Dagblaðið Vísir - DV - 20.09.2005, Qupperneq 17
DV Fréttir
ÞRIÐJUDAGUR 20. SEPTEMBER 2005 17
j
Jens Stoltenberg, leiðtogi
Arbeiderpartiet Verðurað
öllum likindum næsti forsæt-
isráðherra Norðmanna.
Fullir sjómenn eða
brennuvargar?
„Hjálpardekkið hefur nú orðið
stærra en reiðhjólið," sagði Stol-
tenberg við Bergens Tidende þegar
Fremskrittpartiet hafði farið fram
úr Höyre í skoðanakönnunum."
Við Dagbladet sagði hann: „Carl I.
Hagen mun hafa hreðjatak á hvaða
hægri ríkisstjóm sem er.“
Hagen hefur nefnilega aldrei
verið jafn leiðitamur við Höyre og
aðrir borgaraflokkar. Þeir komust
fyrst í oddaaðstöðu árið 1986, og
sprengdu þá möguleika á stjórnar-
samstarfl þegar þeir neituðu að
samþykkja hækkun á bensínverði.
Varaformaður Sosialistiske Ven-
stre, Öystein Djupedal, vakti at-
hygli í fjölmiðlum þegar hann
sagði Fremskrittspartiet hafa eytt
peningum í kosningabaráttunni
eins og fullur sjómaður. Sjómenn
um allt land urðu æfir og hringdu
Einvígi Stoltenbergs og Bondeviks
Hart barist í norskum stjórnmálum.
inn í sjónvarpsstöðina þar sem
ummælin höfðu komið fram, og
Djupedal dró þau til baka og sagði
í staðinn að það að sleppa Jensen
inn í ríkisfjárlög væri eins og að
hleypa brennuvargi inn í flugelda-
búð. Ekki fer sögum af því að
norskir brennuvargar hafi mót-
mælt þessum ummælum.
Flokkur sem fór lítið fyrir í kosn-
ingunum var Kystpartiet, sem
berst fyrir hagsmunum sjómanna.
Formaður hans Harald Kristoffer-
sen segist geta rakið sjómannsætt-
ir sínar aftur til 1649 og segir fram-
bjóðendur flokksins afla hafa unn-
ið heiðarlega vinnu um ævina. Um
20 manns mættu í kosningaveislu
flokksins þar sem boðið var upp á
hvalborgara.
Sjálfstæðismenn eða
f rjálsly ndir?
En hafa kosningarnar í Noregi
eitthvert fordæmi fyrir ísland?
Hvort sigur Stoltenbergs bendi til
sigurs Samfylkingarinnar árið 2007
skal ósagt látið. En hin mikla fylgis-
aukning Fremskrittspartiet er
áhugaverð. Sá flokkur sem gegnir
helst tilsvarandi hlutverki á Islandi
er Frjálslyndi flokkurinn. Sjálf-
stæðisflokknum tókst undir for-
ystu Davíðs Oddssonar að sameina
bæði íhaldsmenn af gamla skólan-
um og yngri frjálshyggjumenn. En
Einar Már Guðmundsson rithöfundur
Spurði norska rithöfundinn Lars Saaby
Christiansen hvort Norðmenn hefðu ekki
allir verið maóistar.
undanfarið hefur borið á ókyrrð
innan raða hans þar sem sumir
vilja ganga lengra með einkavæð-
inguna en aðrir vilja draga í land og
virðast æ hlynntari afskiptum rík-
isins.
Spurning er hvort flokknum
Jens Stoltenberg sigur-
reifur Stendur á sviði frammi
fyrir stuðningsmönnum sln-
um eftir kosningarnar.
takist undir nýrri forystu að sam-
ræma þessi tvö öfl, eða hvort
möguleiki sé á að hinir yngri kljúfi
sig út úr flokknum og gangi jafnvel
til liðs við Frjálslynda flokkinn. Því
er hugsanlegt að á næsta áratug
verði samsvarandi bylting innan
borgaraaflanna hér og orðið hefur í
Noregi.
Sony innkall-
ar millistykki
Sony hefur ákveðið að innkalla
millistykki sem fylgdu ákveðnum
PlayStation Slimline leikjatölvum
framleiddum á milli ágúst og des-
ember 2004 vegna möguleika á of-
hitnun og slysahættu í kjölfar þess.
Búið er að setja upp sérstakt síma-
númer fyrir viðskiptavini Sony, en
það er 591-5199. Samkvæmt upp-
lýsingum þaðan hefur ekki verið
mikið um hringingar og þeir sem
hafa hringt
hafa ek
verið í hópi'
viðskiptavina
sem innköllunin nær yfir. „Það er
mikilvægt að líta á dagsetningar-
kóða á millistykkinu en ekki fara
með stykkin á sölustaði," segir Egill
Sigurðsson hjá hjálparlínu Sony.
Eins er hægt að líta á heimasíðuna
www.ps2ac.com fyrir frekari upp-
lýsingar.
Stökk niður Hópur
fólks fylgdist með þegar
maðurinn mætti dauða
sínum. Hann varnýlega
greindur með alnæmi.
Kínverskur maður greip til örþrifaráða
Stökk niður 30 metra
fbúar í borginni Xi’an í Kína
horfðu skelkaðir á þegar maður
framdi sjálfsmorð síðasdiðinn
laugardag. Hann hafði nýlega verið
greindur með alnæmi og sagðist
ekki geta lifað með sjúkdómnum.
Maðurinn klifraði upp í 30 metra
háa rafmagnslínu og sat þar í dá-
góða stund. Hópur fólks safnaðist
saman í kring og lögregla og
slökkvilið reyndu að gera varúðar-
ráðstafanir. Það bjargaði mannin-
um hins vegar ekki. Hann stökk
niður og lést.
Árlega fremja um 287 þúsund
manns sjálfsmorð í Kína. Það er um
tíu sinnum meira en til dæmis í
Bandaríkjunum. Sérfræðingar segja
lélegri heilsugæslu og kreppu í Kína
um að kenna.