Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.2005, Page 13

Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.2005, Page 13
TXV Fréttir MÁNUDAGUR 10. OKTÓBER2005 13 Safni bjargað afstígvéli Slökkviðlið Höfuðborgar- svæðisins var kallað út um tvöleytið í gærdag vegna reykjarlyktar sem fannst innandyra í Listasafni ís- lands við Frikirkjuveg. Lög- regla og slökkvilið voru send á staðinn til að kanna hvaða reykjarlyktin kæmi. Við at- hugun kom í ljós að kveikt hafði verið í rusli utandyra og var eldur slökktur þannig að slökkviliðsmaður traðk- aði ofan á honum í stígvéli. Slökkviliðið var kallað aftur út um kvöldmatarleytið í gær en þá hafði verið kveikt í bensínbrúsa í Faxafeni. Vilhjálmur ekki svekktur „Ég hefði viljað sjá meiri árangur afþessu en þetta er niðurstaða úr lýðræðislegri kosn- ingu og ég ber virðingu fyrir því,“ segir Vilhjálmur Þ. Viihjálmsson, for- maður Sambands íslenskra sveitarfé- laga og borgarfulltrúi Sjáff- stæðisflokksins um úrslit um sameiningartillögur sveitarstjómar. „Égvar svekktur árið 1993 þegar kosið var um sameiningar- tillögur en er það ekki núna," segir hann og á við að mun fleiri sameiningar- tillögur vom uppi á borðinu þá en aðeins einþeirra var samþykkt. Flaugyfir girðingu Lögreglan á Akureyri fékk tilkynningu um að bifreið hefði oftið í Víkurskarði um kvöldmatarleytið á laugar- dag. Bifreiðin valt nokkrar veltur og endaði 60 metra frá veginum. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Akureyri þótú mildi að ekki færi verr en bíllinn virð- ist hafa flogið yfir girðingu, án þess að snerta hana. Fjórir vom í bifreiðinni og síuppu þeir ómeiddir. Fyrstu björgunarmenn á vettvang vom sjúkraflutningamenn á leið til Akureyrar og vom mennimir fluttir með bílnum til Akureyrar. Eldurá KFC Tilkynning barst til Slökkviliðs höfuðborgar- svæðisins um klukkan hálf fjögur aðfaranótt sunnudags um að kviknað væri í veit- ingastað KFC við Faxafen. Allt tiltækt lið slökkviliðs var kallað út vegna eldsins sem reyndist svo við nánari at- hugun vera staðbundinn f eldhúsi og gekk vel að slökkva hann að sögn stöðv- arstjóra. Nokkurt tjón varð vegna reyks og vams. Veitingastaðurinn Mekong fær ekki atvinnuleyfi fyrir sérhæfðan kokk. Þráinn Stefánsson, sem unnið hefur í málinu fyrir veitingastaðinn, segir Vinnumálastofn- un hafa rangar forsendur fyrir synjuninni. Þráinn segir engan annan hafa sótt um starfið þegar það var auglýst. Mekong þurfi nauðsynlega að hafa kokk sem búi yfir sérfræðiþekkingu á asískri matreiðslu. Mekong Vinnumálastofnun gerir staðnum erfitt fyrir að sögn aðstandenda. Veitingastaðurinn Mekong er í stökustu vandræðum vegna þess að Vinnumálastofnun hefur synjað staðnum um atvinnuleyfi fyrir sérhæfðan asískan kokk. Forsendur synjunarinnar eru gefnar þær að starfið hafi ekki verið auglýst opinberlega. Þráinn Stefánsson, sem unnið hefur í málinu fyrir hönd Mekong, segir þetta alrangt því starfið var auglýst í þrjár vikur en enginn annar sótti um. Vinnumálastofnun kannast ekki við að starfið hafi verið auglýst og segir að atvinnurekendur eigi að leita að starfs- fólki innan Evrópska Efnahagssvæðisins. „Vinnumálastofnun hefur rangar forsendur fyrir því að synja okkur um atvinnuleyfi fyrir kokkinn," segir Þráinn Stefánsson, sem um sjö mánaða skeið hefur þvælst í gegn- um heilmikla pappírsvinnu til að fá atvinnuleyfl fyrir sérhæfðan asískan kokk á veitingastaðinn Mekong. Eftir margra mánaða vafstur í kerfinu fékk Mekong loks synjun um atvinnu- leyfi. Þráinn hefur unnið í starfs- mannamál- um fyrir hans hönd. Kolrangar forsendur „Útíendingastofnun lá á um- sókninni í sex vikur áður en mér var tilkynnt að það vantaði sakavottorð og sjúkratryggingu með umsókn- inni. Því var snarlega kippt í liðinn og svo núna sjö mánuðum síðar kemur svar þar sem kokknum er synjað um atvinnuleyfi. Forsendur synjunarinnar eru þær að starfið hafi ekki verið auglýst hjá Svæðis- vinnumiðlun en það er ekki rétt því starfið var auglýst," segir Þráinn sem er mjög vonsviítínn með