Ægir - 01.01.2002, Qupperneq 22
22
Þ O R S K E L D I
Þorskeldið hefur teygt anga sína
inn í þingsali því fyrir þinginu
liggja tvær tillögur til þingsá-
lyktunar sem tengjast þorskeldi.
Annars vegar hafa fimm þing-
menn Framsóknarflokks lagt
fram tillögu um áframeldi á
þorski og hins vegar liggur fyrir
þinginu tillaga sex þingmanna
Samfylkingarinnar um rannsókn-
ir á þorskeldi.
Áframeldi á þorski
Í tillögu framsóknarmannanna
Hjálmars Árnasonar, Ísólfs Gylfa
Pálmasonar, Kristins H. Gunn-
arssonar og Magnúsar Stefánsson-
ar, sem var lögð fyrir síðasta þing
en fékkst þá ekki útrædd, er gert
ráð fyrir að Hafrannsóknastofnun-
inni verði heimilað í tilrauna-
skyni að úthluta allt að 500
tonna þorskkvóta árlega næstu
fimm árin til áframeldis á veidd-
um þorski. Þessum aflaheimild-
um verði skipt í sjö jafna hluta og
dreift um landið til einstaklinga.
Jafnframt verði Hafró falið að
skrá og fylgjast með tilrauninni
og birta niðurstöður um reynslu
tímabilsins.
Í greinargerð með tillögunni
kemur fram að sú skoðun
tillöguflytjenda að um geti verið
að ræða byggðavæna aðgerð sem
„felur í sér að aflaheimildir geti
aukist í raun um allt að 20% frá
úthlutuðum heimildum.“
Þorskeldisrannsóknir
Í tillögu Samfylkingarþingmann-
anna Karls V. Matthíassonar,
Kristjáns L. Möller, Gísla S. Ein-
arssonar, Svanfríðar Jónasdóttur,
Össurar Skarphéðinssonar og Ein-
ars Más Sigurðarsonar er gert ráð
fyrir að fela sjávarútvegsráðherra
að hlutast til um að skipulegar
rannsóknir á þorskeldi frá klaki
til slátrunar verði hafnar, svo og
fjarða- og kvíaeldi á þorski verði
eflt og stutt, með það að mark-
miði að Íslendingar geti framleitt
eldisþorsk til útflutnings innan
fárra ára.
Bent er á í greinargerð með til-
lögunni að skortur á seiðum
standi stríðeldi á þorski fyrir þrif-
um, ótímabær kynþroski sé
vandamál sem og hátt lifrarhlut-
fall. Ekki hafi verið þróað nógu
skilvirkt fóður, þekking á atferli
þorsks í eldi sé takmörkuð, vöxt-
ur sé ekki nógu hraður, sjúkdóm-
ar hafi ekki verið rannsakaðir
nægjanlega og samspil eldis við
umhverfið og villta þorskstofna
sé óþekkt.
„Þorskeldi getur orðið mikil
lyftistöng fyrir landsbyggðina og
hafa ýmsir reynt fyrir sér í grein-
inni á undanförnum árum. Rétt
væri að nýta áhuga þeirra, þekk-
ingu og reynslu til samstarfs um
rannsóknir,“ segir orðrétt í grein-
argerð með þingsályktunartillögu
þingmanna Samfylkingarinnar.
Þorskeldistillögur
á Alþingi
Mjór er mikils vísir….
Enn sem komið er hefur framleiðsla á eldisþorski verið hverfandi lítil hér á landi. Á ár-
unum 1993 til 2000 mun hafa verið slátrað upp úr kvíum samtals um 126 tonnum af
slægðum þorski. Auk þessa má nefna að í tilrauninni með fjarðaeldi á þorski í Stöðvar-
firði 1995-1997 voru veidd um 33 tonn af þorski en 99 tonn af fóðri voru gefin í fjörð-
inn. Þá hefur verið selt úr Tilraunaeldistöð Hafrannsóknastofnunarinnar á Stað við
Grindavík eitt tonn árið 1999 og þrjú tonn árið 2000 af þorski sem klakið var út í stöð-
inni
Fr
óð
le
ik
ur
u
m
þ
or
sk
el
di
Mynd: Gunnar Larsen.
Óttar Már Ingvarsson, verkefnisstjóri í fiskeldi hjá Útgerðarfélagi Akureyringa,
er hér að fóðra þorskinn í kvíunum á Eyjafirði.