Símablaðið - 01.01.1959, Blaðsíða 12
þessarar kennslu, því var loftskeytamönn-
um stofnunarinnar ekki líka gefinn kost-
ur á þessari kennslu samtímis?
En standi nú síminn ekki straum af
kostnaðinum við þessa kennslu, (kannske
er þar um sjálfboðavinnu að ræða?), lá
þá ekki beint við að bjóða loftskeyta-
mönnum stofnunarinnar hana með þeim
skilyrðum, að þeir bæri kostnaðinn á sama
hátt og hinn útvaldi?
Eða er það orðið svo í þessari stofnun
(sbr. fulltrúann hans Elíasar), að yfir-
menn hennar komi hingað og þangað auga
á slík ofurmenni utan símans, (innan gæsa-
lappa), að til að krækja í þau, vilji þeir
vinna það til, að lítilsvirða sína eigin
starfsmenn og stofna til áhjákvæmilegrar
úlfúðar milli hennar og starfsmannanna?
Svo vil ég nota tækifærið og spyrja op-
inberlega þeirrar spurningar, sem nú er
á hvers manns vörum, sem nokkuð hugs-
ar um félagsmál og hag stofnunarinnar:
Er starfsmannaráð Landssímans dautt?
Hver eða hverjir hafa áhuga á að drepa
það? Er Landssímastjóra Ijóst, hvernig
starfsemi ráðsins er komið? Ber honum
ekki skylda til að grípa fram í, hér eins og
alls staðar þar í stofnuninni, sem menn
vanrækja að gera skyldu sína, og bregðast
trúnaði?
Eru okkar ágætu fulltrúar í starfs-
mannaráði Landssímans, Jón Kárason,
Andrés Þormar og Agnar Stefánsson orðn-
ir það skaplausir, að þeir láti bjóða síma-
mannastéttinni, og ég vil segja stofnun-
inni, að starfsmannaráð Landssímans, sem
var og á að vera öðrum opinberum stofn-
unum til fyrirmyndar, sé látið deyja
drottni sínum?
Og út með það, þið, sem til þekkið:
Hvað liggur á bak við þetta?
Orri.
4 SÍMABLAÐIÐ
AtkuqaAewd
þá Atjórw
Stjórn F. Í.S. þykir ástæða til að láta nokk-
ur orð fylgja þessari grein.
Það er rétt, að umsóknir um stöðu við
Loftskeytastöðina i Reykjavik hafa ekki ver-
ið lagðar fyrir starfsmannaráð Landssím-
ans, og félagsstjórn hefur ekki borizt nein
viðunandi skýring á þvi. Fundir i starfs-
mannaráði hafa ekki verið haldnir mánuðum
saman, svo ekki hefur gefizt tækifæri til að
ræða málið þar. Hins vegar gerði stjórn F.
Í.S. fyrirspurn til Landssimastjóra, skv. fyr-
irmælum fálagsráðs í bréfi til hans 17. okt.
s.l. um þetta mál. í því sama bréfi voru
honum send mótmæli félagsráðs útaf setningu
1. fl. fulltrúa við Birgðavörzluna. Því bréfi
hefur ekki verið formlega svarað, og -alls
engu fyrirspurninni um veitingu stöðunn-
ar við Tfa. Út af því, sem í greininni segir
um starfsmannaráð Landssmans vill stjórn-
in taka fram, að henni er það ljóst, að hún
og fulltrúar félagsins í ráðinu bera nokkra
ábyrgð á því, að fundir hafa ekki verið
haldnir svo lengi, sem raun er á, að þvi
leyti sem þessir aðilar hafa aðstöðu til að
knýja fram regluleg fundarhöld, og máske
kemur að því að svo verði að gera, þegar
það liggur skýrara fyrir liver hin raunveru-
lega orsök til niðurfellingar funda í ráðinu
er. En í lengstu lög hafa þessir aðilar vilj-
að forðast aðgerðir, sem gætu spillt varan-
lega fyrir góðri samvinnu í ráðinu og sam-
búð símastjórnarinnar og F. I. S.
En umræður um þetta mál á aðalfundi F.
Í.S. og á fundum Félagsráðs liafa leitt í ljós
að félagsmenn vilja ekki una lengur þvi á-
standi, sem nú er.
Það síðasta, sem gerzt liefur í þessu er,
að 4. þ. m. skrifaði framkvæmdastjórn for-
manni starfsmannaráðs bréf það, sem fer
hér á eftir, en við því hefur enn ekki bor-
izt svar. Verður nú ekki dregið lengur að
fara þær leiðir, sem nauðsyn krefur, til að
tryggja eðlilega starfsemi starfsmannaráðs
i framtíðinni.
Stjórn F. í. S.