Dagblaðið Vísir - DV - 17.10.2005, Page 32

Dagblaðið Vísir - DV - 17.10.2005, Page 32
X 32 MÁNUDAGUR 17. OKTÓBER 2005 Menning ÖV V * ÞÓRUNN SIGURÐARDÓTT- IR stjórnandi Listahátíðar var ein af kölluðum á þingi Lesbókar Moggans um menningu í vikunni og birti erindi sitt á þeim vettvangi á laugardag. Hún skjallar Lesbók- ina fyrir að hafa „staðið Þórunn Sigurðardóttir Er ekki ánægð með fjölmiðla sem svara gagnrýni fjöllun um menningarmál í þessa átta áratugi." SAMKVÆMT þeim Lesbókar- mönnum Matthíasi Jóhannes- sen og Þresti Helgasyni urðu breytingar í þá átt fyrst 1962 og síðan var enn hert á fyrir fáum árum þegar Þröstur tók við ritstjóminni. En Þómnn fer víðar. HÚN KVARTAR yfir að fjöl- miðlar svari gagnrýni, sumir samstundis, en rekur engin dæmi þar um. Ber að skilja það svo að ffúin sé á móti umræðu? Hún kvartar líka yfir ægivaldi gagnrýnenda og spyr hvort rétt sé að menn haldi slíkri iðju áfram í áratugi. Enn nefnir hún engin dæmi. Umsjón: Páll Baldvin Baldvinsson pbb@dv.is Niðurskurðurtil lista á ftalíu I síðustu viku mótmæltu menn á götum úti í Róm þeim niðurskurði sem stjórn Berlusconis h/ggst framkvæma tilað mæta kröfum Efnahagsbandalagsins. Roberto Beningni leiddi mótmælin í Róm. I Mílanó var Scala lok- að. Stjórnin hyggst skera niður sem nemur 164 milljón- um evra í listageiranum einum og er það niðurskurður um 40% frá fjárlögum 2005. Mótmæli listamanna munu halda áfram og hvergi verður sparað púðrið, en stjórn Berlusconis hefur 2 lengi verið afar illa séð meðat hinna skapandi Q stétta á ítaliu. PRoberto Benigni Bragi Ásgeirsson gagnrýnandi Fór gagnrýni hans um listahátíð fyrn brjóstið á frúnni? ,| ÞETTA ER ósanngjörn gagn- rýni á þá Braga Ásgeirsson, Rfk- arð örn Pálsson og Skapta Hall- dórsson sem munu eiga lengstan samfelldan starfsaldur - á Mogganum - við gagnrýni á myndlist, tónlist og ljóðlist - að ekki sé talað um Jóhann Hjálm- arsson. Allir þessir hafa starfað um langt árabil við gagnrýni. Enn verra er að frúna skuli skorta hugrekki til að ræða valdsmennsku þeirra og skað- semi beint - af því hún getur vel rökstutt mál sitt ef hún vill. ÞÁ ER FURÐULEG sú afstaða hennar að starfandi listamenn megi ekki taka þátt í umræðu gagnrýnarinnar og hljóta menn enn að undrast hversu henni er mikið í mun að hirta gagn- rýnendur Morgunblaðsins: Ragna Sigurðardóttir, Jón Ransu, Þóra Þórisdóttir og Jonas Sen eru öll gagnrýnendur og „starfandi Iistamenn" og ekki er hægt að segja um neitt þeirra annað en þau starfi af heilind- um, hreinskilni í öllu sínu starfi og er ekki að fmna neinn ljóð á þeirra ráði annað en þau þora að segja hvað þeim finnst og lúta tilskipunum frá hofróðum í hefðarveldi menningarmála á íslandi Fyrsta frumsýning vetrarins í Þjóðleikhúsinu var síðastliðið föstudagskvöld: Hall- dór í Hollywood eftir Óíaf Hauk Símonarson, en verk hans hafa mörg verið meðal vinsælustu sviðssetninga ríkisleikhússins á liðnum áratugi. í verkinu er stuðst við feril Halldórs Laxness þegar hann hverfur frá íslandi 1927 og fer vestur um haf til Los Angeles og snýr heim eftir tveggja ára dvöl. Vel þeytt froða með Þjóðleikhúsið sýnir á Stóra sviðinu: Halldór í Hollywood eftir Ólaf Hauk Símonarson. Leikstjóri: Ágústa Skúladóttir. Leik- mynd: Frosti Friðriksson. Búningar: Þórunn E. Sveinsdóttir. Lýsing: Páll Ragnarsson. Aðstoðarleikstjóri: Aino Freyja Járvelá. Tónlist: Jóhann G. Jóhannsson, Árni Heiðar Karlsson og fleiri. Frumsýning 14. október. Ólafur Haukur hefur umskrifað moða. Sýningin minnti oft á ný- Halldór í Hollywood Unnur Osp og Atli Rafn íhlutverkum skáldsins og unnustu hans gamalt verk sitt frá níunda ára- tugnum, skeytt í það sönglögum sem flest eru samin við ljóð Hall- dórs frá þriðja áratugnum - og bætir við kunnum verkum amer- ískra sönglagahöfunda, Chaplins og lagsettu ljóði eftir sjálfan sig. Saga Halldórs, sem er ungur spjátrungur sem vill sigra heim- inn á skáldskaparsviðinu, er rakin í stuttum atriðum með flæðandi skiptingum í þénanlegri leikmynd Frosta Friðrikssonar. f útliti sýningarinnar er allt lagt í fegraðan heim söngleiksins, inn- skotsnúmer spretta