Dagblaðið Vísir - DV - 20.09.2005, Side 28
28 ÞRIÐJUDAGUR 20. SEPTEMBER 2005
Lífið DV
'Hjörtur Einarsson er fertugur í dag. Þaö sætir ekki miklum tíðindum nema fyrir
það að hann er i ótrúlega góðu formi miðað við jafnaldra sína. Hann fagnar þess-
um tímamótum og segist í betra formi en þegar hann var tvítugur á kafi í rugli.
Hjörtur Einarsson
Hjörtur er einkaþjálfari
og hefur leiðbeint þess-
um glæsilegu stúlkum.
DV-mynd E.ól.
■BK'
■llÍlÍÍÉteater
Svo segja þeir," segir Hjörtur Ein-
arsson starfsmaður World Class og
einkaþjálfari sem er fertugur í dag.
Stjörnuspá
Hjartar
Merkúr og Satúrnus eru áhrifastjörn-
ur Hjartar en hann er fæddur undir
stjörnu meyju sem sýnir að hann er
hörkuduglegur við að ná því sem
hann einsetur sér. Fyrir bragðið
sigrar hann þegar til lengri tíma er
litið. Alla ævi er hann líklegur til að
hugsa mikið um heilsuna og sinna
slnum nánustu til llkama og sálar.
Hann hefureflaust undanfarin ár
sótt mjög í heilsubúðir og er vel
upplýstur um fyrirbyggjandi aðferðir
þegar heilsan er annars vegar.
Hjörtur heldur æskunni alla ævi, er
heillandi, trygglyndur, áreiðanlegur
. og aðlaðandi. spamadur@dv.ls
Það þykir kannski ekki sæta
tíðindum að menn nái þessum aldri
en Hjörtur er hinsvegar í frábæru
formi miðað við marga jafnaldra
sína. „Ég er alveg í ágætu formi,"
segir Hjörtur af mikilli hógværð.
Bragðarefurinn
nauðsynlegur
Margir velta því eflaust fyrir sér
hver galdurinn sé að halda sér
svona. „Það er náttúrulega bara
heilbrigður lífsstíll. Það má segja að
það sé líkamsrækt og golf,“ segir
Hjörtur og bætir við að gott matar-
æði sé líka nauðsynlegt. „Það eru
aðalþættirnir. Þegar maður er í
góðu formi finnur maður minna
fyrir streitu og hvílist þar að auki
mun betur. Það er mikil aukning á
líkamsrækt hjá fólki því fólk er að
vinna svo mikið við tölvur í dag og
verður að hafa eitthvað til að við-
halda sér,“ segir Hjörtur.
Hjörtur segir að þrátt fyrir að
hann borði hollan mat eigi hann til
að bregða útaf vananum á laugar-
dögum. „Ef maður er að leggja inn í
líkamsræktinni getur maður leyft sér
meira í mataræði. Ég fæ mér ís og
góðan mat um helgar. Bragðarefur-
inn er alveg nauðsynlegur."
Færðu þér hamborgara?
„Ég fer stöku sinnum á „stælinn"
en sleppi frönskunum, fæ mér frek-
ar tvo ostborgara," segir Hjörtur.
Aldrei í betra formi
Hjörtur segir að hann hafi aldrei
verið betur á sig kominn. „Ég er
betur á mig kominn en þegar ég var
tvítugur. Ég er náttúrulega alki og
þegar ég var tvítugur var ég á kafi í
rugli," segir Hjörtur sem snéri við
blaðinu fyrir um 10 árum síðan. Oft
er það raunin með óvirka alkó-
hólista að þeir gerast öfgamenn og
hella sér út í einhver verkefni.
Hjörtur segir það ekki vera fjarri
lagi. „Þá er ágætt að finna sér heil-
brigða öfga. Með tímanum upplifir
maður lífið allt öðru vísi. Nú er það
bara lífsins víma,“ segir Hjörtur.
Frábært að vera fertugur
„Ég held að það sé frábært að
verða fertugur. Mér finnst eins og ég
sé tvítugur. Maður missti náttúru-
lega svo mikið úr þroska á sínum
tíma þegar maður var í rugli," segir
Hjörtur. „Ég trúi því varla sjálfur að
ég sé að verða fertugur. Ég veit ekki
hvernig fertugum mönnum á að
líða. Ég og einn vinur minn sem er
43 ára erum báðir eins og við séum
tvítugir. Við erum einhvern veginn
þannig þenkjandi. Við erum til í
hvað sem er og erum alltaf að skora
hvor á annan."
Erþetta ekki bara það sem kallast
grái íiðringurínn?"
