Ægir - 01.01.2002, Side 8
8
F R É T T I R
Í nóvember árið 1999 skipaði
sjávarútvegsráðherra nefnd undir
formennsku Einars Kristins Guð-
finnsonar alþingismanns, sem var
falið að skoða framtíðarmöguleika
fiskvinnslunnar. Verksvið nefnd-
arinnar var umfangsmikið en það
snéri einkum að því að leggja
mat á stöðu greinarinnar, líklega
framtíðarþróun hennar og gera
tillögur sem ætla má að bæta
muni stöðu hennar.
Tillögur nefndarinnar eru í níu
liðum og þær fjalla m.a. um
hvernig auka megi framboð af
fiski til vinnslu hér á landi, sem
ella færi til vinnslu annars staðar,
verðmætaaukningu og nýsköpun,
menntunarmál og kynningar-
starfsemi. Í framhaldi af tillögun-
um fól ráðherra Rannsóknarstofn-
un fiskiðnaðarins að vinna grein-
argerð um það með hvaða hætti
vinna varðandi veðmætaaukningu
sjávarfangs og nýsköpun í grein-
inni gæti farið fram.
Rannsóknastofnun fiskiðnaðar-
ins skilaði nú í janúar tillögum
sínum og eru þær í eftirtöldum 9
liðum:
1. Að mynda AVS stýrihóp 5-8
með sérhæfðan starfsmann á
árinu 2002
2. AVS hópur leggi fram að-
gerðaáætlun um að auka
verðmæti sjávarfangs með
tilteknum hætti á 5 ára
tímabili, hugsanlega með 10
ára markmið samhliða
3. Stýrihópur skili niðurstöð-
um til ráðherra í lok október
2002
4. AVS stýrihópur samanstæði
af fólki sem hefði þekkingu,
hagsmuni, áhuga og tíma til
að vinna markvisst
5. Leitað yrði til sérfræðinga og
hagsmunaaðila á hverju sviði
samhliða
6. Áætla þarf útgjöld við störf
AVS hópsins
7. Á árinu 2002 þarf að leggja
af stað með tiltekin verkefni
og rannsóknir sem búa í
haginn fyrir 5 ára tímabilið
8. Samhliða stýrihópi mætti
mynda „fagráð“ sem stýri-
hópur leitaði til. Fagráð gæti
komið frá útgerð, vinnslu,
sjómönnum og vísinda-
mönnum
Miðað er við að verkefni stýri-
hópsins á árinu 2002 verði eftir-
talin:
• Að kortleggja sviðin 6, þ.e.
hráefni, vinnsla, aukahráefni,
fiskeldi, líftækni, búnaður og
þekking, þar sem virðisauki
gæti orðið þannig að úr verði
„Topp 10“ listi tækifæra á
hverju sviði
• Að leita fyrirmynda í erlendum
verkefnum sama eðlis
• Að ná samstöðu í greininni til
átaks um AVS (30 stærstu fyr-
irtækin ráða 65% þorskígilda)
• Að afmarka þátt rannsókna í
AVS á tímabilinu
• Að skilgreina verkefni sem
skila myndu virðisauka
• Að gera tillögur um forgangs-
röðun og framgangsmáta verk-
efna
• Að benda á leiðir til fjármögn-
unar verkefna á 5 ára tímabil-
inu
• Að skilgreina hlutverk stjórn-
valda, atvinnugreinarinnar,
samtaka og annarra hagsmuna-
aðila
• Að setja mælanleg markmið
fyrir 5 ára átak sjávarútvegsráð-
herra til aukins verðmætis sjáv-
arfangs. Hvar viljum við vera
eftir fimm ár?
• Að kynna AVS vinnuna innan-
lands og utan eftir atvikum á
árinu 2002
• Að gera tillögur um verkefna-
hópa og stjórn AVS á fimm ára
tímabilinu 2003-2007
Stýrihópurinn sem gerð er til-
laga um hefur nú þegar verið
skipaður og sitja eftirtalin í
hópnum:
Friðrik Friðriksson, formaður
stýrihóps, Ágústa Guðmunds-
dóttir, prófessor í matvælaefna-
fræði við HÍ, Elínbjörg Magnús-
dóttir, sérhæfður fiskvinnslumað-
ur, Guðbrandur Sigurðsson, for-
stjóri ÚA, Kristján Hjaltason,
framkvæmdastjóri markaðsmála
SH, Rannveig Sigurðardóttir,
hagfræðingur hjá ASÍ, Snorri
Rúnar Pálmason, skrifstofustjóri,
Úlfar Steindórsson, framkvæmda-
stjóri Nýsköpunarsjóðs.
Starfsmaður stýrihópsins verður
Páll Gunnar Pálsson matvæla-
fræðingur hjá Rannsóknastofnun
fiskiðnaðarins og hefur ráðherra
falið stýrihópnum að skila niður-
stöðum sínum í september 2002.
Samkvæmt upplýsingum sjáv-
arútvegsráðuneytisins verður
einnig, í samræmi við tillögur
nefndar um framtíðarmöguleika
fiskvinnslunnar, skipað fagráð
sem stýrihópurinn getur leitað til
en í því munu m.a. sitja fulltrúar
hagsmunasamtaka í greininni.
Þá hefur verið stofnuð ný skrif-
stofa í ráðuneytinu sem fer með
vinnslu sjávarafurða, nýsköpun
og þróun eins og fram kemur í
nýju skipuriti ráðuneytisins sem
kynnt var í síðustu viku. Skrif-
stofustjóri hennar er Snorri Rúnar
Pálmason, sjávarútvegsfræðingur.
Þá er í nýju skipuriti lögð aukin
áhersla á eldi sjávardýra og mun
Kristinn Hugason kynbóta- og
stjórnsýslufræðingur sem starfar á
skrifstofu afkomu, viðskipta og
fiskeldis fara með þau mál.
Sjávarútvegsráðuneytið:
Aðgerðir sem miða að verðmæta-
aukningu afurða sjávarútvegsins