Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.2005, Page 27

Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.2005, Page 27
DV Bílar MÁNUDAGUR 10. OKTÓBER 2005 27 Bonið ver lakkið og skerpir lit Lakkið er ein mikilvægasta tæringarvörn bíis og því meira sem lakk slitnar því mattara verður það og því meiri hætta er á upphlaupi með til- heyrandi ryðskemmdum. Óhreinindi loða betur við mattan flöt en gljáandi og vegna þess að óhreinindi draga í sig raka og salt myndast margfalt ákjósanlegri skilyrði fyrir ryðtæringu á möttum fleti en á fleti sem er gljáandi og háll. Með bílabóni er vörn lakksins haldið við. Þegar bón er borið á flötinn og látið stirðna sest það í hrufurnar og skemmdirnar, sem við greinum ekki með berum augum. Þegar flöturinn er síðan núinn með mjúkum klút er hluti bónsins fjarlægður. Eftir á fletinum verður bón sem fyllt hefur upp rispur og aðrar ójöfnur. Með því að slétta flötinn með bóninu fær hann á sig gljáa. Sléttur gljáandi flötur hrindir frá sér vatni og óhreinindi festast síður á honum. Auk þess að verja lakkið með gljáa skerpir bón lit með því að gefa honum dýpt. Bónaður bíll er því ekki einungis betur varinn gegn tæringu en óbónaður heldur er hann einnig giæsilegri. Reynsluakstur PORSCHE g torfærairðll ökumaður handskipt milli gíra þegar honum sýnist. Tiptronic-skiptingin er þannig hönnuð að bíllinn „lærir" akst- urslag ökumannsins og stillir skipti- punktana eftir því. Með Tiptronic virka hefur ökumaðurinn jafnframt rafknúna beinskiptingu eins og í Formúlu 1 keppnisbíl. Skiptirinn er á stýrinu og þarf ökumaður ekki annað en að ýta á + eða - til að skipta upp eða niður. Tiptronic-sjálfskiptingu stjóm- ar tölva og notar til þess ýmsar breytur svo sem snúningshraða vélar, álag, spólvöm o.fl. til þess að tryggja há- marksveggrip og bestu aksturseigin- leika við ólíkar aðstæður. Bremsukerf- ið í Cayenne er öflugra en í nokkrum öðmm sportjeppa á markaðnum. Gripstjóm og læsingar Lága drifið er valið með rofa við hlið gírstangar. í lága drifi virka nokk- urkerfi samtímis: Gripstjómin (PTM = Porsche Traction Management) velur sjálfvirkt viðeigandi gír og stýrir drif- læsingum með til þess gerðu forriti. í Cayenne Turbo breytir gripstýringin ABS-læsivöm, spólvöm og loftfjöðrun fyrir torfæmakstur um leið og lága drifið er valið. Porsche er fyrstur bíla- ffamleiðenda til að bjóða samstætt kerfi af þessari gerð - þ.e. drifstýringu fyrir torfæruakstur þar sem sjálfvirkni kemur í veg fyrir mistök. PORSCHE CAYENNE V8-VÉLIN 450 ha V8 Twin Turbo-vélin í Cayenne er að öllu leyti úr áli, vatns- kæld með 90' blokkarhorni.Vélin skilar 100 hö og 137 Nm á hvern Ktra slagrýmis, svo notaður sé mæli- kvarði vélahönnuða. Smurkerfið er án biðu (dry sump) sem tryggirfullkomna smurningu án tillits til stöðu bílsins, t.d. þegar ekið er lengri tíma (miklum halla. Vélstýrikerfið (Motronic ME 7.1.1) er með innbyggt bilanagreiningarkerfi. Kveikjulaust neistakerfi og bein tölvustýrð insprautun heldur afgasmengun innan marka sem taka gildi 2007. Heddin eru kapítuli út af fyrir sig; 4 ventlar fyrir hvern sílindra og tveir kambásar í hvoru heddi. Heddin eru f tveimur sjálfstæðum hlutum;sá neðri inniheldur brunahólf, ventla,- spíssa, kerti og kælivatnskápu en sá efri er með olíukælda kambásana. Kostur: Jafnari varmaþensla og auð- veldara viðhald. Kambar útventlanna eru innbyrðis með mismunandi form sem mýkir ganginn, eykur afl og sparneytni. Útventlar eru með sódíumkælda hausa. Kambásar sogventla breytast sjálf- virkt og stýra opnun ventlanna þannig að jafnt flæði sé inn (bruna- hólf hvert sem álag er og hver sem snúningshraðinn er.Árangurinn er m.a. mjög lítil afgasmengun. Sé torfæra slík að eitt eða fleiri hjól eru á lofti beitir drifstýringin læsing- um fjórhjóladrifsins þannig að bíllinn stöðvast ekki - hann hefur alltaf veg- grip á einhverju hjólanna svo fremi þau séu ekki öll á lofti samtímis. 