Dagblaðið Vísir - DV - 16.11.2005, Page 24

Dagblaðið Vísir - DV - 16.11.2005, Page 24
24 MIÐVIKUDACUR 16. NÓVEMBER2005 Útivist & ferðalög DV Hættulegustu staðir í heimi í DV á miðvikudögum Þótt þú sért spennufíkill skaltu samt halda þig fjarri Afganistan í bráðinni. Landið hefur verið valið hættulegasti staður á jörð- inni árið 2005. Morð og mannrán eru þar daglegt brauð auk þes sem hryðju- verkaárásir og jarðsprengj- ur gera ferðlög um landið Nýliðaferðir 4x4 18.-20. og 25.-27. nóv. Að þessu sinni verða farn- ar tvær nýliðaferðir á vegum klúbbsins. Ferðirnar verða í höndum Trúðagengisins og Gemlinganna. Ferðirnar verða farnar hvor sína helg- ina. Ferð Gemlinganna verð- ur farin í Setrið 18.-20. nóv- ember og Trúðaferðin til Hveravalla helgina 25.-27. nóvember. Kynning á Fjallasporti 17. nóv. Fjallasport sérhæfir sig í sölu aukahluta fyrir jeppa, breytingum á jeppum og úti- vistarvörum. Þann 17. nóv- ember kl. 20 ætlar fyrirtækið að kynna þjónustu sína og vörur fyrir Útivistarfélögum að Viðarhöfða 6. Kynningin er á vegum jeppadeildarinn- Aðventuferð í Bása 25.-27. nóv. Aðventu- og jólastemning í Básum á vegum Ferðafélags- ins Útivistar. Gönguferðir, jólaföndur, jólahlaðborð, kvöldvaka. Kjörin ijölskyldu- ferð. í ísklifurnámskeið fyrir byrjendur 26. nóv ísklifumámskeið fyrir byrj- endur verður fyrst bóklegt innanhúss í húsakynnum ísalp í Skútuvogi 1. Þar verður farið yfir hnúta, kynnt hugtök og búnaður í ísklifri o.fl. Mæt- ing í bóklega hlutann verður miðvikudag 23. nóv. kl. 20. Laugardaginn 26. nóv. verður síðan haldið út í ísinn. Þar verður kennt að klifra, tryggja línur og nota ísskrúfur og margt fleira. Farið verður í ís í nágrenni Reykjavíkur þar sem aðstæður eru bestar. Verð er 15 þús. kr. en 10 þúsund kr. fyrir félaga í ísalp sem hafa greitt árgjald sitt. afar hættuleg. Fflabeins- ströndin er einnig ofarlega yfir hættuleg- ustu staði heimsins en landið hefur logað í átök- um síðan 1999. Aðrir hættulegir viðkomustað- ir eru Kongó, Haítí, Irak, Kyrgisistan, Libería og Zimbabwe. Utrnst um Myrkrið notaö til að lyfta ser Hildigunnur Jörundsdótt- ir, verkefnisstjóri hátíöar- innar „Hér geta allir fundið sér eitthvad við sitt hæfi en hátiðin er i rauninni hugsuð sem fjölskylduskemmtun." Jr webpage www ~ . 'lfe ■ - V*v . • , • V ú'y • • Hátíðin Dagar myrkurs fer fram á öllu Austurlandi um helgina. Hildigunnur Jörundsdóttir. verkefnisstjóri hátiðar- innar, segir búast við mikilli þátttöku enda fjölbreytt og áhugaverð dagskrá í boði. Meðal dagskrárliða er afturganga, faðirvorahlaup, ástareldur, kyndla- ganga og kvöldmjaltir. iaes. ', - 7'— -t * •;„. . A ■asts. „Með þessari hátíð erum við að nýta myrkrið á skemmtilegan hátt enda má sjá á dagskránni að það eru margar leiðir til að skemmta sér í myrkrinu, allt frá því að segja draugasögur í að upplifa rómantík," segir Hildigunnur Jörundsdóttir, verkefnisstjóri hátíðarinnar Dagar myrkurs sem fer fram á Austurlandi yfir helgina. Hátíðin er nú haldin í fimmta skipti og er á öllu Austur- landi, alveg frá Vopnafirði niður á Djúpavog. Faðirvorahlaup og aftur- ganga „Við Austfirðingar erum að koma saman og í rauninni hylla myrkrið og nota það til að skemmta okkur í skammdeginu," segir Hildigunnur og bætir við að það séu í rauninni engin takmörk fýrir því hvað fólk megi gera. „Við höfum fengið margar frábærar hugmyndir frá fólki hvernig hægt er að nota myrkrið til að lyfta sér upp. Til dæmis verður afturganga á Seyðis- firði, faðirvorahlaup á Djúpavogi, kveiktur ástareldur á Eskifirði, kyndlaganga á Egilsstöðum, kvöld- mjaltir á Norðfirði og handverks- sýningin Auður Austurlands á Egils- stöðum." Rómantískt og kósí í myrkr- inu Hildigunnur segir hátíðina fara sístækkandi. Hún hafi enda tekist afar vel í fyrra og þar af leiðandi sé þátttakan enn betri í ár. „Brottflutt- ir Austfirðingar hafa verið að koma til okkar og taka þátt í þessu með okkur enda er hátíðin að skapa sér fastan sess hér í haustundirbún- ingnum og vekur alltaf meiri at- hygli," segir hún og bætir við að Góð ráð fyrir flugið Faröu á klósettiö áöur en þú stigur um borö Jafnvel þótt þú þurfir ekki að pissa. Flugþjón- arnir færa þér drykki innan skammst og þá er gott að byrja með tóma blöðru. Þaö er fátt meira pirrandi en sessunautur sem þarf margar ferðir á klósettið. Haföu eitthvað meö þér um borö Taktu með þér bók, Mp3-spiiara eða kross- gátur. Efþú notar tímann ieitthvað skemmtilegt viröist ferðin taka mun styttri Vertu búln(n) aö gralða þár Farþeginn bak við þig hefur liklega nógu miklar áhyggjur afkjúklingnum sem hann er að borða án þess að hann þurfi að hafa áhyggjur afhárinu afþér. Þvoöu þár um hendurnar Vonandi þarfekki að minna neinn áaðþvo sér um hendurnar eftir baðferðir. Iflugvélum er alveg nóg afsýklum i loftinu án þess að þú sért að bera þá afklósettinu. Vertu í skónum Gerðu hinum farþegunum það til geðs jafn- vel þótt sokkarnir þínir geti verið ágætir i að verka þvagið afklósettisgólfinu. Þótt þú sért orðin(n) ónæm(ur) fyrir táfýlunni eru með- farþegar þinir það ekki. Mundu eftir dótinu þínu Efþú geymir tösku eða jakka í hólfinu fyrir ofan sætin skaltu muna eftirað gripa það meö þegar flugvélin lendir. Efþig vantar dót- ið i loftinu skaltu passa þig á að missa pok- ana ekki á höfuö annarra farþega. Ekki skilja heldur eftir rusl i vasanum eða á gólfinu. Flugfreyjurnar hafa nóg að gera við að und- irbúa næsta flug.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.