Dagblaðið Vísir - DV - 17.10.2005, Síða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 17.10.2005, Síða 6
6 MÁNUDAGUR 17. OKTÓBER 2005 Fréttir 0V Flóð í rénun áHöfn Eftir gríðarlegt vatns- veður og flóð á Höfn í Hornafirði er lífið komið í venjulegan farveg. Miklar rigningar undanfarið ollu því að ræsi stífluðust og götur fylltust af vatni. Víða flæddi ofan í kjallara. Bæj- arbúar skemmtu sér hið besta þrátt fyrir hamfarirn- ar, lögðu bílum sínum og réru um á bátum eða syntu á milli húsa. Bæjarstarfs- menn eru nú að hreinsa til í bænum og skoða skemmdir. Unqir með bjór Lögreglan í Reykjanesbæ hafði afskipti af ungmennum í Sandgerði á laug- ardagskvöld, en þau reyndust hafa áfengi undir höndum. Þar sem þau voru ekki með aldur til gerði lögreglan upptæka tólf áfenga bjóra. Síðar sömu nótt hafði lögreglan svo afskipti af dreng undir lögaldri, en hann hafði sautján áfenga bjóra í fór- um sínum. Þá hafði lögregl- an í Reykjanesbæ afskipti af tveimur sextán ára drengj- um sem voru inni á vínveit- ingastað í bænum. Foreldr- um var gert viðvart og munu málin fara til barna- verndaryfirvalda. Salsa eða Rúkkt Þorsteinn Stephensen, skipuleggjandi lceland Airwaves- tónlistarhátíðarinnar. „Salsarokk,,ekki spuming! Ég fíla bæði, ég er harður rokkari og heflíka mjög gaman af salsatónlist. Ég hefbúið bæði í Mexikó og Brasilíu þar sem salsa rennur um æðar fólks og salsatakturinn glymur I eyrum um stræti og torg. Rokkið á líka I mérhverja taug enda væri ég ekki í þessum bransa efsvo væri ekki." Hann segir / Hún segir „Ég segi rokk, ég er meiri rokk- ari og hefgaman afhljóm- sveitum eins og Led Zeppelin, AC/DC og Guns and Roses. Foreldrar mínir eru miklir rokk- arar og ég hlustaði á rokk frá því ég var litil. Annars hefég líka gaman afsalsatónlist og ætla mér að læra að dansa eftir henni þegar ég flyt til spænskumælandi lands." Kolbrún Maria Ingadóttir, hemi í spænsku við Háskóla Is- lands og fegurðardrottning. Sally Fyrst, dönsk kona á fertugsaldri, hlaut mánaðarfangelsi fyrir að smygla hassi, földu í einni af biblíum Harry Potter-aðdáenda, Harry Potter og leyniklefanum. Harrys Potter Sally Fyrst er 37 ára dönsk kona. Hún var handtekin í Leifsstöð, þann 30. september fyrir að hafa smyglað rúmum 320 grömmum af hassi hingað til lands. Hassið var falið í danskri út- gáfu af bókinni Harry Potter og leyniklefinn, sem útleggst á dönsku Harry Potter og hemmelighedens kammer. Sally er einstæð, tveggja barna móðir og í ákæru frá Sýslumanns- embættinu á Keflavíkurflugvelli kemur fram að hassið hafi verið ætl- að að verulegu leyti til sölu hér á landi í hagnaðarskyni. Hass frá Köben Sally var stöðvuð í tollhliðinu á Keflavíkurflugvelli, við hefðbundið eftirlit. Leitað var í farangri hennar og fundust efnin þá, innpökkuð í Harry Potter-bókinni sem fyrr grein- ir. Bókin var látin líta út sem gjöf, en henni var pakkað inn. Salfy játaði skýlaust brot sitt og að sögn lögmanns hennar liggur ekkert fyrir um ástæður þess. Götu- verð efnanna er 600-700 þúsund, samkvæmt upplýsingum frá SÁÁ. Ánægð með niðurstöðuna Sally var dæmd til mánaðarfang- elsisvistar, skilorðsbundið í þrjú ár. Guðmundur B. Ólafsson, verjandi Sallyar, segir hana sætta sig við nið- urstöðuna. Dómari tók tillit til heim- ilisaðstæðna hennar við uppkvaðn- ingu og þykir mánaðarfangelsi vera vel sloppið miðað við magn. Maður sker ekki Harry Potter Snæbjöm