100% millidrifslæsinguna má setja á með því að styðja öðru sinni á lágadrifs- hnappinn. Og eins og áður var nefnt má beita loftfjöðruninni í Cayenne Turbo til að ná enn betra gripi í torfær- um. Sérstök mismunardrifslæsing er fáanleg fyrir afturdrifið. Sú læsing er merkileg að því leyti að hún getur bæði verið sjálfvirk eða með hand- virku vali og ökumaður getur valið mismtjnandi mikla læsingu eftir því sem hann telur hentugast, þ.e. allt að 100%. Til að læsa afturdrifi 100% þarf ökumaðurinn að styðja á lágadrifs- hnappinn þrisvar. Með afturdrifið læst að fullu er girt fyrir að nokkurt hjólanna geti spólað hvort sem veg- grip þess er mikið, lítið eða ekkert. Til að auka stöðugleika bílsins í akstri á hálum vegi beitir tölva driflæsingu afturdrifsins á sjáifvirkan hátt t.d. 60%. Mismunandi drifbúnaður og fjöðrun Ástæða er til að taka það fram að Porsche Cayenne, sem er af tveimur grunngerðum; S með V6 340 ha vél og Turbo með V8 450 ha vél, er með mis- munandi drifbúnaði og mismunandi fjöðrun eftir því hvað kaupandinn vel- ur og efúr því hvor gerðin er valin. Þannig má segja að hvem Cayenne getir kaupandi fengið klæðskera- saumaðan að eigin óskum. Cayenne (eins og VW Touareg) er hannaður af Porsche. Cayenne er firamleiddur að miklu leyti af Volks- wagen en tölvu- og öryggisbúnaður er frá Porsche. Eftir að hafa séð grind og yfirbyggingu Cayenne framleidda í verksmiðjum VW í Bratislava í Slóvak- íu hefur sú skoðun undirritaðs styrkts, að „íslensk ryðvöm" ofan á þá vönd- uðu tæringarvöm, sem þessir hlutir iá á fiamleiðslustigi, geti einungis verið tilskaða Cayenne Turbo V8 er með tveimur pústþjöppum. Geti einhver jeppi á markaðnum státað af sambærilegri torfæragem leikur hann það varla eft- ir að fara á 266 km hraða á hraðbraut- um Evrópu án þess að hljóð inni í bíln- um mælist meira í BMW 750. Hámark- stog er 620 Nm á öllu bilinu frá 2250 og upp í 4750 sm. Eyðsla 450 ha Cayenne Turbo er um 18 lítrar í borgarakstri, um 13 lítrar í lengri akstri en meðal- eyðsla í blönduðum akstri er 15,6 lítr- ar. Dráttargeta er 3500 kg. leoemm.com Nissan Pivo Nýjasta nýtt frá Nissan. Egglaga rafmagnsbíll frá Nissan Á nýjunda áratug síðustu aldar kom Nissan fram á sjónar- sviðið með hugmynd að egglaga hönnun á Nissan Micra en hug- myndin var ekki þróuð frekar. Renault tók aftur á móti hug- myndinni opnum örmum og þróaði útlitið fyrir Clio. Tuttugu árum síðar er Nissan komið aftur í slaginn og ætlar sér að koma á móts við fjölgandi bíla- eign með hönnun á liprum egg- laga rafmagnsbíl sem nefndur er Nissan Pivo. Skoda Octavia Vinsælasti blll Skoda- verksmiðjanna frá upphafí. Skoda Octavia vinsælastir Á fréttavef Skoda í Tékklandi kemur fram að meiri eftirspurn er eftir Skoda Octavia-skutbfl- um en áætlanir gerðu ráð fyrir. Því hefur verið ákveðið að auka framleiðsluna og verða þrjú þúsund fleiri bílar smíðaðir það sem eftir er af árinu en áður var ætlunin. Þar segir einnig að Skoda Octavia sé vinsælasti bíll Skoda-verksmiðjanna frá upp- hafi. í Þýskalandi einu hafi í ágústmánuði selst 32.924 Oktavíur. Ný kynslóð Skoda Octavia kom fram á sjónarsviðið f ágúst- mánuði í fyrra og skutbílsútgáfa nýju kynslóðarinnar í janúar á þessu ári. Framleiðslu á eldri gerðinni er þó enn haldið áfram undir gerðarheitinu Octavia Tour. LIFECar Vistvænn sportblll i takt við nýja tlma. Fyrsti umhverfisvæni sportbílinn MMC, í samvinnu við QinetiQ, Cranfield- og Oxford- háskóla, BOC og OSCar, áætlar að þróa fyrsta umhverfisvæna sportbflinn sem mun ganga á eldsneyti sem breytir vetni f raf- magn. Bifreiðin sem hlotið hefur nafnið LIFECar mun verða afar hljóðlát og vistvæn því eini út- blástur hennar verður vatns- gufa. Gert er ráð fyrir að verkefnið muni taka um tvö og hálft ár.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.