Ægir - 01.01.2002, Blaðsíða 41
V É L A R
41
Vélaland ehf. hefur einkaleyfi hér
á landi í sölu á Mitsubishi skipa
og iðnaðar-vélum, sem er víða að
finna um borð í íslenskum fiski-
skipum. Ekki síst eru ljósavélarn-
ar frá Mitsubishi vinsælar og
töluvert er af þeim í hérlendum
fiskiskipum.
„Við seljum aðalvélar frá
Mitsubishi, en okkar sterkasta
hlið hefur verið Mitsubishi-ljósa-
vélar eða rafstöðvar. Á undanförn-
um árum höfum við staðið mjög
sterkt í þeim efnum. Þessar vélar
eru af stærðinni frá 5 kílóvöttum
upp í 1,6 megavött. Ég get nefnt
að við höfum nýverið sett þrjár
ljósavélar sem eru um og yfir
þúsund kílóvött um borð í Vil-
helm Þorsteinsson EA, Þorstein
EA, Mánaberg ÓF og Antares
VE,“ sagði Hjalti. Hann segir að
stærstu Mitsubishi aðalvélarnar í
íslenskum fiskiskipum séu á bil-
inu 1000 til 1300 hestöfl. „Ný-
lega seldum við allan vélbúnað,
bæði aðalvélar og ljósavélar, í
skip sem Ósey í Hafnarfirði er að
smíða fyrir útgerðir í Færeyjum,“
segir Hjalti Sigfússon, sem stýrir
skipaþjónustunni hjá Vélalandi
ehf.
Keyptu dísel- og raf-
magnsverkstæði af
Ormsson
Hjalti Sigfússon starfaði áður hjá
MD-vélum, sem fyrir stuttu síðan
sameinaðist rekstri Vélalands – Þ.
Jónssonar & Co. undir nafninu
Vélaland ehf. „Með þessari sam-
einingu bættist við hjá Vélalandi
sú starfsemi sem ég kom lengi að
hjá MD-vélum og lýtur að við-
gerðum á stærri vélum og túrbín-
um. Um síðustu áramót stækkaði
Vélaland ehf. enn frekar þegar við
keyptum dísel- og rafmagnsverk-
stæðið af Bræðrunum Ormsson
og tókum jafnframt yfir þjónustu
fyrir Bosch. Þetta þýðir að nú
erum við komnir með samfellt
svið fyrir viðgerðir á díselvélum
og þar með túrbínum og olíu-
kerfum,“ segir Hjalti. „Við erum
núna með alla þessa starfsemi
undir einu þaki að Vagnhöfða 21
í 1000 fermetra húsi. Starfsemin
er sem sagt orðin mjög fjölbreytt
hér og starfsmennirnir eru 25
talsins.“
Sérhæfð
viðhaldsþjónusta
Auk Mitsubishi selur Vélaland
fjölmargar aðrar vörur í vélarrúm
skipa. Nefna má varahluti fyrir
diesel brennsluolíukerfi og af-
gastúrbínur Stamford og Marat-
hon rafala og Mekanord skrúfu-
gíra. Einnig er fyrirtækið með
smurstöð, varahlutaverslun, bíla-
og vélaviðgerðir, diesel, rafmagns
og túrbínudeildir svo eitthvað sé
nefnt. „Við erum með mikla sér-
hæfingu í vélaviðgerðum, t.d.
hvað varðar stillingu olíuverka,
að renna sveifarása og fleira. Það
er kannski ekki hægt að segja að
við séum í almennum viðgerðum,
fyrst og fremst erum við í sér-
hæfðum viðhaldsverkefnum,”
segir Hjalti Sigfússon.
„Um síðustu áramót
stækkaði Vélaland
ehf. enn frekar þegar
við keyptum dísel- og
rafmagnsverkstæðið af
Bræðrunum Ormsson
og tókum jafnframt
yfir þjónustu fyrir
Bosch. Þetta þýðir að
nú erum við komnir
með samfellt svið fyrir
viðgerðir á díselvélum
og þar með túrbínum
og olíukerfum,” segir
Hjalti Sigfússon hjá
Vélalandi.
Vélaland ehf. í Reykjavík:
Selja vélar frá
Mitsubishi
Mynd: Sverrir Jónsson