Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.2005, Qupperneq 25
DV Heilsan
MÁNUDAGUR 10. OKJÓBER2005 25
SEFUR ALDREI
Við tökum við
fréttaskotum allan
sólarhringinn. Fyrir hvert
fréttaskot sem birtist, eða
er notað í DV, greiðast
3.000 krónur. Fyrir besta
fréttaskotið í hverri viku
greiðast 7.000.
Fullrar nafnleyndar
er gætt.
Síminn er
550 5090
10.000.- kronur
fvrir
góða
frétt
„Það er gott að byrja á því að fá sér tónlist í
eyrun og fara út að ganga. Aðalatriðið er að
ganga nógu hratt en ekki hafa þetta eitthvert
þægilegt labb. Efþú ert kominn aðeins af
stað færðu aukið sjálfstraust og þá eru meiri
líkur á að þú mætir í ræktina."
margir hæfileikaríkir krakkar sem
eru að fá ótrúlegt tækifæri."
Keppti í Las Vegas
Yesmine er einnig tiltölulega
nýkomin frá útlöndum þar sem
hún keppti í fitness. Henni bauðst
að taka þátt í tveimur keppnum,
annarri í Malasíu en hinni í Las Ve-
gas. Hún hafði ekki keppt í mörg ár
en lét til leiðast og sér ekki eftir því.
„Mér fannst þetta ótrúlega gaman
auk þess sem þetta vakti áhuga
minn enn frekar að fara dýpra í
einkaþjálfunina." Yesmine stóð sig
vel og lenti í 8. sæti í Malasíu en 16.
af 30 í Las Vegas. „Keppnin í
Malasíu verður sýnd á Eurosport í
haust sem er mjög skemmtilegt. í
Las Vegas var ég að keppa á móti
Ólympiuförum og var því mjög sátt
við mitt," segir hún brosandi að
lokum.
indiana@dv.is
Hættu
að hrjóta
Ekki skammast þín
Börn, fullorðnir, konur og karlar - það
hrjóta allir. Næstum helmingur allra
fullorðinna hrýtur öðru hvoru og einn
af hverjum fjórum hrýtur reglulega.
Viðurkennum hroturnar og fáum þá
sem eru næstir okkur til að hjálpa okk-
ur við að skilja hvaða aðferðir
virka og hvaða aðferðir ekki.
Betraform
Oft dugar einfaldlega
að missa nokkur kíló.
Ekki liggja á bakinu
Þyngdaraflið skapar
hrotur því tungan sígur
ofan í háls og býr til há-
væran titring. Liggðu á hlið-
inni eða á maganum með þess-
um ráðum: Settu púða báðum megin
við þig svo þú rúllar ekki yfir á bakið.
Saumaðu poka aftan á náttfötin þín og
settu í hann badmingtonkúlu. Þú
verður fljótur að snúa þér við ef þú
leggst á bakið.
Endurhannaðu rúmið
Stundum dugar einfaldlega að hækka
höfuðstæðið. Fáðu þér sérhannaða
kodda eða settu eitthvað undir dýn-
una þannig að þú fáir einhvem halla.
Ekki drekka fyrir svefninn
Haltu þig frá víni og bjór fjórum tímum
fyrir svefninn. Áfengi slakar á vöðvum
svo tungan fellur ofan í önd-
unarveginn. Það sama á um
svefntöflur og sterk
verkjalyf.
Hreinsaðu öndunar-
Ofnæmi, kvef og sýk-
ingar hafa mikil áhrif á
hrotur. Klipptu reglulega
hárin í nösunum á þér til
u*í* að halda öndunarveginum
opnum. Þrífðu svefnherbergið
og losaðu þig við ofnæmisvaldana.
Farðutil læknls
Hrotur gætu verið merki um alvarlegra
vandamál eins og kæfisvefn. Til að vera
viss skaltu láta lækni skoða þig. Þú
gætir einnig rætt við hann um hrot-
urnar og þær aðgerðir sem í boði eru.
Óundirbúnir fyrir faraldur
Samkvæmt vlsindamönnum
eru Bandaríkjamenn ekki undir
það búnir ef fuglaflensan breytist í
heimsfaraldur. Þrátt fyrir fyrirheit
Bush Bandaríkjciforseta segja sér-
fræðingar að landið sé langt á eftir
öðrum löndum í undirbúningi og
lyíjasöfnun. f síðustu viku tókst vís-
indamönnum að þróa vlrusinn
sem orsakaði spænsku veikina sem
leiddi tugi milljóna manna til
dauða 1918-1919 í von um að öðl-
'ast meiri skilning á farsóttum yfir
höfuð. Vitað er að sú veira smitað-
ist í menn frá fuglum líkt og þessi.
