Ægir - 01.01.2002, Page 11
11
z framleiDeut ›ir dieselvélar
frá kW til 7400 kW. 14
Loftkældar og vatnskældar
vélar
F
is
k
ik
fr
é
t
t
ir
/
G
ra
fí
k
h
f
F R É T T I R
Brimrún ehf. í Reykjavík, sölu-
og þjónustufyrirtæki á Íslandi
fyrir Furuno búnað í skip og báta,
og Haftækni ehf. á Akureyri, hafa
gert með sér samning um sam-
starf við sölu og þjónustu á Furu-
no búnaði á Norðurlandi. Samn-
ingurinn felur m.a. í sér að Haf-
tækni verður eitt fyrirtækja, sölu-
og þjónustuaðili fyrir Brimrún á
Norðurlandi og lætur jafnframt
af sölu á öðrum búnaði í sam-
keppni við Furuno.
Í fréttatilkynningu kemur fram
að meginmarkmið samstarfsins sé
að styrkja stöðu fyrirtækjanna á
Norðurlandi og um leið Furuno á
Íslandi, með því að efla og bæta
viðhalds- og almenna þjónustu
við notendur Furuno búnaðar þar.
Hjá Brimrún starfa 11 manns
og er árið í ár 10. starfsár Brim-
rúnar. Aðalstarfsemi fyrirtækis-
ins hefur frá byrjun verið sala og
þjónusta á Furuno búnaði. Haf-
tækni hóf starfsemi á árinu 1986
og hefur meginstarfsemi fyrir-
tækisins ávallt verið þjónusta á
siglinga-, fiskileitar- og fjar-
skiptabúnaði. Hjá fyrirtækinu
starfa 6 manns.
Á myndinni eru frá vinstri: Sveinn Kr. Sveinsson frá Brimrúnu, Sævar Örn Sigurðsson
og Birgir Aðalsteinsson frá Haftækni og Björn Árnason frá Brimrúnu.
Brimrún og Haftækni gera
samstarfssamning