Ægir - 01.01.2002, Page 44
44
N Ý T T F I S K I S K I P
Ármann Ármannsson, fram-
kvæmdastjóri Ingimundar hf.,
sem gerir Helgu RE út, segist
vera vel sáttur við útkomuna,
þetta sé vel smíðað og glæsilegt
skip. „Já, þetta er mjög fallegt
skip og ég fæ ekki betur séð en að
vel hafi verið vandað til smíðinn-
ar og alls frágangs. Ég tel að lyk-
ilatriðið í því hafi verið að við
höfðum eftirlitsmenn á smíðastað
til þess að fylgjast með því að allt
væri unnið vel og samviskusam-
lega eftir settum reglum,“ sagði
Ármann.
Á veiðar um
miðjan febrúar
Helga RE-49 tekur um 65-70
tonn í körum í lest (lestin rúmar
184 440 lítra ker) og segir Ár-
mann að ætlunin sé að selja afla
hennar á mörkuðum og í gáma.
„Við erum með kvóta upp á um
1600 tonn í þorskígildum, sem
ég held að megi segja að sé mjög
gott fyrir ekki stærra skip,“ segir
Ármann.
Ellefu manns verða í áhöfn
Helgu RE-49 og verður Geir
Garðarsson skipstjóri. Gert er ráð
fyrir að Helgan fari á veiðar um
miðjan febrúar þegar öllum loka-
frágangi verður lokið.
Smíði Helgu RE tók rúm tvö
ár í Kína, sem er meira en helm-
ingi lengri smíðatími en gert var
ráð fyrir. „Smíði svona fiskiskipa
virtist vera nýmæli fyrir Kínverj-
ana, enda var þessi skipasmíða-
stöð áður fyrst og fremst í því að
smíða herskip. En Helgan er síð-
ust í röð íslenskra fiskiskipa sem
stöðin smíðaði í þessari lotu og
ég tel að Kínverjarnir hafi aflað
Vel smíðað og
glæsilegt skip
- segir Ármann Ármannsson, framkvæmdastjóri Ingimundar hf.
Nýjasta skip flotans, ferskfiskskuttogarinn Helga RE-49, kom til heima-
hafnar í Reykjavík 23. janúar sl. eftir hálfs annars mánaðar siglingu frá
Kína. Skipið var smíðað í Huangpu Shipyard skipamíðastöðinni í Gu-
angzhou, þar sem nokkur skip sem bæst hafa á undanförnum mánuð-
um í íslenska fiskiskipaflotann hafa einnig verið smíðuð. Síðast kom
Björn RE frá Guangzhou, en Helgan er smíðuð eftir sömu teikningu og
er um flest eins og Björn RE.
Mynd: Sverrir Jónsson.