Símablaðið - 01.01.1959, Qupperneq 13
Bréf framkvæmdastjórnar F.Í.S.
til formanns Starfsmannaráðs Landssímans.
Reykjavík, 4. maí 1959.
Framkvæmdarstjórn F.f.S. leyfir sér hér
með að tjá yður, eftir endurteknar umræður
í félagsráði þar að lútandi — að félagið lítur
það mjög •alvarlegum augum, liversu óreglu-
legir fundir hafa verið í starfsmannaróði
undanfarin ár, og nú algerlega fallið niður
síðan í nóvember 1958.
Félagsráð lítur svo á, að með þessu sé
stefnt að því að veikja vettvang, sem öllu
fremur er líklegur til að halda uppi nauð-
synlegri samvinnu milli símastjórnarinnar
og F.Í.S. gagnkvæmu trausti og skilningi á
sjónarmiðum hvors annars.
Þrátt fyrir ólík sjónarmið í ýinsum þeim
málum, sem ráðið hefur fjallað um, hefur
það vakið traust símamannastéttarinnar og
meiri öryggiskennd gagnvart meðferð kjara-
mála hennar, ekki sízt á það við um stöðu-
veitingar. Það vill einmitt nú svo til, að með-
ferð þriggja slíkra mála, hefur á síðustu
mánuðum veikt þetta traust, en það er sú
aðferð að ráða menn utan stofnunarinnar í
stöður, sem fjöldi manna innan stofnunar-
innar er hæfari í, svo sem er um fulltrúa-
stöðu hjá birgðaverði landssimans, í öðru
lagi að setja uten stofnunar loftskeytamann
í auglýsta símritarastöðu við Loftskeyta-
stöðina í Reykjavík, og ganga þar fram
hjá símriturum, sem hafa margra ára þjón-
ustutíma hjá stofnuninni, í þriðja lagi drátt-
ur á því að auglýsa til umsóknar stöðu yfir-
manns við endurskoðun Landssímans, sem
er staða á launalögum, gömul og rótgróin.
F.Í.S. lítur svo á, að það sé ekki eingöngu
hagsmunamál símamannastéttarinn'ar, að
spornað sé við því að veikja áhrif og traust
starfsmannaráðs, heldur væri það stofnun-
inni til mikils hnekkis.
Það telur einnig, að slíkur vettvangur i
rekstri opinberra stofnana sé heiltevænleg-
ur — og að stefna beri að stofnun slíkra
ráða, eins og tíðkast hjá nágrannaþjóðum
oklcar, og ber félaginu skylda til að láta ekki
þá góðu reynslu, sem fengizt hefur af starfs-
maunaráði Lundssimans renna út i sandinn.
Framkvæmdastjórn F.Í.S. væntir þess, að
fundir starfsmannaráðs hefjist nú þegar á
ný, og verði haldnir reglulega framvegis.
Virðingarfyllst,
f. h. framkv.stj. F.Í.S.
Jón Kárason
form.,
Agnar Stefánsson.
★
Endurskoöun Reglugerðar
um launakjör á 1. fl. B. stöövum
í nefnd þessa hafa jafnan verið skipaðir
3 menn, 2 tilnefndir af ráðherra en 1 af R.S.
R.B.
Félagsdeild símastj. á 1. fl. B. stöðvum
hafði ítrekað gert samþykktir um það, að
þessi endurskoðun færi fram í starfsmanna-
ráði Landssimans og F.Í.S. stutt það.
Nú varð sú breyting á eftir mikið þóf, að
i nefndina voru skipaðir 6 menn, þrír frá
pósti og síma, þeir Gunnlaugur Briem póst-
og símamálastjóri, Einar Pálsson skrifstofu-
stjóri og Pétur Eggerz póstfulltrúi, — en eft-
ir tilnefningu B.S.R.B þeir Andrés Þormar
aðalgjaldkeri, Matthias Guðmundsson póst-
fulltrúi og Ólafur Kvaran ritsímastjóri.
Áður en nefndin kom saman hafði póst-
og shnamálastjóri leyst af hendi mikið und-
irbúningsstarf og lagt nýjan grundvöll að
endurskoðuninni, sem svo var að miklu leyti
byggt á. Hin nýendurskoðaða reglugerð
markar ný og merk tímamót í sögu kjara-
mála póst- og símamanna, því aldrei fyrr
hafa i einu skapast svo margir framtiðar-
möguleikar fyrir einstaklinga hennar, sem
flestir hafa að engu liaft að keppa umfram
það sæti, sem þeir þegar hafa lent í.
Er þessi endurskoðun Ijóst dæmi um þýð-
ingu góðs og hreinskilins samstarfs beggja
aðila í kjaramálum stéttarinnar. Má það fyrst
og fremst þakka afstöðu póst- og simamála-
stjóra eftir að samkomulag var orðið um
skipan nefndarinnar, og undirbúningi hans
á málinu. — Væri óskandi að hann tæki jafn-
an á málum stéttarinnar af sama raunsæi
og sanngirni.