Amgrímsson, útgáfu- stjóri hjá Bjarti, segir það koma sér á óvart að Saíly hafi skorið Harry Pott- er-bók til að koma hassi fyrir í henni. „Þetta er bara hörmung," segir Snæ- björn Arngrímsson, og á bæði við vítahring þann sem konan virðist hafa komið sér í með fíkniefnum, en einnig að hún hafi tekið þessa tilteknu bók, sem selst hefur í fimmtán þúsund tökum hér á landi. ur sker ekki þessa bók. Þetta er fjjjt eiginlega * ™ vanvirðing fyrir aðdá- endur," seg- Harry Potter og leyniklefinn Sally smyglaði hassinu i bokinni UrfFfiygJt llll lífi tlJIJpiL il i'P llji mjml; i em- „Mað ir hann. „Það ■ er kannski ekki j tilviljun að hún S valdi Leyniklef- ann," segir Snæ bjöm. gudmundur@dv.is Gjafapappír Bók- inni varpakkað inn i gjafapappír. Hljómsveit Sallyar Sally er söngkona í danskri dæguriagasveit sem heitirBlue Influence. Rófubrot á söngvakeppni „Það var svo mikill hiti, sviti og rokk í húsinu að Böddi, söngvari hljómsveitarinnar Touch, féll um koll á sviðinu og braut á sér rófu- beinið," segir Davíð Sigurðarson hjá umboðskrifstofunni Gigg en um- boðsskrifstofan hélt sína óháðu undankeppni fyrir Eurovision á Gauki á Stöng á laugardaginn. Upphaflegt markmið keppninn- ar var að koma hreyfingu á að RÚV héldi Söngvakeppni Sjónvarpsins og virðist sem það hafi gengið eftir því Sjónvarpið tilkynnti í síðustu viku að keppnin verði haldin í byrjun næsta árs. Það var hljómsveitin Hraun sem sigraði keppnina á Gauknum á laug- ardaginn og mun sveitin senda sig- urlagið í Söngvakeppni Sjónvarps- ins. Eftir keppnina var haldið ball með hjómsveitinni Touch sem end- aði þannig að söngvari sveitarinnar féll um koll á sviðinu með þeim af- leiðingum að hann rófubeinsbrotn- Davíð umboðsmaður Litla-Eurovision fór úr böndunum og endaði með rófubroti. aði. „Hann lét þetta ekkert á sig fá heldur kláraði ballið og söng langt fram undir morgun en fallið átti sér stað í þriðja lagi," segir Davíð. svavar@dv.is Kaup á músum vekja reiði Dýraverndunarsamtök mót- mæla tilraunum á dýrum „Mér býður við þessu eins og öllu hugsandi fólki hlýtur að gera. Þetta er eitt það skítlegasta í vestrænni sið- menningu að leyfa sér að kvelja sak- laus dýr og á allan hátt óafsakanlegt," segir Magnús Skarphéðinsson, for- seti Músavinafélagsins. Magnús og fleiri dýravemdunarsinnar, svo sem hið nýstofnaöa félag Raddir málleys- ingjanna, hafa látið í ljós óánægju sína á kaupum tilraunarstöðvar Há- skóla íslands í meinafræði að Keld- um á fjögur þúsund músum. Vegna þessara atburða efndi félagið Raddir málleysingjanna til friðsamlegra mótmæla við Austurvöll í gær. Magn- ús segir að aðgerðir Músavinafélags- ins verði þær að skrifa Umhverfis- stofnun bréf og fá dýravemdun- arsamtök í lið með því. Fyrst og síðast sé þó ætlun þess að fá almenning í lið með félaginu gegn tilraununum. Mikilvægt sé að fólk hugsi um að nota vörur sem ekki hafa verið próf- aðar á dýrum. „Samkvæmt rann- sóknum em 95-98% af öllum dýra- rannsóknum ónauðsynlegar og nán- ast gerðar af hégóma einum. öllu neðar kemst lágkúra siðmenningar- innar ekki en með rannsóknum á saklausum dýmm. Það að taka mál- leysingjana og kvelja þá við ónauðsynlegar tilraunir er botninn á ljótleika j mannsins," var það sem J Magnús hafði að segjaf um málið. Magnús Skarphéðinsson Forseti Músavinafélagsins er æfur vegna kaupa tilrauna- stöðvarinnar á Keldum á fjögurþúsund músum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.