Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.2005, Page 4

Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.2005, Page 4
4 MÁNUDAGUR 10. OKTÓBER 2005 Fréttír 0V Alþingismaðurinn Árni Ragnar Árnason lést í ágúst í fyrra eftir langa baráttu við krabbamein í ristli. Áður en hann lést barðist Árni fyrir því að skipulögð leit væri gerð að krabbameini í ristli líkt og gert er að brjóstakrabbameini og leghálskrabba- meini. Drífa Hjartardóttir hefur tekið upp mál látins félaga síns. Kristinn gagnrýnir ráðningar Kristinn H. Gunnarsson, alþingismaður Framsóknar- flokksins, gagnrýnir manna- ráðningar hins opinbera harkalega í pistli á heima- síðu sinni kristinn.is. Á síð- unni tekur hann Þorstein Pálsson og Pál Magnússon sem dæmi og segir meðal annars: „Helsta einkennið er að vikið er frá eðlilegum mælikvörðum við mat á hæfni til starfans, svo sem menntun og reynslu, og ráðningin verður illskiljan- leg nema með því að beita kenningum um vinarbragð eða pólitíska samstöðu.“ Sendi samúð- arkveðjur Ólafur Ragn- ar Grímsson, forseti íslands, sendi í gær for- setum Pakist- ans, Indlands og Afganistans einlægar sam- úðarkveðjur sínar og ís- lensku þjóðar- innar vegna jarðskjálftanna sem leiddu til dauða tugþúsunda manna í löndunum. í til- kynningu frá skrifstofu for- seta segir: „í samúðarkveðj- unum víkur förseti íslands að reynslu íslendinga af náttúruhamförum á sviði jarðskjálfta og eldgosa. Sú reynsla hafi skapað sterka samkennd í hugum íslend- inga og stuðlað að þróun hjálparstarfs, bæði nýrrar tækni og þjálfunar björgun- arfólks." Vinir einkabílsins „Við viljum nýta betur stofnbrautir og setja hreyfiskynjara á fleiri ljós svo eitthvað sé neftit," segir Eggert Páll Ólason en í gær stóð hann fyrir stofnun samtakanna Vinir einka- bílsins. „Tafir í umferðinni kosta hvern ökumann í Reykjavík fimm til tíu vinnudaga á ári," segir liann og bætir við að um- ræðan um einkabflinn sé mjög á neikvæðum nótum þrátt fyrir að hann sé eitt vinsælasta farartæki al- mennings. „Það var ágætis mæting og fólk tók vel í boðskap fundarins," bætir Eggert svo við um hvernig fundurinn hafi farið. Frumvarp til minningar um latinn félaga „Þetta var það sem Árni var búinn að berjast fyrir og lagði mikla vinnu í,“ segir Guðlaug Pálína Eiríksdóttir, ekkja Árna Ragnars Árnasonar alþingismanns sem lést 16. ágúst í fyrra eftir langa baráttu við ristilkrabbamein. Drífa Hjartardóttir alþingiskona hefur lagt fram á þingi baráttumál Árna um að skipulögð leit verði gerð að krabbameini í ristli. „Það má segja að þetta frum- varp sé lagt fram til minningar um látinn félaga minn Árna Ragnar Árnason," segir Drífa Hjartardóttir alþingiskona um Iagafrumvarp sem hún lagði fram ásamt fleirum á fyrsta degi þingsins. Frumvarp Drífu og félaga snýst um að tekin verði upp skipuleg leit að ristilkrabbameini. „Þetta er að mínu mati mikið og merkilegt mál,“ segir Drífa. Þverpólitískt „Hér á landi hefur skipulögð leit að leghálskrabbameini verið fram- kvæmd um 40 ára skeið og leit að brjóstakrabbameini hófst 1986. Krabbamein í ristli og endaþarmi er annað algengasta krabbameinið meðal íslendinga og önnur algeng- asta dánarorsökin af völdum krabbameina en fram til þessa hefur fræðsla og for- varnir gegn því ekki ver- ið for- gangs- verk- efni.