Dagblaðið Vísir - DV - 17.10.2005, Blaðsíða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 17.10.2005, Blaðsíða 21
DV Sport MÁNUDAGUR 17. OKTÓBER 2005 21 dsliðsþjálfararnir gurvinsson og Logi iðamannafund ásamt Geir Þorsteinssyni og i þá var þjáifari U-21 sn hefurnú tekið við i. DV-myndTeitur Eyjólfur Sverrisson hefur verið ráðinn landsliðsþjálfari íslands í knattspymu eins og svo margoft hefur komið fram síðan að ráðning hans var tilkynnt á föstudag. Hlutimir gengu hratt fyrir sig á þessum degi og ljóst að knattspymuforystan vildi sem allra fyrst boða nýja tíma hjá landsliðinu áður en gagnrýnin yrði meiri en hún var orðin. Eyjólfur hefur undanfarin tvö ár verið þjálfari U-21 árs landsliðs íslands en hefur annars ekki sinnt annarri knattspymuþjálfun. „Ég hafði alltaf hugsað mér að fara í þjálfun að loknum mfnnm knattspymuferli og maður stefiur hátt,“ sagði Eyjólfur í viðtali við DV Sport eftir aö tílkynnt hafði verið um ráðningu hans. „Þetta hefur allt gengið hratt fyrir sig og mér fennst ganga vel hjá U-21 árs landsliðinu. Svo kom þetta upp með A-landsliðið og tel ég það mjög verðugt verkefni sem ég er fullkomlega tilbúinn að sinna." En þó svo að Eyjólfur sé reynslu- lítm þjálfari hefur hann víðtæka reynslu af atvinnumannaferli sfnum sem og landsliðsferli. „Ég þekki þessa umgjörð í kringum félagslið og landsliðið líka. Það er ekkert nýtt fyrir mér." Ekki nefiar en í fjórfia styrk- leikaflokki Árangur íslenska landsliðsins í þeirri undankeppni sem lauk í síð- ustu viku var slakur en liðið landaði einungis ijórum stigum sem komu öll gegn lélegasta liðinu í riðlinum, Möltu. Þar sem styrkleikaröðun fyrir næstu undankeppni ræðst af ár- angrinum í þeim tveimur síðustu hefur ísland fallið úr fjórða styrk- leikaflokki í þann fimmta. ísland telst reyndar lélegasta liðið í fimmta styrkleikaflokki og var aðeins hárs- breidd frá þeim sjötta. Eggert Magn- ússon, formaður KSÍ, sagði það óviðunandi árangur. „Markmið okk- ar var að komast upp í þriðja flokk en við eigum allavega ekki að vera neðar en í þeim fjórða. Við fengum færri stig í þessari undankeppni en til dæmis Andorra og Liechtenstein og það er eitthvað sem við sættum okkur ekki við.“ Hann bauð svo Eyjólf velkominn til starfa með þeim orðum að „nú er bara að taka til starfe og fara að vinna stig“. Eyjólfur sagði að fráfarandi landsliðsþjálfari, Ásgeir Sigurvins- son, hafi sýnt sér stuðning og óskað sér alls hins besta. „Hann var mjög ánægður með hvemig ég vann með 21 árs liöiö og hann bauð fram alla sína aðstoð og hjálp sem ég myndi vilja fó frá honum." Að sama skapi benti Eyjólfur á að hann ædaði sér ekki að velta sér of mikið upp úr því hvað forverar hans hefðu verið að gera. „Eitt er alveg á hreinu að ég er ekki festur í einhverri leikaðferð eða leikmönnum. Ég ætía mér að gera þetta á mínum forsendum og það sem áður hefur gerst telur ekki leng- ur, það er búið. Ég mun taka þær ákvarðanir sem þarf og standa með þeirn." Ætla afi skofia hvern nokkrum sinnum Eyjólfi dylst ekki að vamarleik- inn þurfi að bæta og að hann sé nauðsynlegur ætli liðið sér að ná árangri. Hann er sammála því að ísland eigi ekki heima neðar en í fjórða styrkleikaflokki og helst þeim þriðja. Hann vill því ná því besta úr liðinu sem hann getur hverju sinni. „Málið snýst alltaf um þá leiki og keppni sem er framundan. Nú er langur tími framundan áðm en næsta keppni hefst og þarf að nota hann vel í undirbúning liðsins. Mitt fyrsta verkefrii verðm að hafa samband við leikmenn og kaxma þeirra hug. Ég ætía mér að skoða hvem leik- mann nokkram sinnum því ég þarf að vita nákvæmlega hvemig þessir leikmenn era að spila með Velkominn Eggert Magnússonbýður hérEyjólfSverrisson velkommn hlstarta landsiiðsþjálfara. DV-mynd Pjetur KB 3 ICELANDAIR erit sínum félagsliðum - hversu sterk- ir þeir era og í kjölfarið þarf ég svo að meta hvort ég tel þá vera nógu góða fyrir íslenska landsliðið." Hann segir að hann muni ávallt velja