Ægir - 01.01.2002, Blaðsíða 20
Þ O R S K E L D I
20
„Ketill Elíasson í Bolungarvík
hefur verið að gera tilraunir með
áframeldi á þorski í um sex ár og
við komum inn í þetta með hon-
um í hitteðfyrra og aftur í fyrra,“
segir Kristján G. Jóakimsson,
vinnslu- og markaðsstjóri hjá
Hraðfrystihúsinu-Gunnvöru í
Hnífsdal.
„Við höfum verið að veiða eins
til tveggja kílóa fisk og ala hann
áfram í kvíum í Skutulsfirði og
Álftafirði á loðnu eða síli. Menn
hafa verið að mæla vöxt á þorsk-
inum, ekki ósvipað og gert var í
námsverkefni tveggja stúdenta
við sjávarútvegsdeild Háskólans á
Akureyri og hér hafa fengist
ámóta niðurstöður, þ.e. að í ljós
hefur komið að þorskurinn vex
um 100-130% á fjórum til fimm
mánuðum,“ segir Kristján.
Síðastliðið vor hófst síðan til-
raun með mismunandi fóður fyrir
fiskinn og að því verkefni hafa
einnig komið Rannsóknastofnun
fiskiðnaðarins, Hafrannsókna-
stofnunin og Fóðurverksmiðjan
Laxá. Með tilrauninni hafa menn
viljað sjá hvort og þá hversu mik-
ill munur væri á vaxtarhraða
fisksins eftir því hvort hann væri
fóðraður á loðnu, þurrfóðri eða
tilbúnu blautfóðri, sem m.a. sam-
anstendur af rækjuskel, fiskaf-
skurði o.fl. Kristján segir að nið-
urstöður liggi ekki endanlega fyr-
ir, en að þessu verkefni þurfi að
vinna frekar.
Slátruðu tæpum 50
tonnum af þorski
Þorskurinn sem alinn hefur verið
áfram í kvíum á Skutulsfirði og
Álftafirði hefur verið veiddur á
króka í minni Ísafjarðardjúps og í
snurvoð norður í Aðalvík. „Þessar
Einar Már Gunnarsson, starfsmaður Hraðfrystihússins Gunnvarar í
Hnífsdal, fóðrar eldisþorsk á Álftafirði.
Ketill Elíasson og Hraðfrystihúsið-Gunnvör:
Vinna að áframeldi
á þorski í Skutulsfirði
og Álftafirði
Fyrstu seiðin framleidd 1994
Fyrstu 50 þorskseiðin voru framleidd hér á landi árið 1994 í Tilraunaeldisstöð Hafrann-
sóknastofnunar á Stað við Grindavík. Þar hafa síðan verið framleidd nokkur þúsund
þorskseiði á ári. Alls er búið að framleiða um 20.000 þorskseiði í stöðinni og hafa þau
verið notuð sem efniviður í um 20 sjálfstæð rannsóknaverkefni. Í fyrra voru þar fram-
leidd rúmlega 10.000 seiði.
Tilraunir í Stöðvarfirði
Á árinu 1996 var gerð tilraun með sleppingu um 700 þorskseiða úr kví í Stöðvarfirði.
Heimtur voru af skornum skammti úr þessari sleppingu og í lok ársins 1998 höfðu að-
eins um 4% seiðanna verið endurheimt.
Á sautján mánaða tímabili árin 1995 og 1996 var gerð athugun á því að fóðra villtan
þorsk í Stöðvarfirði. Markmiðið með þessari athugun var að kanna hvort tæknilega
væri mögulegt og fjárhagslega hagkvæmt að fóðra þorsk inni á fjörðum án þess að
setja hann fyrst í kvíar og spara þannig kostnað við söfnun og fjárfestingar í kvíum. Í
ljós kom að með hljóðmerkjum og reglubundinni fóðrun var mögulegt að venja
þorskinn á fóðrun þó að hann væri ekki króaður af á nokkurn hátt. Þeir fiskar sem tóku
fóðrið sýndu mikinn vaxtarhraða, eða svipað og hjá þorskum í kvíum. Niðurstöður at-
hugunarinnar benda til að það sé tæknilega mögulegt að auka vaxtarhraða hjá villtum
þorski með fóðrun.
Fr
óð
le
ik
ur
u
m
þ
or
sk
el
di
Mynd: Sverrir Pétursson