Stökkbreyting varð hins vegar til
þess að hún fór að berast manna á
milli.
'ér eittliviiú vii M
„Ég held að fólk sé farið að sldlja
að líkamsrækt er partur af lífinu.
Við verðum að hreyfa okkur til að
líða vel,“ segir Yesmine Olson
dansari og söngkona. Yesmine,
sem starfar sem einkaþjálfari í
World Class, segir ótrúlega mikla
eftirspurn eftir einkaþjálfun og að
það hafi einnig verið mikið að gera
í sumar. „Það kom á óvart hvað
það var mikið að gera í sumar en ég
held að fólk sé farið að átta sig á því
að maður tekur einfaldlega ekki frí
í líkamsræktinni."
Tekur tíma til að komast í
gírinn
Yesmine segir allskonar fólk á
öllum aldri mæti reglulega í rækt-
ina enda sé úrvalið slíkt að allir
ættu að geta fundið sér eitthvað
við sitt hæfi. „Ég held að fólki þyki
þetta ekki lengur leiðinlegt," segir
hún en bætir við að það taki alltaf
einhvern tíma að detta í rétta gír-
inn. „En um leið og maður er kom-
inn yfir fyrstu erfiðleikana þá er
auðvelt að halda áfram og halda
sér við efnið."
Dansinn vinsæll
Yesmine segir vinsælustu tím-
ana pilates og robe yoga. „Boot
camp er líka mjög 'vinsælt en það
eru svona boxæfingar. Það geta
allir mætt í þessa tíma, málið er
bara að prófa og sjá hvað maður
getur og gera þetta á sínum eigin
hraða," segir Yesmine og bætir við
að dansinn sé einnig vinsæll. „Ég
er að kenna dans í Kramhúsinu og
það eru alltaf fleiri og fleiri að
koma til að dansa. Sumum finnst
einfaldlega leiðinlegt í ræktinni og
velja því frekar dansinn en að
mínu mati er mikilvægt að æfa í
líkamsræktinni og gera einnig eitt-
hvað skemmtilegt eins og að
dansa. Við verðum nefnilega að
vera viss um að þjálfa alla
vöðvana."
Mikilvægt að setja sér mark-
mið
Margir geta ekki hugsað sér að
spranga um á stuttbuxum f rækt-
inni. Sumir eru einfaldlega ekki
nógu sáttir við sig til að byrja að
æfa. Þegar Yesmine er spurð ráða
segir hún mikilvægt að stunda ein-
hverja hreyfingu þó að hún sé ekki
inni á líkamsræktarstöðvunum.
„Það er gott að byrja á því að fá sér
tónlist í eyrun og fara út að ganga.
Aðalatriðið er að ganga nógu hratt
en ekki hafa þetta eitthvert þægi-
legt labb. Ef þú ert kominn aðeins
af stað færðu aukið sjálfstraust og
þá eru meiri líkur á að þú mætir í
ræktina." Yesmine segir einnig
mikilvægt að setja sér raunhæf
markmið og hafa einhverja
ákveðna dagsetningu sem „dead-
line“. „Við verðum að hafa eitthvað
til að vinna að og hætta ekki fyrr en
við höfum náð því. Ef það tekst
ekki þá er bara að fá sér einkaþjálf-
ara,“ segir hún brosandi.
Hæfileikaríkir krakkar
Þar sem Idolið er byrjað aftur á
Stöð 2 hefur Yesmine nóg að gera.
Hún þjálfar krakkana í að koma
fram og kennir þeim undirstöðuat-
riðin í að hreyfa sig á sviði. „Mér
finnst mjög gaman að vinna með
þessum krökkum . og hef einnig
gaman af að fylgjast með þeim í
sjónvarpinu enda verður þetta
betra með hverju árinu. Þarna eru
Það
hollasta
af því holla
100 grafepli innihalda 49 kkal.
100 gr afbanana innihalda 88
kkal.
100 gr af avocado innihalda 126
kkal.
100 grafgulrótum innihalda 11
kkal.
100 grafrauöu greipi innihalda
30 kkal.
100 gr af greip-ávexti innihalda
64 kkal.
100 gr afkíví innihalda 40 kkal.
100 grafsitrónu innihalda 12
kkal.
100 gr aflime innihalda 37 kkal.
100 gr af ólífum innihalda 142
kkal.
100 gr afappelsínum innihalda 47
kkal.
Valið fæðubótarefni ársins 2002 i Finnlandi
MinnistöfUir
, • iW||iBr- is
FOSFOSER
MEMORY
Umboðs- og söluaðiti
simi: 551 9239