökuð voru, var 13 fæstir en 62 flestir. Þess er getið, að á minni búum muni útkoman nokkru lakari. Útgefendur: Búnaðarfélag íslands og Stéttarsamband bænda. — Útgáfunefnd: Einar Ólafsson, Pálmi Einarsson, Steingr. Steinþórsson. — Ritstjóri: Gisli Kristjánsson. — Ritstjórn, afgreiðsla og innheimta: Lækjarg. 14 B, Reykjavík. Pósth. 1023. Sími 1957. BÚNAÐARBLAÐ Prentsmiðjan Edda h.f. V.

x

Freyr

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.