Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.2005, Page 31

Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.2005, Page 31
rxv Lífío MÁNUDAGUR 10. OKTÓBER2005 31 Umhverfisfrömuður í framboði Steinn Kárason sækist eftir fimmta sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í komandi borgarstjórnarkosningum. Steinn hefur hingað til ekki verið þekktastur fyrir afskipti sín af póli- tík. Nú gæti orðið breyting þar á. „Ég er að fara í prófkjör hjá Sjálf- stæðisflokknum og sækist eftir fimmta sæti," segir Steinn Kárason umhverfisfrömuður með meiru. Hann er á leið í prófkjör hjá Sjálf- stæðisflokknum í Reykjavík. „Rétt í kringum tvítugt bytjaði ég að hafa afskipti af bæjarstjórnarmálum í Hveragerði. Það má því segja að ég hafi verið óbreyttur fótgönguliði í all langan tíma." Hámenntaður umhverfis- sinni Steinn er hámenntaður í um- hverfisfræðum. „Fyrir einhverjum sex til átta árum ákvað ég að söðla um. Þá fór ég í nám í rekstar- og markaðsfræði í Tækniskólann. Þaðan á Bifföst í viðskiptafræði og þaðan hélt ég til Danmerkur í meistaranám í umhverfisstjórnun og alþjóðaviðskiptum við Álaborg- arskóla. Námið barst út um víðan völl. Ég var í Copenhagen Business School og fór þaðan til Suður-Afr- íku að lesa umhverfisfræði. Þar fékk ég diplóma í umhverfisfræðum," segir Steinn en hann segir það hafa verið sérstaklega dýrmæta reynslu að fara til Suður-Afríku. „Þá sér maður lífið í nýju ljósi og verður þakklátur fyrir það sem maður hef- ur,“ segir Steinn. Hann fór frá Afr- íku og vann fyrir fjárfestingarbank- ann í Finnlandi. Prédikaði umhverfisboðskap Steinn kom heim til fslands fyrir þremur árum síðan og segir að þá hafi hann ekki getað setið hjá lengur. Það væri kominn tími á aðgerðir. „Ég hef verið að skrifa garðyrkjubækur og haft þannig áhrif á samfélagið. Svo var ég með útvarpsþátt í Rfkisútvarp- inu um umhverfismál. Straumar og stefnur í umhverfisstjórnun og um- hverfismálum hét hann," segir Steinn en í þættinum var hann með úttekt á ákveðnum málaflokkum og fékk viðmælendur í hvem þátt til að ræða efnið. „Ég viðaði að mér upp- lýsingum. Setti viðfangsefnið þannig fram að viðmælendur gætu myndað sérskoðanir." í dag situr Steinn í nefnd sem heitir Umhverfisvarnarráð en þar er hann fulltrúi menntamálaráðherra. Umhverfisvernd er svarið Blaðamanni þykir lítið hafa farið fyrir umhverfissinnum innan Sjálf- stæðisflokksins undanfarin ár. Ertu ekki í röngum flokki? Áttu ekki að vera í Vinstri-grænum? „Nei, nei, það eru náttúruunn- endur í Sjálfstæðisflokknum. Hins vegar hefur þekkingarskortur staðið málefnalegri umræðu um umhverfismál fyrir þrifum. Um- hverfismál eru liður í heildarstjórn- un og stefnumótun. Hvort sem það á við fyrirtæki eða sveitarfélög. Það er gríðarlegur ávinningur fólginn í umhverfisstjórnun. Umhverfismál snerta samfélagið f stóru og smáu. Hvort sem maður talar um skipu- lagsmál eða efnahagsmál. Við verð- um að líta á þetta sem heild." Einu sinni garðyrkjumaður... Steinn Kárason var í Garðyrkju- skóla ríkisins á sínum tíma þar sem hann nam ylrækt. Eftir það lærði hann skrúðgarðyrkju í sama skóla og varð sér út um meistaragráðu á því sviði. í dag er hann fram- kvæmdastjóri Brimnesskóga. Muntu ekkert sakna garðyrkj- unnar ef þú ferð íborgarstjórn? „Einu sinni garðyrkjumaður, ávallt garðyrkjumaður," segir Steinn og hlær. „Ég er að vinna að þessu hugsjónamáli mínu að end- urheimta þessa skóga í Brimnes- skógum og á nú von á því að ég muni halda því áfram," segir Sveinn og horfir vongóður fram á veg. soti@dv.is Nylon-stúlkurnar láta gott af sér leiða Seldu yflr 830 vinabönd „Það var búið að selja 830 vina- bönd síðast þegar ég vissi," segir Einar Bárðarson umboðsmaður