Ægir - 01.06.2002, Blaðsíða 35
ur sjálfvirkt í innmötunarkar og
fer þaðan í tvo flokkara frá Style
ehf. Kerfið flytur fiskinn síðan
áfram í tvískipta mótttöku og
þaðan að fjórum Baader flökunar-
vélum. Að flökun lokinni fara
flökin í tvískipt safnker frá Skag-
anum hf. og úr þeim er matað inn
á pökkunarlínu. Þar er flökunum
pakkað í pönnur og að frystingu
lokinni fara pönnurnar í sjálfvirk-
an útslátt og áfram að brettunar-
línu, plöstun og þaðan niður í
frystilest.
Skaginn hf. annaðist fram-
leiðslu á áðurnefndu söfnunarkari,
pökkunarlínu, geymslustöð fyrir
tómar og fullar pönnur, pönnu-
vagni, sjálfvirkri afhleðslustöð
fyrir pönnuvagn, sjálfvirkum
búnaði fyrir útslátt og framfærslu
á tómum og fullum pönnum.
Þorsteinn EA hefur þegar farið
fyrstu veiðiferðirnar á síld og
reynist búnaðurinn vel.
Skipstjóri er Hörður Guð-
mundsson, Finnbogi Böðvarsson
er 1. stýrimaður og Friðrik Sig-
urðsson yfirvélstjóri.
VGK - Akureyri óskar útgerð og áhöfn
Þorsteins EA 810
til hamingju með glæsilegt skip
Þorsteinn EA 810
Skipagata 9 • 600 Akureyri
Sími: 461 4500 • Fax: 461 4501
Mánaberg ÓF-42Þorsteinn EA-810
Óskum útgerð og áhöfn
Þorsteins EA-810 og Mánabergs ÓF-42
til hamingju með glæsileg skip
Kælismiðjan Frost ehf. Miðhrauni 22 - 210 Garðabær - Sími 544 8220 - Fjölnisgötu 4b - 603 Akureyri - Sími 461 1700
35
S K I PA S T Ó L L I N N