Símablaðið - 01.01.1959, Síða 16
HITT
ÞETTA
Töluvert skemmtanalíf hef-
ur verið í félaginu sl. ár. —
Skemmtinefud sá um árshátíð,
jólatrésskemmtun fyrir börn
félagsmanna og nokkrar fleiri
skemmtanir. Enn fremur starf-
aði tafl- og spilaklúbbur innan
félagsins með ágætum árangri.
Þá hefur sú nýbreytni verið
tekin upp, að félagsdeildirnar
í Reykjavík hafa hver i sinu
lagi efnt til þorrablóta, sumar-
fagnaðar og annarra skemmti-
kvölda. Hafa þau verið með
miklum myndarbrag og i þjóð-
legum stíl, m. a. matur borinn
fram í trogum. Slík skemmti-
kvöld ættu deildirn’ar úti á
landi einnig að taka upp.
BOTNAR
Beztu botnarnir við visna-
upphöfin í jólablaðinu birtast
hér ó eftir með feitu letri. —
Höfundur þeirra er Hjalti
Jónsson, Hólum, A.-Skafta-
fellssýslu.
Allt, sem hryggir aðra menn
auki og bæti sjálfs þín hag.
Væri svo, sem ekki er enn,
aldrei sæi ég glaðan dag.
Syndin á mig sækir.
Svanni ögrar manni.
Flagð í net sitt flækir
flónin oft með sanni.
8 SÍMABLAÐIf)
SÍMAMAIMIMS
Þegar staldrað er við og skyggnzt um öxl, verður
manni stundum á að íhuga hvað hafi athyglisvert skeð
innan stofnunarinnar á þessum síðustu og verstu tím-
um. Kemur þá fyrst í huga manns hin öra tækniþróun,
sem gætt hefur svo mjög innan símastofnunarinnar und-
anfarin ár. Miklar nýbyggingar, gífurlegar breytingar á
eldra húsnæði, allt í þágu tækninnar, og um leið hefur
verið notað tækifærið til að búa betur að starfsfólkinu.
Vinnuskilyrði hafa yfirleitt batnað að miklum mun.
Flestar hafa þessar breytingar það sameiginlegt, að erf-
itt er að skapa endanlegt form, þróunin er svo ör á sum-
um sviðum að það, sem endurnýjað er í dag, getur enn
þarfnast breytinga innan tveggja til þriggja ára. Sér-
staklega er þetta áberandi í sambandi við flugþjónust-
una, enda hefur öllu, er að flugi lýtur, fleygt svo fram
nú hin síðustu ár, að undrun sætir.
Hvernig hefur svo félagsmálunum reitt af undanfar-
in ár? Jú, þróun félagsmálanna í heild hefur orðið með
eðlilegum hætti, margt málið verið til lykta leitt okkur
í hag, og er í því sambandi athyglisvert og jafnframt á-
nægjulegt, hve viðhorf símastjórnarinnar til starfsfólks-
ins virðist hafa breytzt til batnaðar á undanförnum ár-
um. Er ekki ósennilegt að það megi að einhverju leyti
rekja til þess, að núverandi ráðamenn hafa alizt upp með
stofnuninni, kynnst og umgengizt fjölda starfsmanna og
hafi því betri skilning á þörfum þeirra en ella. Þó er
því ekki að leyna, að of mörg dæmi eru þess, úr sam-
skiptum símastjórnarinnar og félagssamtaka okkar, sem
virðast benda á, að óskiljanlegar gloppur séu enn fyrir
hendi í skilningi hennar á eðli og rétti félagssamtakanna.
Mesti vandinn í sambandi við lausn hinna ýmsu mála
hefur að sjálfsögðu hvílt á framkvæmdastjórn F.Í.S. og
þá sérstaklega formanninum, Jóni Kárasyni, sem m. a.
vegna fágaðrar framkomu sinnar vekur traust við fyrstu
kynni, og hefur F.Í.S. sjálfsagt notið þess í ríkum mæli.
i