“ Svo ’fj segir í fumvarpinu sem Drífa lagði „Ég vona að það nái fram að ganga á þing inu og því verði þá toks lokið sem Árni hóf. fram en hún býst við að málið verði tekið til umræðu fljótlega. Það er þverpólitískt því ásamt Drífu flytja málið þau Margrét Frímanns- dóttir, Ögmundur Jón- asson, Guðjón A. Krist- jánsson, Halldór Blön- dal, Rannveig Guð- mundsdóttir og Siv Frið- leifsdóttir. meini í ristli og hann hafi verið kominn langt með það á þinginu áður en hann féll frá. „Þetta er ákaflega mikilvægt forvarnamál. Ég vona að það nái fram að ganga á þinginu og því verði þá loks lokið sem Árni hóf,“ segir Guðlaug Pálína. andri@dv.is Guðlaug Pálína Eiríksdóttir Ekkja Árna Ragnars. Mikilvægt forvarna- mál Guðlaug Pálína Ei- ríksdóttir, ekkja Árna Ragnars sem lést eftir langvinna og harðvítuga baráttu við krabba- meinið, fagnar því að mál- ið hafi verið tekið upp. Hún segir Árna hafi lengi barist fyrir því að skipu- lögð leit væri gerð að J krabba- M Drífa Hjartardóttir Lagði málið fram á fyrst degi þingsins. jPF;; ÁrniRagnar Árna son Lést í fyrra. Bryndís Schram líka Svarthöfði verður að segja að sjaldan eða aldrei hefur verið jafn gaman að horfa á sjónvarpið og nú. Þvflflct sem stöðvarnar keppast um hylli áhorfenda. Logi Bergmann tryllir áhorfendur Stöðvar 2 og þar á bæ ætla menn að bjóða upp á gaml- ar kempur á borð við Þorstein J. Það eru gleðitíðindi. Ríkissjónvarpið er ekki síðra. í fyrsta sinn í sögu Sjón- varpsins gerir útvarpsstjóri stofnun- arinnar gagn. Páll Magnússon les fréttirnar og er frábær í því hlutverki. í kvöld er svo boðið upp á skærar stjörnur af Stöð 2, þau Þórhall Gunnarsson og Jóhönnu Vilhjálms- Svarthöíði dóttur. Bæði alveg gegnheil og pott- þétt. Innlend dagskrárgerð hefur aldrei verið í meiri blóma. Spaug- stofan er meira að segja skemmtileg. Og Hemmi Gunn ágætur í Það var lagið. Idolið aldrei betra og Bachelor svo slæmur þáttur að hann er garg- andi snilld. Svona svipað og verstu verk Hraftis Gunnlaugssonar sem snúast upp í andstæðu sína og verða hrein skemmtun. Þetta virðist engan endi ætla að Hvernig hefur þú það? Ég hefþað alveg meiriháttar gott, ég á nefniiega svo auðvelt með að láta mér líða vel, “ egir Hermann Gunnarsson fjölmiðlamaður.„Ég tek ákvörðun um það á hverjum ein- Iasta morgni. Annars var ég að skemmta mér með 250 konum á Reyðarfirði um helgina. \Þær komu bara svona fínar útúr þokunni og dilluðu sér meðmér sem var alveg frá- \bært." taka. Stöðvarnar bæta sífellt við sig fólki, nýju og gömlu. Ingvi Hrafn er meira að segja á leið í sjónvarpið á nýrri fréttastöð Stöðvar 2. Þá verður gaman. Páll Magnússon gæti svarað því útspili með því að bjóða Bryndísi Schram - sem ku vera að flytja heim - að taka við Stundinni okkar sem hefur átt í tilvistarkreppu síðan drottningin hætti. Laddi er á lausu og gæti verið með henni. Þá yrði Svarthöfði glaður. Börnin mæta líka afgangi í þessu rosalega sjónvarpsgóðæri sem nú gengur yfir landið. En barnaefni að hætti drottningarinnar Bryndísar Schram er ekki bara fyrir börn. Svarthöföi

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.