Dagblaðið Vísir - DV - 20.09.2005, Síða 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 20. SEPTEMBER 2005
Fréttir DV
Regína L. Rist er 86 ára og liggur á 5 daga deild á Landakotsspítala. Regina dvaldi
heima um helgina og var flutt þangað í sjúkrabíl. Hún var leidd upp 40 tröppur að
íbúð sinni en það átti að bera hana upp tröppurnar vegna hjartveiki. Kristín ísfeld
dóttir Reginu dvaldi hjá móður sinni alla helgina.
mm
Mæðgurnar
Regína og Krist-
ín Reglna nautað-
stoðar dóttur sinn-
ar um helqina
Regína dvaldi í íbúð sinni um helgina í fýrsta skipti síðan hún
fékk hjartaáfaU í apríl og þurfti að leggjast á Landspítalann.
Helgin gekk að mestu vel en Regína getur varla verið ein og því
var Kristín dóttir hennar hjá henni. Regína býr á 3. hæð og komst
því ekkert út úr húsi um helgina. Hún var mjög fegin að komast
aftur á 5 daga deildina í dag.
Regína fékk aðstoð tveggja sjúkra-
liða sem studdu hana upp á þriðju
hæð í íbúð hennar í Árbænum síðast-
liðinn föstudag. Dóttir hennar leiddi
hana síðan niður tröppumar í dag.
Um næstu helgi mun sagan endur-
taka sig og alveg þangað til Regína fær
vistun á hjúkrunarheimili.
Átti að bera hana upp
Kristín segir að læknir fimm daga
deildar Landakotsspítala hafði mælt
með að Regína yrði borin upp stigana
vegna þess að hún er hjartveik.
„Mamma má ekki reyna svona á sig
og hún var mjög þreytt eftir að hafa
gengið upp 40 tröppur," segir Kristín
og bætir við að næsta föstudag verði
hún borin upp. „Ég var hjá mömmu
alia helgina og hún hringdi í mig þeg-
ar ég þurfti að bregða mér frá til að
fullvissa sig um að ég yrði hjá henni
um nóttina," segir Kristín.
Lá fyrir mest alla helgina
Regína lá fyrir mest alla helgina og
var á náttsloppnum. „Mamma ber sig
alitaf vel og það blekkir fólk, hún vill
vera dugleg en er í raun orðin gömul
og þreytt," segir Kristín.
í gærmorgun þurfti Kristín svo að
fara til vinnu og þá var Regína ein í
íbúðinni til hádegis. „Ég er kennari og
það hittist svo vel á að ég er búin að
kenna um hádegi á mánudögum og
föstudögum þ.e. ég á auðvelt með að
„Momma varþreytt
eftir að hafa þurft að
labba upp tröppurnar"
taka á móti mömmu og fara með
hana aftur á Landakotsspítala," segir
Kristín. Hún bætir við að þetta hljóti
að vera erfitt fyrir aðstandendur sem
vinna alian daginn.
Bíður eftir plássi
á hjúkrunarheimili
Kristín sér framtlð móður sinnar
fyrir sér á hjúkrunarheimilinu Skóg-
arbæ en þar er Regína að bfða eftir að
komast að. „Ég heimsæki mömmu á
hveijum degi,“ segir Kristín og bætir
við að þetta sé ekki spuming um að
losna við hana heldur að hún fái
þjónustu sem hentar hennar aldri og
veikindum. Kristín segir að móður
sinni þyki gaman að keyra og vonast
til að komast til Hveragerðis en þar
W-L.
>
Regfna var heima
um helgina Deild-
in sem hún er á er
lokuð um helgar.
kenndi Regína sund þegar hún var
ung.
Kristín segist vera þreytt eftir helg-
ina en samviska hennar segir henni
að móðir hennar geti ekki verið ein og
því sér hún fram á að vera bundin yfir
móður sinni um helgar þar til hún fær
pláss á Skógarbæ. „Það fer tfini í að
sinna mömmu en það bjargar því að
hún er geðgóð og þægileg og vill gera
gott úr öllu,“ segir Kristín.
hugrun@dv.is
Ráðherra
á Raufarhöfn
Þorgerður Katrín Gunn-
arsdóttir menntamálaráð-
herra var í gær og fyrradag í
heimsókn á Raufarhöfn í
boði sjálfstæðismanna á
Raufarhöfn. í fyrradag átti
hún fúnd með sjálfstæðis-
mönnum. Eftir hann bætt-
ust sveitar- og skólastjóri í
hópinn og snæddu þau
saman kvöldverð á Hótel
Norðurljósum. f gær skoð-
aði Þorgerður svo Grunn-
skólann á Raufarhöfh. í
honum eru rúmlega þijátíu
böm.