„Þá hefur hann verið í tíu ár,“
segir Hjörtur kampakátur. Fertugur í
fantaformi.
soli@dv.is
Arnold ætlar aftur í framboð og Christopher Walken í forsetann
ólmur hugga
Renee
Jack White, aðalsprauta hljómveit-
arinnar The White Stripes og fyrr-
verandi unnusti leikkonunnar
Renee Zellweger, er nú í miklum
vandræðum í hjónabandi sínu.
Ástæðan er sú að núverandi eigin-
kona hans, Karen Elson, finnst
hann fuil vinalegur við Renee sem
er nú farin frá eiginmanni sínum.
Karen er víst afar hneyksluð á því
hve áhugasamur rokkarinn er um
að hugga Renee og dauðskelkuð
um að þetta verði til þess að
kynda undir gömlum glæðum
þeirra á milli. Þau Renee og Jack
voru saman í tvö ár en skildu
stuttu áður en ráðgert brúðkaup
þeirra átti að fara fram. Bæði giftu
þau sig stuttu eftir sambandsslitin
og spáðu margir því að hjónabönd
þeirra myndu standa stutt.
Skóla-
félagarnir
angra
Ron Weasley
Skólafélögum Rupert Grint, sem
varð frægur fyrir að leika Ron We-
asley í myndunum um Harry Pott-
er, hefur verið bannað að biðja
hann um eiginhandaráritanir.
Rupert sem nú er 17 ára gamall
segist vera dauðleiður á því að
geta ekki stundað nám sitt eins og
aðrir unglingar þar sem hann þurfi
sífellt að útbúa einhverja minja-
gripi fyrir samnemendur sína.
Hann leitaði því til skólayfirvalda
og mega þeir nemendur sem biðja
hann um eitthvað sem tengist
Harry Potter myndunum eiga von
á þvt að þurfa sitja eftir.
Kvikmyndastjörnur hyggjast
stjóma heiminum
Kjötijallið Amold Schwarzenegger
hefur gieint frá því að hann ætli aftur
að bjóða sig fram til ríkisstjóra á næsta
ári. Ráðgjafar Amolds vom mjög
hlynntir því að hann skyldi greina frá
því svona snemma en kosningamar
em ekki fyrr en í nóvember árið 2006.
„Ég ætla að fylgja þesssu eftir. Þrjú ár
em ekki nóg tiljress að klára það sem
ég ætlaði mér. Eg verð að vera í sjö ár,
svo já ég ætla að bjóða mig fram aftur,"
sagði Amold við hóp af stuðnings-
mönnum sfnum í San Diego á föstu-
dag. Scwarzenegger var gífurlega vin-
sæll fyrsta ár sitt í rikisstjórastólnum
en nú hafa vinsældir hans daiað. I ný-
Christopher Walken Byrjarsnemma
I kosningabaráttunni.
legri könnun kom fram að aðeins 36%
Kalífornfubúa eru tilbúnir að kjósa
Amold í annað sinn. Amold er ekki
eini leikarinn sem er að söðla um í
póiitíkinni heldur hefur leikarinn
Christopher Walken tilkynnt framboð
sitt til forseta Bandaríkjanna árið 2008.
Á heimasíðunni walken2008.com má
finna upplýsingar um leikarann og
stefnuskrá hans. Christopher segist
vera mikill stuðningsmaður hersins og
að hann myndi vilja hækka laun her-
manna, því það séu þeir sem standi
vörð um frelsi Bandaríkjamanna.
Christopher tekur þó ekki sama pól í
hæðina og núverandi forseti, George
Bush, varðandi fóstureyðingar en
hann segist trúa þvf að konur eigi að
geta valið um hvort þær vilji eignast
bam eða ekki. „Allar konur eiga að
hafa rétt á því að eignast bam þegar
Arnaldur Svartnaggur
Ætlar aftur
í ríkisstjórastólinn.
þær eru tilbúnar, stjómvöid hafa ekki
rétt til þess að neyða þær tii að eignast
barn," segir Christopher á síðunni.
Um hvort ætti að takmarka stofh-
frumurannsóknir segir Chris ekki vera
á því máli. „Ég hitti Christopher
Reeves margoft áður en hann dó. Eftir
að hafa hitt hann er erfitt að vera á
móti slíkum rannsóknum. Ég er
hlynntur því að maðurinn auki stöðugt
við þekkingu sína. Ef stofnffumurann-
sóknir em í þágu mannkynsins þá get
ég ekki stutt fmmvarp sem takmarkar
þær,“ segir Christopher ennfremur.
Það verður skemmtilegt að sjá hvort
leikurnum takist að Sigra heiminn.