Ægir - 01.01.2002, Blaðsíða 5
Róbert fer yfir sviðið
Róbert Guðfinnsson tók við stjórnarformennsku
hjá Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna fyrir um
þremur árum. Töluverður hvellur varð í
tengslum við þetta stjórnarkjör og e.t.v. hafa
ekki öll sár gróið enn. Í ítarlegu Ægisviðtali
rifjar Róbert upp baráttuna um stjórnarformennskuna í SH, hann fjallar um Þormóð ramma-
Sæberg, tekur púlsinn á stöðu sjávarútvegsins nú um stundir og framtíðarhorfum.
Örn skrifar um stöðu smábátaútgerðar
Örn Pálsson, framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda, ræðir í pistli mánaðarins
um stöðu smábátaútgerðarinnar, einkum beinir hann sjónum að dagróðrabátunum.
Þurfum að vinna okkar heimavinnu
Mikil þorskeldisbylgja virðist vera farin af stað hér á landi. Snemma í janúar var mjög
fjölmenn þorskeldisráðstefna á Akureyri og nú er hafið víðtækt rannsóknaverkefni í
þorskeldi. Verkefnisstjóri er Valdimar Gunnarsson, sjávarútvegsfræðingur, og í blaðinu ræðir
hann um verkefnið og almennt um þorskeldi.
Bjart yfir loðnunni
Sérfræðingar eru sammála um að sjaldan hafi
verið jafn bjart yfir loðnuveiðunum og einmitt
nú. Ástandið er afar gott á loðnumiðunum og
því er ástæða til bjartsýni. Þó eru ákveðin ský á
lofti í sölumálum fyrir frysta loðnu.
Siglfirðingurinn í Rapp Hydema
Siglfirski vélstjórinn Jóhann Sigurjónsson flutti
vestur um haf árið 1984. Hann var til sjós um tíma
við Alaska, en hin síðari ár hefur hann stýrt
þjónustufyrirtækinu Rapp Hydema í Seattle í
Bandaríkjunum. Ægir hitti hann að máli á dögunum
þegar hann hafði stutta viðkomu á Íslandi á leið
sinni til höfuðstöðva Rapp í Noregi.
Helga RE-49 komin frá Kína
Enn eitt skipið er komið til Íslands frá Kína. Þann 23. janúar sl. lagðist Helga RE-49,
ferskfisktogari Ingimundar hf., að bryggju í Reykjavík eftir hálfs annars mánaðar siglingu
frá Kína. Ægir gerir ítarlega grein fyrir skipinu.
5
Í B L A Ð I N U
Útgefandi: Athygli ehf.
ISSN 0001-9038
Ritstjórn: Athygli ehf.
Hafnarstræti 82, Akureyri
Sími 461-5151
Bréfasími 461-5159
Ritstjóri: Jóhann Ólafur Halldórsson (ábm.)
Auglýsingar: Athygli ehf.
Suðurlandsbraut 14, Reykjavík,
Sími 515-5200,
Bréfasími 515-5201
Auglýsingastjóri:
Inga Ágústsdóttir
Sími 515-5206
GSM 898-8022
Hönnun & Umbrot:
Athygli ehf.
Hafnarstræti 82, Akureyri
Suðurlandsbraut 14, Reykjavík,
Sími 515-5200,
Bréfasími 515-5201
Prentun: Steindórsprent-Gutenberg ehf.
Áskrift: Ársárskrift Ægis kostar 6200 kr.
með 14% vsk.
Áskriftarsími 461-5151
Á forsíðu blaðsins er Róbert Guðfinnsson,
stjórnarformaður SH og Þormóðs ramma-Sæbergs.
Myndina tók Óskar Þór Halldórsson.
ÆGIR kemur út 11 sinnum á ári. Eftirprentun og
ívitnun er heimil, sé heimildar getið.
26
6
14
24
38
44