Ægir - 01.01.2002, Qupperneq 13
13
F R É T T I R
Bæjaryfirvöld á Akranesi minntu
á þjónustu Akraneshafnar í lok
liðins árs með því að senda hátt í
300 dagatöl og jafnmörg eintök
af tímaritinu Ægis til um 300
skipa, báta fyrirtækja í sjávarút-
vegi og annarra viðskiptavina.
Fjallað var um Akraneshöfn og
löndunarþjónustu þar í 10. tbl.
tölublaði Ægis 2002. Akranes-
bær lét prenta aukaupplag af
blaðinu og notaði sem kynning-
arefni á eigin vegum, auk þess
sem útbúið var dagatal í nafni
Akraneshafnar til að hafa með í
,,nýárspakkanum”. Gísli Gísla-
son, bæjarstjóri og hafnarstjóri á
Akranesi, segir að menn hafi
kunnað vel að meta sendinguna
og Skagamenn urðu greinilega
varir við jákvæð viðbrögð. Skips-
stjórnendur hringdu til að afla
freka upplýsinga og Gísli segir
ljóst að Akranes hafi náð því að
,,komast á kortið” sem möguleg-
ur löndunarstaður hjá einhverjum
þeirra. Hann lofaði þeirri áhöfn
veglegri rjómatertu í viðurkenn-
ingarskyni sem fyrst yrði til þess
að landa fiski á Skaganum í kjöl-
far kynningarátaksins.
Starfsemi hafnanna á Akranesi
og á Grundartanga verður að lík-
indum kynnt í sameiginlegum
bás á sjávarútvegssýningunni í
Kópavogi í haust. Núna í janúar
sl. var undirritaður samningur að
Akraneshöfn annist fram-
kvæmdastjórn Grundartanga-
hafnar í umboði stjórnar Grund-
artangahafna. Hafnarstjórinn á
Akranesi verði jafnframt hafnar-
stjóri á Grundartanga. Akranes-
höfn annast eftirlit með rekstri
hafnarinnnar, markaðssetningu,
gerð fjárhagsáætlana og undir-
búning framkvæmda svo nokkuð
sé nefnt. Klafi ehf. mun hins veg-
ar annast daglega stjórnum
Grundartangahafnar, eftirlit með
hafnarsvæðinu, móttöku skipa og
þjónustu við þau.
Skagamenn sendu viðskiptavinum
sínum dagatal 2002 og Ægi
Forsíða dagatals Akraneshafnar