Ægir - 01.01.2002, Síða 45
45
N Ý T T F I S K I S K I P
sér þeirrar reynslu sem þurfti til
að skila vandaðri smíði á Helg-
unni,“ segir Ármann Ármanns-
son.
Aflvísir skipsins
undir 1600
SkipaSýn ehf. í Reykjavík hann-
aði Helgu RE-49. Sævar M. Birg-
isson, skipatæknifræðingur hjá
SkipaSýn, segir að við hönnun á
Birni RE og Helgu RE hafi í
raun verið farið inn á töluvert
nýja braut sem hönnuðir fyrir-
tækisins bindi miklar vonir við í
framtíðinni. Grunnhugsun í
hönnuninni hafi verið sú að afl-
vísir skipsins væri lægri en 1600,
en nánar tiltekið er hann 1598 í
Helgu RE. „Skrokklagið á þess-
um skipum er mjög sérstakt og
við bindum miklar vonir við
þetta form á togskipum í fram-
tíðinni. Að hluta til vorum við
líka með þetta skrokklag í haf-
rannsóknaskipinu Árna Friðriks-
syni. Kjölur skipanna er mjög
djúpur og vélin liggur óvenju
neðarlega og er hugsunin ekki
síst sú að skipin séu mjög rás-
föst,“ segir Sævar.
Aðgerðarkerfi
Helga RE-49 er 28,9 m togskip,
útbúið til botntrollsveiða.
Vinnslukerfi skipsins tekur mið
af því að gera að, flokka og
geyma ferskan fisk. Micro hf. í
Kópavogi smíðaði aðgerðarkerfi
skipsins og hannaði í samstarfi
við eiganda þess og SkipaSýn.
Eins og áður segir var skipið
smíðað í Guangzhou í Kína og
var afhent Ingimundi hf. 1. des-
ember 2001. Þann 9. desember
sigldi skipið úr höfn í Gu-
angzhou áleiðis til Reykjavíkur.
Helga er flokkuð samkvæmt
stöðlum Siglingastofnunar og
Det Norske Veritas,flokkur
+A1A, Stern Trawler ICE-C.
Bolur skipsins er styrktur sam-
kvæmt ICE-B.
Vindubúnaður
Allur vindubúnaður í skipið er
frá Gróttu hf. af gerðinni Rapp
Hydem. Þessi spil eru: Tvær tog-
vindur TWS 5020 - átak 27
tonn, fjórar grandaravindur SW
1200 - átak 9,5 tonn, pokavinda
GW-680 - átak 6,7 tonn, úthal-
aravinda GW-680 - átak 6,7
tonn, tvær bakstroffuvindur GW
200 - átak 1,9 tonn, gilsavinda
GW-1200 - átak 9,5 tonn,
nettromma/gilsavinda GW-1200
- átak 9,5 tonn og akkerisspil
MW-7,5/201. Með vindunum
fylgir fullkomin „Auto-troll“
búnaður af tegundinni PTS-
Pentagon frá Rapp Hydema.
Fjarskiptabúnaður
Eftirfarandi fjarskiptabúnaður frá
Brimrúnu hf. er um borð í Helgu
RE:
Furuno A-2 GMDSS fjar-
skiptaborð, Furuno FS-1562-25
MF/HF talstöð, Furuno DSC-6,
stjórnstöð fyrir stafrænt valkall,
Furuno FM-8500 VHF talstöð
með stafrænu valkalli, Furuno
PR-850 spennugjafi, Furuno
Felcom-12 Immersat-C gervi-
tunglafjarskiptabúnaður, Furuno
FM-2520 VHF talstöð, Furuno
FAX-207 veðurkortamóttakari,
Furuno N X-500 veðurskeyta-
móttakari, Skanti VHF-9110
neyðarhandtalstöðvar og Mc
Murdo E3 EPIRB neyðarbauja.
Siglingatæki
Siglingatæki í skipinu eru líka af
gerðinni Furuno frá Brimrúnu hf.
Tækin eru eftirfarandi:
Furuno FR-2115 X-band
ARPA ratsjá, Furuno ARP-26
mini-ARPA fyrir FR-2115 ratsjá,
Við óskum útgerð og áhöfn Helgu
RE-49 til hamingju með nýtt og
glæsilegt skip
Sími 562 4160
Fax 562 6042
Grótta ehf
Fiskislóð 77