Á reynslu-
lausn
Erlendur S.
Baldursson, deild-
arstjóri hjá Fang-
elsismálastofriun,
segir rangt sem
DV greindi frá í
gær að Baldur
Freyr Einarsson
sem varð ungum
dreng að bana á Hafnar-
stræti vorið 2002, sé laus
eftir 3 ár á Lida Hrauni.
„Hið rétta er hins vegar að
þeir sem eru dæmdir fyrir
slík brot fá almennt
reynslulausn eftir að hafa
afplánað 2/3 hluta refsing-
arinnar. Sá tími er í þessu
tilviki í maí 2006,“ segir Er-
lendur. Baldur Freyr er nú á
áfangaheimili, auk þess
sem hann stundar nám í
lögfræði í Háskólanum.
Reyka-vodka
íRikiðl.okt
Byrjað verður að selja
Reyka-vodka í verslunum
ÁTVR 1. október næst-
komandi. Sala á
drykknum hefur farið
mjög vel af stað í Frí-
höfninni á Keflavíkur-
flugvelli og hafa
íslendingar tekiðþessum
nýja drykk afar vel.
Stuðningshópur skrifar umboðsmanni Alþingis bréf
Jónatan Magnússon
handboltakappi á Akureyri
„Llfið er alveg stórflnt á Akur-
eyri. Þaö gengur bara sinn
vanagang. Ég er ekki dómbær
á það hvort þaö er gott eöa
slæmt en þaö er alltafeins. Viö
Landsíminn
reynd-
ar alveg afsumrinu hérna á
Akureyri og það var fúlt fyrir
golfsjúlking eins og mig. Ég er
búinn aö finna vetrarúlpuna
þvl það er fariö aö kólna og ég
er farinn aö halda aö góöa
veörið á Akureyri sé bara þjóö-
saga/'sagöi Jónatan Magn-
ússon handboltakappi iKAá
Akureyri. „Við spilum fyrsta
leikinn í deildinni gegn erkifj-
endunum í Þór á miðvikudag-
inn og vonandi veröurgóð
stemning á þeim leik. Viö verð-
um að vinna til að gleöja öll
KA-hjörtun I bænum."
Fangar segja Guðmund ekki geðsjúkan
Hópur fanga á Lida-Hrauni hefur
ritað umboðsmanni Alþingis bréf þar
sem mótmælt er þeirri niðurstöðu
Héraðsdóms Reykjavíkur að dæma
Guðmund Þórarinsson ósakhæfan og
til vistunar í óákveðinn tíma á Sogni.
Guðmundur ofsótti og kýldi prófessor
sem hann sakaði um að hafa falsað
niðurstöðu faðemisprófs sem pró-
fessorinn framkvæmdi fyrir Guð-
mund.
í þá fjóra mánuði sem rannsókn
og meðferð málsins stóð yfir sat Guð-
mundur í gæsluvarðhaldi á Litía-
Hrauni. Fangar sem Guðmundur
umgekkst á þessum tíma hafa nú
stofnað stuðningshóp og rituðu þeir
fyrir skemmstu umboðsmanni Al-
þingis bréf vegna máls Guðmundar.
„Við sem höfum umgengist hann í
fjóra mánuði hér á Litía-Hrauni og
erum famir að þekkja manninn
sæmilega getum vottað að Guð-
mundur er ekki geðsjúkur," segir í
bréfi fangana til umboðsmannsins.
Þeir segja að fyrst dómstólar geti
dæmt mann eins og Guðmund Þórar-
insson á Sogn sé enginn óhultur hér á
landi.
Þrír geðlæknar bám fyrir dómi að
Guðmundur væri ósakhæfur. Sögðu
hann með hættulega þráhyggju gagn-
vart prófessomum sem ffamkvæmdi
fyrir hann faðemispróf fyrir nokkrum
árum.
Ekki náðist í umboðsmann Al-
þingis í gær til að spyrja út í viðbrögð
hans við bréfinu eða hvort hann
hyggist svara því.