Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.2005, Blaðsíða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.2005, Blaðsíða 21
Hetjan Thierry Henry er eitt afstærstu nöfnum enskrar knattspyrnu frá upphafi og klárlega einn allra besti framherji heims. Hann er stórkostlegur sig kannski HsMfc einna best hversu fín S| lína það er á ' milli hetju og w| skúrks í enska boltanum að ifl þessar nítján mín- útur sem Marco Al- meida lék hjá Sout- hampton voru þær einu sem hann getur státað af í Englandi. eirikurst@dv.is Heimidir fdinBBC og arsenai.com lan vvrigni segir ao tmerry se verðugur arttaki sinn sem markakóngur Arsenal enda sé hann „stórkostleg- ur“ leikmaður. „Þetta gæti ekki hafa hent indælari dreng. Það væri kannski öðruvísi ef hann væri hræðileg persóna en það er ekki tilfellið. Hann á þetta skilið." Wright skoraði á sínum ferli 185 mörk fyrir Arsenal en hann getur þó státað af því að hafa gert það í færri leikjum en Henry. Wright spilaði 288 leiki fyrir félagið en Henry hefur leikið 302. Munurinn er hins vegar sá að Wright var sjö árum eldri en Henry þegar hann hætti hjá félaginu. „Hann hefur unnið allt sem hægt er að vinna, fyrir utan meistaradeildina. Ég bið tif guðs að hann vinni hana einhverntímann. “ Wright hætti hjá Arsenal árið 1998, ári áður en Henry kom til félagsins. Það eru þó margir sem hefðu viljað sjá þá félaga spila saman. „Það hefði verið flott. Hann gerir sitt utan vítateigsins og ég myndi bíða inn í teignum að fá molana." 19. mars 2003 Val- encia-Arsenal 2-1 ■ Henry skorar eittmark i tapleik gegn Valencia í 16-liða úrslitum ieiks- ins.Honum tekstað skora þrátt fyrir að vera beittur kynþátta- fordómum afáhorf- epdum spænska liðs- ins og komið þannig úrjafnvægi. 9. desember 2001 Arsenal- Aston Villa 3-2.Arsenal lendir tveimur mörkum undir en tekst aðjafna metin. Það er svo Henrysem skorar sigurmarkið á siðustu minútu leiksins. 18. október 2005 Sparta Prag-Arsenal 0-2. Henry skorar bæöi mörk leiksins og jafnar þar með og bætir markamet lans Wright. 25. nóvember 2003 interMil- an-Arsenai 1-S.Leikmenn Arsenal gera lítið úr vörn Inter í leiknum og skorar Henry tvö marka liðsins. „Líklegra en ekki aö þetta sé búið,“ sagði Ríkharður Daðason um knattspyrnuferil sinn Ríkharður sennilega með brjósklos í baki Ríkharður Daðason knattspymu- maður úr Fram er af öllum líldndum með bijósklos í baki en hann meiddist undir lok tímabilsins í sumar, þar sem hans menn í Fram þurftu að sætta sig við þau örlög að faUa í fyrstu deildina sem og að tapa bikarúrslitaleiknum fyrir Val. Ríkharður lék með í þeim leik, sárþjáður, en nú getur það vel farið svo að það verði hans síðasti leik- ur sem knattspymumaður. „Samkvæmt myndatöku sem ég fór í þá er ég sennilega með brjósklos," sagði Ríkharður í samtali við DV Sport. „En ég á nú eftir að hitta sérfræðing sem mun segja mér nákvæmlega hvers eðlis bakverkur- inn er. Það gerist í næsta mánuði og þá mun ég væntanlega fá endanleg svör um hvort ég þurfi að gangast undir aðgerð en mér skilst að það sé líkleg niðurstaða." Ríkharður segir að framtíðin sín sem knattspymumanns muni end- anlega ráðast í næsta mánuði þegar sérfræðingur mun meta hvort þörf sé á aðgerðinni eða ekki. „Ég fæ væntanlega endanleg svör í næsta mánuði en það er líklegra en ekki að þetta sé búið. Ég vil þó ekki útiloka neitt fyrr en að ég hitti lækninn og heyri það sem hann hefur að segja. Menn hafa þó unnið sig úr slíkum meiðslum en þeir hafa kannski verið flestir yngri en ég." Rflcharður er samningsbundinn liði Fram í eitt ár enn og mun því leika með þeim ef hann heldur áfram. En eins og staðan er nú verð- ur það þó að teljast afar ólíkleg nið- urstaða. Hann sagði í samtali við DV í síðustu viku að það væri sorgleg niðurstaða ef það væri tilfellið. „Það er leiðinlegt að geta ekki hætt á eigin forsendum." eirikurst@dv.is Rikharður Daðason Á langan og glæsilegan feril að baki sem knattspyrnumaður en nú horfir við að sá ferill sé búinn. FIMMTUDAGUR 20. OKJÓBER 2005 2 7 Sigmundur til reynslu hjá Hácken Sölvi Davíðsson skrifaði í gær undir eins árs samn- ing við KR og mun því spila með liðinu næsta árið að minnsta kosti. Kristinn Kjærnested, einn forráða- manna félags- ins, sagði í gær að Sigmundur Kristjánsson myndi senn skrifa undir samning við KR sem gerði ráð fyrir því að ef Sigmundur spilar hér heima, verður það í KR. Hann mun hins vegar haida til Svíþjóðar þar sem hann verður til reynslu hjá úr- valsdeildarliðinu Hácken. Ronaldo handtekinn Portúgalski knattspyrnu- maðurinn Cristiano Ron- aldo hefur verið handtek- inn í Bretlandi þar sem hann er grunað- ur um nauðgun. Hann gaf sig sjálfviljugur fram á lögreglu- stöð í gær þar sem hann var handtekinn. Hann var yfir- heyrður í gær og mun mál- ið í kjölfarið verða rannsak- að enn frekar óg ákveðið hvort eigi að gefa út kæru. Honum er gefið að sök að hafa nauðgað ónefndri konu á hótelsvítu í Lund- únum, daginn eftir að félag hans, Manchester United, lék við Fulham þann fyrsta október síðastliðinn. Ólöf óákveðin Ólöf María Jónsdóttir segir í samtali við kylfingur.is að hún sé enn óákveðin hvort hún muni taka þátt í úrtöku- mótinu fyrir evrópsku móta- röðina, sem fram fer í næsta mánuði. Ólöf lauk keppni í 91. sæti á mótaröðinni í ár og var því einu sæti frá því að tryggja sér fullan þátttökurétt í næstu mótaröð. Hún hefur þó þegar tryggt sér réttinn til að taka þátt í öllum mót- um næsta árs nema einu, Annikumótinu svokallaða sem fer fram í Svíþjóð en það þykir mjög eftirsótt að taka þátt í því. Logi byrjaður aðæfa Logi Geirsson hand- boltakappi er byrjaður að æfa á nýjan leik eftir að hafa verið frá undanfarna mánuði vegna meiðsla í baki. Það eru mikil gleðitíð- indi fyrir Loga sem átti afar gott tímabil í fyrra þar sem hann var einn allra besti leikmaður Lemgo, eins besta liðs Þýskalands. Með Lemgo leikur einnig Ásgeir örn Hallgrímsson sem hefur reyndar fá tækifæri fengið enn sem komið er. Lemgo er sem stendur í sjötta sæti þýsku úrvalsdeildarinnar með tíu stig. /■ V -»

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.