Nylon-flokksins. „Það eru margir, gott að eiga svona marga vini." Nylon-stúlkumar fóru af stað í sumar með söfnun fýrir Styrktar- félag krabbameinssjúkra barna. Söfrmnin fór þannig fram að seld voru appelsínugul vinabönd í verslunum Select og rann allt söfn- unarféð óskipt til Styrktarfélagsins. Nú hafa þær selt 830 bönd sem mætti teljast gott í ljósi þess að böndin voru einungis seld á Select- bensínstöðvunum. „Þau á Select hjálpuðu okkur mikið með því að taka ekkert fyrir söluna," segir Einar. Á morgun munu stúlkurnar svo afhenda söfnunarféð sem er um hálf milljón króna. Annars er það að frétta af stúlk- unum að þær eru nýkomnar úr hljóðveri þar sem þær tóku upp efrii á væntanlegan geisladisk sinn. Á dögunum sendu þær frá sér nýtt lag sem heitir Góðir hlutir og er eftir Ölmu í Nylon og ástmarin hennar Óskar Pál. Einar segir að geisladiskurinn sé væntanlegur í verslanir þann þriðja nóvember. soii@dv.is Nylon Láta ekki sitt eftir liggja. Ellert B. Schram er 66 ára í dag. „Maður- inn kann að meta listir og nýtur þess að læra sem eilífðarstúdent. Menntaður er hann í sérgrein svo sem læknir, lögmaður eða viðskipta- fræðingur. Hann birtist fólki sem kaldur og lokaður karakter en sú er einungis hluti af persónuleika hans," segir í stjörnuspá hans. e-éi. ... Vatnsberinnpo.M-i8.few Hugaðu mjög vel að því sem fram fer í kringum þig þessa dagana en þú ert um þessar mundir að ganga í gegnum reynslu sem gagnast þér án efa þegar fram líða stundir. Ellert B. Schram I Fiskarnirpy. febr.-20. mars) (dag ertu minnt/ur á að þegar þú framkvæmir þá ertu að þjálfa sjálfstjórn þína. Hrúturinn (21.mars-19.aprH) Þegar stjarna hrútsins er ákveðin (að komast til botns í ein- hverju nær hún ávallt árangri. Þú ert jafnvel öfgafull/ur á þessum árstíma. Nautið (20. april-20. mal) Þér er ráðlagt að losna við þörf þína til að verja sjónarmið þín því orka þín eflist á sama tfma og þú ákveður að leggja áherslu á innra jafn- vægi þitt í stað þess að vera sífellt í varnarstööu, kæra naut. Tvíburamirpi. mai-21.júnl) Framkvæmdu kraftaverkin sjálf/ur með því að leggja þig fram við að aðstoða aðra. Þú býrð yfir eiginleik- um sem þú ættir að nota til að hlúa að ástvinum þínum og gefa þeim styrk en þó án þess að þú missir mátt á nokkurn hátt. KrabbinnezM'-^/i'W______________ Hér koma miklar öfgar. Þú ætt- ir að horfast f augu við styrk þinn og ekki síður veikleika og reyna að læra að á stundum ganga þarfir annarra fyrir þfnum eigin en þar með efiir þú karma þitt með góðverkum einum sem stuðla að velmegun. LjÓnÍð (iljúli- 22. ógúst) Hugrekki og sjálfsöryggi ein- kennir þig en einnig kemur fram kvíði sem hindrar að þú náir að fylgja löng- unum þínum eftir. Meyjan (21. ágúst-22. septj Ekki láta jarðnesk verðmæti villa þér sýn. Hugur meyju girnist margt um þessar mundir og þú ert sannarlega fær um að Iffga óskir þínar við ef þú einblínir á að skapa þér auð- legð með (góð)verkum þfnum. Voginpj.sepf.-23.oM Hæfileiki þinn til að anda hægt og djúpt er til staðar en þú átt það til að gleyma að nýta þér hann. Ef þú tileinkar þér djúpa öndun framkall- ar þú sjálfkrafa góða meðvitaða slök- un sem hentar stjörnu vogar vægast sagt mjög vel. Sporðdrekinn (24.okt.-21.nitj Ekki gleyma að leggja áherslu á að eiga samskipti við fólk sem er næmt á Ifðan þína f jákvæðum skiln- ingi. Bogmaðurinn (22.n6v.-21.des.) Stjama bogmanns er fær um að efla með sér kjark þegar hún fram- kvæmir hluti sem virðast jafnvel ekki merkilegirog leiðinlegir jafnvel en skipta vissulega máli. Steingeitin (22.des.-19.janj Ekki gleyma þér í því stóra og hávaðasama þegar svarið býr í smæstu atriðum líðandi stundar. SPÁMAÐUR. IS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.