vinnubrögð Útlendingastofnunar og Vinnu- málastofnunar. Hann segir að ekki sé hægt að ráða hvem sem er í starf- ið því kokkurinn þurfi að vera sér- hæfður í asískri matreiðslu. Auk þess hafi enginn annar sótt um starfið meðan það var auglýst þar sem atvinnuleysi sé í lág- marki. „Úrskurðurinn hefur verið kærður en ætli það líði ekki aðrir sjö mánuðir þar til þeir komast aftur að niðurstöðu," segir Þráinn. SS greiðir uppbót á afurðaverð til bænda Bændur fá óvænta búbót „Þetta er til að hvetja bændur til að vera í viðskiptum við SS. Einnig til að lengja sláturtímabilið," segir Steinþór Skúlason, ffamkvæmdastjóri SS. Stjóm SS ákvað nýlega að greiða bændum, sem hafa átt viðskiptí við fé- lagið á árinu, 3% uppbót fyrir allar af- urðir. Bændumir fá greiðsluna um miðjan janúar á næsta ári. Einnig hefur SS ákveðið að hækka yfirborganir á það sauðfé sem kemur Ferskt kjöt um vetur Islendingar geta nú fengið ferskt lambakjöt á jólunum. Steinþór Skúlason framkvæmdastjóri Stjórn SS borgar bændum til að lengja slát- urtimabilið. til slátrunar í nóvember og desember. „Þetta er gert til að lengja sláturtímann svo hægt sé að vera með ferskt kjöt lengra fram eftír vetri, bæði fyrir inn- anlandsmarkað og til útflutnings," segir Steinþór. Einnig sagði Steinþór að þeir bændur sem senda sauðfé til slátrunar í nóvember og desember fá afurðir sínar staðgreiddar. Þær em ekki stað- greiddar ef afurðimar em seldar SS á hefðbundnum sláturtíma. „Úrskurðurínn hefur verið kærður en ætli það líði ekki aðrír sjö mánuðir þar til þeir komast aftur að niðurstöðu." Réttmætar forsendur fyrir synjun Gissur Pétursson, forstjóri Vinnumálastofnunar, segir forsend- ur synjunarinnar réttmætar því með nýjum reglum í kjölfar stækkunar EES beri atvinnurekendum að leita að starfsfólki innan þess svæðis. „EES er orðið það stórt að atvinnu- rekendur eiga ekki að lenda í erfið- leikum með að ná í starfsfólk innan þess svæðis," segir Gissur sem kannast ekki við að starfið hafi verið auglýst hjá Svæðis- vinnumiðlun. Gissur segir að umsóknin hafi tafist vegna þess að í hana vant-1 aði gögn en umsóknin kom fyrst inn á borð Vinnumála- stofnunar í lok júní og gögnin hafi ekki borist fyrr en í byrjun september. Gott fyrirkomulag Aðspurður um gagnrýni á það fyrirkomulag að vinnuveitendur sjái um atvinnuleyfi starfsfólks segir Gissur að slíkt fyrirkomulag skili því að atvinnuleysi meðal innflytjenda sé í lágmarki. „Ef viðkomandi starfs- kraftur telur hins vegar að at- vinnurekandi brjóti á sér þá hvet ég hann til að leita réttar 1 sms. •* f svavar@dv.is Þráinn Stefánsson Hefur staðið I heilmiklu papplrs- vafstri til þess eins að fá synjun sem hann segir engar forsendur vera fyrir. Uppskeruhátíð hunangsbænda Býflugur eru ekki hættulegar Nokkrir bændur á Norðurlandi hafa tekið upp býflugurækt. Þar hafa menn sett upp nokkur bú með um 30 til 50 þúsund flugum í hverju. Þeir héldu uppskeruhátíð um helgina þar sem hunang úr sveitinni var sameigin- legt hráefni í íjölda rétta. „Þar var graflax með hunangssósu, hunangsmarinerað vína- og lamba- kjöt og svo ís með hunangssósu í eftir- rétt," segir Ólafur Jónsson, bóndi á Fjöllum í Kelduhverfi. „Þær em ekkert hættulegar nema maður sé að hamast í búinu. Þá er skipun gefin til einhverra flugna og þær fljúga út til að ráðast á mann. Þess vegna erum við í hvítum algöllum með höfuðfat," segir Ólafur „Þegar við tökum hunang blásum Býflugnabændur Góðri uppskeru er fagn- að i Kelduhverfi á Norðurlandi. við reyk á búin. Þá telja flugumar skóg- arelda vera að herja á nágrennið og byrja að éta eins mÚtíð hunang og þær geta til að hafa orku til að fljúga langt í burt tíl að stofna nýtt bú. Þetta er kvennaveldi og núna em þær búnar að henda köllunum út á gaddinn því þær þurfa ekkert á þeim að halda lengur." Ólafur nær um fimm h'trum af hun- angi úr hverju búi. „Það liggur um 30 þúsund kílómetra flug á bak við þetta magn," segir Ólafur, vongóður um betri uppskem á næsta sumri.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.