Ægir - 01.01.2002, Side 50
50
Geirnyt er hausstór og fremur sérstakur brjóskfiskur. Kjaftur
hennar er smár og liggur neðan á miðjum haus og í honum eru
samvaxnar tennur. Geirnytin er þykkust þar sem haus og bolur
mætast og mjókkar aftur og endar í löngum mjóum halaþræði
sem gengur úr sporði. Bakuggar eru tveir, sá fremri er hár, þrí-
strendur og með hvassan gadd fremst en aftari bakuggi er lang-
ur og lágur. Raufaruggi er einnig lágur og eyruggar mjög stór-
ir. Aftur úr kviðuggum hænganna gengur þrískiptur limur og á
einum þeirra er angi með broddóttum hnúð á enda. Roð er slétt
og hreisturlaust en rák er greinileg frá hala og fram á haus þar
sem hún skiptist í margar greinar.
Geirnytin er brúnleit að ofan, silfurgrá eða bronslituð á hlið-
um en hvít að neðan. Hún getur orðið nokkuð stór, allt að 150
cm að lengd en lengsta geirnyt sem veiðst hefur hér við land var
110 cm löng. Algengust er hún þó um 70-95 cm.
Heimkynni geirnytjar er í Norðaustur-Atlantshafi frá Norð-
ur-Noregi og suður með strönd Noregs inn í Kattegat og
Skagerak. Hún er í norðanverðum Norðursjó, vestan Bret-
landseyja, við Færeyjar og Ísland. Hún er í Biskajaflóa, við Spán
og Portúgal, inn í Miðjarðarhafið og allt suður til Marokkó,
Asóreyja og Madeira.
Við Ísland er geirnyt við suðaustur-, suður- og suðvestur-
ströndina, vestur í Breiðafjörð.
Geirnyt er botnfiskur sem heldur sig á leirkenndum botni og
veiðist á 50-1000 metra dýpi. Fæða hennar er aðallega alls kon-
ar skeldýr, krabbadýr og ormar en einnig slöngustjörnur, sæfífl-
ar og smáfiskar.
Hrygning á sér stað að vori eða sumri og eggin festast við
botninn. Við klak er afkæmið um 11 cm og líkist foreldrum
sínum.
Áður fyrr töldu sumir geirnytina eitraða og var henni oftast
nær hent úr afla. Innyfli og lifur eru mjög feit og gætu verið
varhugaverð til neyslu. Á síðari árum hefur geirnyt verið hirt en
aflinn ekki mjög mikill. Reynt hefur verið að koma henni í sölu
erlendis og hafa Frakkar verið aðal kaupendurnir.
Chimaera monstrosa
Geirnyt
F R Ó Ð L E I K U R O G S K E M M T U N
K R O S S G Á T A N