Ægir - 01.01.2002, Blaðsíða 39
39
Í Ú T L Ö N D U M
tækinu og því varð úr að ég ákvað
að slá til og starfa hjá þeim.
Reyndar hafði ég skömmu áður
byrjað að vinna hjá fyrirtækinu
Arctic Alaska, sem var þá stærsta
fyrirtækið á sínu sviði í Seattle,
en mér fannst atvinnutilboð
Rapp Hydema það áhugavert að
ég ákvað að fara til þeirra og áður
en ég vissi af var ég kominn til
móðurfélagsins í Noregi í starfs-
þjálfun. Þegar ég byrjaði hjá
Rapp árið 1987 voru þar aðeins
tveir starfsmenn og því var þetta
lítil rekstrareining. Við vorum til
að byrja með fyrst og fremst í því
að selja vélbúnaðinn, þ.m.t.
glussakerfi, en gerðum lítið við.
Það var vissulega mikil breyt-
ing fyrir mig að fara í land, en
þetta vandist vel. Ég var strax
töluvert mikið á ferðinni. Til
dæmis fór ég oft niður í Suður-
ríkin og setti þar niður Rapp-
kerfi, t.d. í Alabama og Miss-
isippi. Einnig fór ég töluvert til
Suður-Kóreu. Vöxtur fyrirtækis-
ins var fljótt mjög mikill og árið
1990 opnuðum við einnig skrif-
stofu í Alaska. En fljótlega eftir
1990 minnkaði sala á nýjum
kerfum í takt við samdrátt í
skipasmíðum. Við þessum sam-
drætti brugðust við með því að
færa fyrirtækið meira úr því að
vera sölufyrirtæki yfir í að vera
þjónustufyrirtæki. Þessi breyting
gekk mjög vel. Á skömmum
tíma fjölgaði starfsmönnum og
þeir voru um 60 talsins um
tíma.”
Framkvæmdastjóri 1994
Árið 1994 tók Jóhann við fram-
kvæmdastjórn hjá Rapp Hydema
í Seattle og því starfi gegnir hann
enn. Starfsmennirnir eru að jafn-
aði 35-40 og því eru umsvifin
umtalsverð. Langstærsti markað-
ur fyrirtækisins er í Bandaríkjun-
um. Höfuðstöðvarnar eru sem
fyrr í Seattle en einnig er fyrir-
tækið með skrifstofu í Dutch
Harbor í Alaska og sömuleiðis er
Rapp Hydema U.S. með litla
söluskrifstofu í Suðurríkjunum.
Auk Bandaríkjanna þjónar Rapp
viðskiptavinum í austurhluta
Asíu, t.d. á Sachalineyju og
Kamtsjatka-svæðinu í Rússlandi.
„Ég ferðast mikið vegna vinn-
unnar, enda tek ég ennþá virkan
þátt í að selja vörurnar. Mér
finnst mjög gott að fara út á með-
al viðskiptavinanna og ná per-
sónulegu sambandi við þá. Það
myndi ekki eiga við mig að sitja
öllum stundum á skrifstofunni í
Seattle,” sagði Jóhann. Auk þess
að selja Rapp-framleiðsluvörurnar
um borð í togskip er þær einnig
m.a. að finna um borð í olíuskip-
um og í tengslum við námuiðn-
að. Bróðurpartur framleiðsluvar-
anna kemur frá Noregi, en einnig
er hluti þeirra framleiddur í
Seattle.
Þeim stóra landað
Þegar Ægir hitti Jóhann að máli í
Reykjavík á dögunum var hann
að koma frá Missisppi í Banda-
ríkjunum þar sem hann var að
ganga frá stærsta samningi sem
Rapp Hydema í Bandaríkjunum
hefur gert til þessa. Um er að
ræða spilbúnað í fjögur NOAA-
rannsóknaskip og má meta samn-
inginn á um einn milljarð ís-
lenskra króna. „Þetta er mjög
mikilvægur samningur fyrir okk-
ur. Við buðum í þetta verkefni en
vorum reyndar ekki með lægsta
tilboðið. En það sem gerði vænt-
anlega útslagið var að við höfum
starfað lengi með NOAA og það
samstarf hefur gengið mjög vel.”
„Mér finnst mjög gott að fara út á meðal viðskiptavinanna og ná persónulegu
sambandi við þá. Það myndi ekki eiga við mig að sitja öllum stundum á
skrifstofunni í Seattle.“
Hér er verið að landa úr Ocean Bounty
yfir í japanskt flutningaskip í Dutch
Harbor í Alaska.
Jóhann og eiginkona
hans ásamt þremur
börnum þeirra. Frá
vinstri: Kristín,
Theresa Sigurjonsson,
eiginkona Jóhanns,
Jóhann Sigurjónsson,
Jóhann Pétur og
Sarah.