Ægir - 01.01.2002, Blaðsíða 12
12
E R L E N T
Páll Pétursson, félagsmálaráð-
herra, afhenti fyrsta útskriftar-
hópi Hafnarskólans skírteini við
athöfn hjá Samskipum föstudag-
inn 7. desember síðastliðinn. Tólf
brautskráðust að þessu sinni úr
Hafnarskólanum sem annast
starfsnám fyrir hafnarverkafólk og
starfsfólk vöruhúsa.
Hafnarskólinn var stofnaður á
síðasta ári að frumkvæði Sam-
skipa í samvinnu við Menningar-
og fræðslusamband Alþýðu
(MFA) og stéttarfélagið Eflingu.
Félagsmálaráðuneytið veitti
2.500.000,- króna til verkefnis-
ins. Ingibjörg E. Guðmundsdótt-
ir, framkvæmdastjóri MFA, hafði
yfirumsjón með náminu en í
námskeiðsnefnd sátu sex aðilar,
starfsmenn Samskipa og fulltrúar
frá MFA, Eflingu og Starfsgreina-
sambandinu, sem undirbjuggu
námið og settu saman námsskrá.
Námið er alls um 250 stundir
og önnuðust 21 aðili kennsluna.
Námskráin var fjölbreytt. Meðal
námsgreina voru námstækni og
samskipti, enska, íslenska, tölvur
og tölvusamskipti, stærðfræði,
flutningastjórnun, birgðabók-
hald, vörustýring, vörumerking-
ar, gæðakerfi og gæðamál, örygg-
is- og umhverfismál, meðferð
hættulegra efna, losun og lestun,
meðferð á kæli- og frystivöru og
líkamsbeiting.
Námið hófst 7. september síð-
astliðinn og var kennt hjá MFA
og í húsnæði Samskipa.
Fyrsti útskriftarhópurinn úr Hafnarskólanum ásamt Páli Péturssyni,
félagsmálaráðherra, og aðstandendum námsins.
Hafnarskólinn brautskráir
fyrstu nemendurna
Dagana 14.-15 janúar síðastlið-
inn héldu 50 sérfræðingar, emb-
ættismenn og stjórnmálamenn,
ráðstefnu í Stamsund, sem þeir
leiddu, Børge Brende, umhverfis-
verndarráðherra, og Svein Lu-
dvigsen, sjávarútvegsmálaráð-
herra, til að ræða Sellafield.
– Enskir ráðamenn eru þó víðs
fjarri en allt er nú klappað og
klárt fyrir ráðstefnuna, "Noregur
móti Sellafield", segir í Fiskaren.
– Við eigum ekki von á því að
fulltrúar frá Sellafield eða enskum
stjórnvöldum láti sig nokkru
skipta þótt litla Lofoten beini
kastljósinu að málinu. Þrátt fyrir
það er engin ástæða til þess að við
þegjum og hengjum haus, segir
einn af helstu hvatamönnum ráð-
stefnunnar, Johannes Røde.
Þann 15. janúar lýstu allir sjó-
menn í Stamsund andstöðu sinni
við Sellafield með því að draga
svartan fána upp í möstrin á bát-
um sínum.
Þeir 5-6 menn sem hafa haft
forgöngu um að boðað yrði til
ráðstefnunnar hafa vakið athygli
bæði meðal stjórnmálamanna og
vísindamanna og margir úr þeirra
röðum mættu til ráðstefnunnar,
sem hófst að kvöldi hins 14. jan-
úar. Daginn eftir voru stíf funda-
höld, margir fyrirlestrar haldnir
og umræður voru miklar.
Ætlunin er að gefa út skýrslu
um það sem fram fór á ráðstefn-
unni og kynna hana bæði innan
Noregs og á alþjóðlegum vett-
vangi.
Fiskaren segir frá því að fyrirtæk-
ið Ozone Products í Seattle, sem
sérhæfir sig í framleiðslu búnaðar
til að sótthreinsa matvörur, býður
nú OP20, ósonbað til að sótt-
hreinsa fisk.
Vélbúnaður þessi er aflangur,
ferkantaður tankur með sugu í
lokinu. Gegnum tankinn liggur
færiband, tengt framleiðslulín-
unni, og flytur fiskinn niður í
ósonbaðið. Talsmenn Ozone
Products fullyrða að slík sótt-
hreinsun drepi meðal salmonella-
og listeriabakteríur.
Á netsetri fyrirtækisins er full-
yrt að óson drepi 99,95 af öllum
bakteríum á umhverfisvænan
máta þar eð engar gufur myndist
því að óson verði tiltölulega hratt
að súrefni og þar að auki sé að-
ferðin 3.000 sinnum öruggari en
sótthreinsun með klóri og enn-
fremur sótthreinsist vélarnar ekki
síður en matvælin sem framleidd
eru.
Búnaðurinn við ósonbaðið er
rafknúinn og nýtist við vinnslu á
heilum fiski, flökum og hrogn-
um.
Fiskur sótthreinsaður
í ósonbaði
Ráðstefna um Sellafield
Mynd: Hreinn Magnússon