upp, lítið djasskennt dansband leggur inn stemningu. í þessum heimi klæð- ast stúlkur austan hafs og vestan f satín en ekki bómul sem tíðast var. Allur heildarsvipur verksins er glans og fegrun. Ungur maður fer út í heim Efnið er aftur innflytjandi sem reynir eins og margir aðrir inn- flytjendur að fóta sig í nýjum iðn- aði filmunnar, kemur ekki undir sig fótunum og á þess kost að snúa aftur heim - og kenning skáldsins er sú að hin heitu kvöld í Hollí hafi kennt Halldóri að meta svalann hér heima - Hollywood hafi fært okkur Halldór. Þetta er alþekkt ævin- týraminni: liðleskjan rís úr öskustónni, heldur út í heim, tekst þar á við lífið og lærir og kemur tvíefld heim. Halldór er enginn strálklingur þegar lagt er af stað eins og kynnt hefur verið. Hann er fulltíða maður. Sungið í sólskini Halldór í Hoilívúdd er léttvæg leiksýning, hún er snoturlega samsett á sviðinu, litrík og hrein afþreying. Persónur eru allar utan tvær flatar, skumarbrot frekar en heilar skumir. Langflestum leik- umnum reynist um megn að glæða þær nokkru lífi og erindi, þeir hafa enda ekki úr neinu að legan söngleik Þjóðleikhússins Singing in the Rain. Það em þeir Atíi Rafn Sigurðs- son og Jóhann Sigurðarson í hlut- verkum Halldórs Laxness og Hall- dór Hall sem bjarga kvöldinu frá því að verða óbærileg leiðindi. Atíi með lágstemmdri og þaulhugs- aðri persónu sem er reyndar ári yfirborðskennd, en henni er þó gefinn víðast bráðskemmtilegur texti sem er sóttur í bréf og rit Halldórs frá þessum tíma. Það var bragð af textunum hans Halldórs og Atli nýtur þess að láta athuga- semdir hans falia. Jóhann fer á kostum í þessari sýningu eins og hann finni á sér að nú sé ögurstundin og hann verði að blása krafti og lífi í líflítil og átakasnauð atriðin. Að búa til lifandi persónu Ólafur Haukur er þeirrar kyn- slóðar sem reyndi hvað ákafast að slíta sig frá því hefðarveldi sem Halldóri var skapað í íslensku samfélagi - en dáði hann ekki minna en þeir sem á undan komu. Ef litið er yfir textagerð Óla sjást merkin eftir Halldór ári víða - í þessu verki er hann bundinn í báða skó af stráknum frá Laxnesi. Honum tekst ekki að sh'ta sig frá gagnabankanum, honum er um megn að bijóta postulínsstyttuna og tekst ekki að fleyga sig inn í persónuleikann, draga hann í þau átök sem sýna okkur háskalegan metnað Halldórs í nýju ljósi. Og yfirráð gamla mannsins eru svo alger að skáldið missir sjónar á öllum sem nálægt honum koma: engar leikpersónur verksins verða jafn illa útí og konurnar: unnust- umar þrjár, konan úr Flatey og Greta Garbó. Hvað var Chaplin að gera þarna - langaði leikarann að sýna að hann gæti hermt - svona herfilega - eftir Chaplin? Söngleikir trekkja Þessar brotalamir á verki Ólafs ★★ Leiklist hafa verið svo ljósar að það var sveigt inn í söngleikjaformið þeg- ar á liðnu vori. Er það líka ekki eitthvað sem hefur virkað vel áður á áhorfendaskarann? Er það ekki sama formúlan og gekk í Gaura- gangi eitt og tvo og í Þreki og tár- um? Ágústa Skúladóttir setur sýn- inguna á svið. Hún hefur áður sýnt að henni lætur vel að svið- setja gamanmál. Gamansemi hennar er kímileg en nær aldrei vemlegu flugi, henni virðist láta vel að stika verkin og skipa at- burðarásinni á svið. Sýningin lítur vel út en skiiur ekkert eftir sig. Kæru vinir En er ekki allt í lagi að reyna að búa til söngleik um íslending í Hollívúdd á þriðja áratugnum, klippa út meinfyndnar hæðnisat- hugasemdir hans og skeyta þeim í þunna sögu af strák sem vill meik- aða? Hafa þetta létt og skemmtí- legt og litríkt og bjart? Jú ef metnaðurinn er ekki meiri. Ef metnaðurinn er sá. En þá skulu menn líka verða dæmdir af verkum sínum. Þjóðleikhúsið kann að sjá það sem sitt helsta verkefni að setja svona sjó á svið: þau em núna ein þrjú slflc á Stóra sviðinu. En mínir kæru vinir: hvað lá söguhetjunni á hjarta þar vestur frá? Rímar ekkert af því hér og nú? Víst er nauðsyn að sinna ís- lenskum leikskáJdum. Víst er nauðsyn að þróa íslenska söng- leikinn áfram. En þessi áhorfandi er illa svikinn. PállBaldvin Baldvinsson <

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.