Símablaðið - 01.01.1959, Blaðsíða 21
Aukavinna var greidd með kr. 1.50 á klst. hvenær sem
hún var unnin, og samsvarar það ca. kr. 22.50 nú. Matar-
og kaffihlé eftir geðþótta yfirmanns, — og ekkert á eft-
irmiðdagsvakt. Ekkert sumarfrí fyrr en eftir 1% árs
þjónustu, og þá 2 vikur.
Mér er minnisstætt, þegar frídagur fékkst fyrir unn-
inn helgidag og vinnuvikan styttist. Þar hafði F.Í.S. jafn-
an forgöngu fyrir aðrar stéttir. Eða þegar 33% nætur-
álagið fékkst, þá vann F.Í.S. mikinn sigur.
Starfsmannareglurnar 1935, sem víða eru nú teknar til
fyrirmyndar, veittu okkur mikil réttindi t. d. í veik-
indaforföllum. Þær marka einn stærsta áfangann í bar-
áttusögu F.Í.S.
Hér er aðeins bent á nokkur atriði af hinum fjölmörgu,
sem væru þess verð að rifja þau upp. Og ég held, að ekki
væri betur varið nokkru af því fé, sem F.Í.S. á í sjóðum, en
að kynna hinni yngri kynslóð baráttusögu félagsins og
skipulag þess frá fyrstu tíð, — með útgáfu eins konar
handbókar.
Og svo hef ég verið að velta því fyrir mér, hvort ekki
væri tímabært að F.Í.S. sendi erindreka út um land til að
kynna félagsfólkinu í hinum dreifðu deildum lög félags-
ins, reglugerðir stofnunarinnar og lög þau, er varða op-
inbera starfsmenn. Ég er hrædd um, að sums staðar sé
pottur brotinn þegar um framkvæmd þeirra er að ræða,
t. d. reglur um vaktaplan, og úthlutun fría fyrir unninn
helgidag. Koma þau alltaf niður á virka daga?
Því miður er ég hrædd um að meginþorrinn kynni
sér ekki þessar reglur, eða fái sig ekki til að kvarta und-
an því sem miður fer, af hlífð við yfirmenn sína. En við
verðum að ætlast til þess, að t. d. Umdæmisstjórarnir
láti ekki hjá líða, að kynna sér allar þessar reglur, og
forðist að brjóta þær.
Annað mætti undarlegt heita, þar sem þeir hafa allir
verið forystumenn í félagssamtökum okkar í eina tíð,
jafnvel formenn F.Í.S., sem félagið stendur enn 1 þakk-
arskuld við. Loks vil ég bjóða starfsstúlkurnar á 1. fl. B.
stöðvum velkomnar í hóp okkar, innan vébanda F.Í.S.
L. L.
Einnig vil ég minnast á sunnu-
dagavaktirnar. Þá þurfa þrjár
stúlkur að mæta kl. 8 og þrjár
kl. 9 og þurfa margar þeirra
að kaupa sér bíl í vinnuna, og
þá á hærri taxta en venjulega.
Vitum við til þess, að mörg
fyrirtæki .borga bíla fyrir
starfsfólk sitt, ef það þarf að
mæta í vinnu á þeim tíma, sem
strætisvagnar ganga ekki. Því
getur Landssíminn ekki gert
slíkt hið sama?
Óska ég þess eindregið fyrir
hönd okkar talsímakvenna, að
hlutaðeigandi aðilar taki þetta
til greina.
M. K.
*
Framleitt hefur verið í
Bandaríkjunum sínmtalfæri
með inni-byggðu áhaldi, sem
drepur gerla og „virusa"
nokkrum sekúndum eftir að
talfærið hefur verið sett á, og
fyrirbyggir þannig smitun.
*
Það sorglega við okkar tima
er, að ef karlmaður ætlar
að koma fram við dömu eins
og reglulegur „gentlemaður",
þá álitur hún að hann sé ekki
vitund hrifinn af sér.
*
„Þegar ég var á þínum
aldri,“ sagði móðirin ströng á
svip, „dreymdi heiðarlegar
stúlkur ekki um það, að halda
i hendina á karlmönnum."
„Já, en mamma,“ svaraði
dóttirin, „nú á tímum neyðazt
heiðarlegar stúlkur til að halda
i hendina á karlmönnunum.“
óvimar
1
5ÍMABLAÐIÐ