þann mannskap sem henti best hveiju sinni. „Eingöngu geta hvers og eins leikmanns kemm til með að ráða því hvort viðkomandi leikmaðm kemst f landsliðið. Það verðm enginn með fasta áskrift að landsliðssæti." Ætla afi vinna leiki Eyjólfur lagði fótboltaskóna á hilluna fyrir tveimm árum en þá hafði hann leikið fjórtán tímabil sem atvinnumaðm í knattspymu með Stuttgart, Besiktas og svo Herthu Berlín. Hann lék alls 66 A-landsleiki fyrir íslands hönd og skoraði í þeim tíu mörk. Eitt frægasta markið hans er án efa það sem hann skoraði beint úr aukaspymu á þjóðarleik- vangi Frakka, þáverandi heims- meistara, í 3-2 tapi íslands fyrir Frökkum. Haxm hætti að leika með landsliðiriu árið 2001 og hefur þvf oft leikið með mönnum sem nú munu lúta hans stjóm f landsliðinu. í þeirra hópi eru Hermaxm Hreiðars - son, Eiður Smári Guðjohnsen, Amar Þór Viðarsson, Brynjar Bjöm Gunn- arsson, Ámi Gautm Arason og Heið- ar Helguson svo einhveijir séu nefiidir. Haim óttast þó ekki að gömlu félagamir muni láta illa að stjóm. „Þvert á móti tel ég það vera stór- an kost að þekkja leikmerinina. Það tók mig til að mynda smátíma að kyxmast þeim leikmönnum sem léku hjá mér í U-21 árs landsliðinu," sagði Eyjólfur. „Sjálfur hef ég kynnst því að spila undir stjóm fyrrverandi félaga og er það mln reynsla að það eina sem skiptí máli sé að þjálferi og leikmenn hafi sömu markmið - að vinna leikina. Það er það sem ég stefni að.“ Tveir sigrar á Svíum Árangur Eyjólfs með landslið ís- lands skipað leikmönnum 21 árs og yngri var oft á tíðum góður. Undir hans stjóm vann liðið til að mynda tvo góða sigra á Svíum, samanlagt 7-2, og sömuleiðis vann liðið báða leiki sína eins gegn Búlgörum, 3-1. Þess utan náði liöið aðeins einu jafntefli, gegn Möltu hér heima en annars tapaði liðið öðrum leikjum. Gengi liðsins var því nokkuö stop- ult en klárlega betra en hjá A-lands- liðinu. Hann var nokkuð gagnrýnd- ur fyrir að velja ekki yngri leikmenn sem hefðu þó gert tilkall til sæti f liðinu en bætti úr því fyrir lokaleik riðilsins þar sem hann kallaði á þá Bjama Þór Viðarsson, Theódór El- mar Bjamason og Rúrik Gíslason. Sá fyrstnefiidi skoraði eitt marka ís- lands gegn Svíum í síðustu viku og var mjög hampað fyrir frammi- stöðu sína. eirikursmdv.is Dómstóll götunnar „Mér h'st ágætlega á hann. Hann er náttúrulega hálf þýskur sem er mjög jákvætt. Hann gerði fína hluti með 21 árs landsliðið og ég geri kröfu um að hann geri betur en forverar sínir í starfi." Friöþjófur Friöþjófsson „Mér Kst mjög vel á hann. Hann átti langan og glæsilegan at- vinnumannaferil og vonandi fylgja honum ferskir vindar." AJfPedersen „Mér h'st vel á hann. Eyjólfur er Saukrækingur og þaðan kemur hörkufólk og hann virkar á mig sem frábær iit ekkert hvort að hann geti mikið bætt liðið því það er hægt að gera svo tak- markað með landsliðið. Við erum svo lítil þjóð.“ Ööinn Rafnsson „Bara ágæt- lega. Hann stóð sig vel með 21 árs liðið. Það gæti verið að hann sé of reynsluiítill en það á bara eftir að koma í ljós." Samúel fvarÁmason „Nú erum við búnir að fá góð- an mann í starf- ið. Hann er van- ur knattspyrnu- maður og svo sannarlega ekk- ert verri en þeir hinir." Jóel Hreiðar Georgsson „Mér líst al- veg prýðilega á það þakka þér fyrir. Hann ber af sér góðan þokka og ég ber miklar væntingar til hans starfa." BjameyAnna Bjamadóttir „Mjög vel, kominn tími til að breyta til. Hann kemur með ferska vinda í þetta.“ Höröur Geirsson „Mér líst vel á hann. Hann var góður leikmaður og því held ég að hann verði góð- ur þjálfari. Almar Gauti Ingvason Ég held að Eyjólfur sé klár maður og því líst mér vel á þetta. Ég held að hann komi með mikla baráttuíþettaog eigi auðvelt með að ná til strákanna." Björgvin Sigurbergsson „Mér líst alls ekki illa á þetta. Ég hefði hins vegar viljað að hinir hefðu feng- ið meira tæki- færi. Þeir áttu skilið að minnsta kosti ár í viðbót." Jónatan IngJJónsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.