Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.2005, Side 12

Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.2005, Side 12
12 MIÐVIKUDAGUR 14. DESEMBER 2005 Fréttir DV Um kiukkan níu í fyrra- kvöld var Lögreglunni í Keflavlk tilkynnt að krakkar væru að kveikja eld í rusli í ruslatunnu á bak við kirkj- una í Grindavík. Lögreglu- menn fóru á staðinn og slökktu eldinn með slökkvi- tæki en tunnan sem kveikt var í var skemmd eftir eld- inn. Samkvæmt lögreglunni voru það þrfr strákar á aldr- inum tólf til þrettán ára sem kveiktu í ruslinu en haft var samband við feður þeirra og þeim kynnt málið. Stálu jólaperum Reykjanesbær er mikill jólabær þar sem íbúar skreyta hús sín veglega fyrir hátíð ljóss og friðar. Svo virðist þó sem ekki allir eigi peninga til þess að kaupa perur í skreytingarnar því Lögreglunni í Keflavík var tilkynnt um ljósaperuþjófti- að úr jólaseríum í fyrra- kvöld. Stolið var ljósaper- um úr jólaseríum við tvö hús við Háteig í Keflavík. Ekki er vitað hver þar var að verki. Dópleit á Selfossi Lögreglan á Selfossi ásamt fíkniefnahundi frá tollgæslunni á Keflavík- urflugvelli gerði um helgina hús- leit á Sel- fossi. Við leitina fund- ust 16 grömm af am- fetamíni og um 40 grömm af íblöndunarefni ásamt neyslutólum. Einn aðili tengist málinu sem er í rannsókn. Lögreglumenn þar í bæ höfðu einnig eftir- lit með skemmtistöðum á Selfossi aðfaranótt sunnu- dags. Á tveimur stöðum voru ungmenni undir aldri. Af öðrum staðnum var sex ungmennum vísað út og sjö af hinum. Félagsmálayf- irvöldum var tilkynnt um málið í kjölfarið. „Það er allt gott að frétta af Selfossi," segir Bárður Guð- mundsson, skipulags- og byggingarfulltrúi í sveitarfé- laginu Árborg.Jbúum hefur fjölgað um fjögur hundruð manns og það er mikil uppsveifla i byggingar- bransanum. Svo blómstrar mannlífið sem aldrei fyrr og menningin einnig. Arborg er góðurstaður tii þess að búa." Edda Örnfjörð Magnúsdóttir var metin 75% öryrki árið 2001 vegna veikinda. Edda seldi verðbréf með hagnaði í fyrra sem hún keypti fyrir sjö árum. Hagnaðinn gaf hún að hluta til góðgerðamála en fyrir hluta hans keypti hún bíl. Hún segir að öryrkjar geti ekkert gert til að auka tekjur sínar því þeim sé refsað fyrir það. Edda Örnfjörð Magnúsdóttir er 75% öryrki. Hún þarf að lifa á tæplega 90 þúsund krónum á mánuði. Hún keypti sér verðbréf fyrir 130 þúsund krónur fyrir sjö árum og seldi þau í fyrra fyrir 570 þúsund. Hún segir að öryrkjum sé refsað ef þeir afla sér tekna upp á eigin spýtur. Edda segir að enginn biðji um að verða öryrki, og að veikindi fari ekki í manngreinarálit. Hún segir að tekjutenging örorkubóta geri ekkert annað en að setja öryrkja í fátæktargildru. „Það er skammarlegt að þjóðfé- lag sem státar af því að vera eitt hið ríkasta í heimi skuli vera með svo lélegt almannatryggingakerfi að fólk þurfi að búa við skort," segir Edda Örnfjörð Magnúsdóttir sem var metin 75% öryrki fyrir fjórum „Þannig er ég að borga tvisvar skatta afsömu upphæð. Þetta er hreinn og árum. Edda fékk alvarleg stoðkerfis- vandamál sem leiddu til örorku hennar. Fyrir fjórum árum neyddist hún til að hætta að vinna. „Ég var búin að vinna í sex ár ansi veik áður en ég fór í örorkumat. Ég vildi ekki hætta að vinna svo ég ætti einhver lífeyrissjóðsréttindi því ég vissi hversu lélegar örorkubæturnar voru," segir hún. Refsað fyrir gróðann Edda segir að fyrir sjö árum hafi hún keypt verðbréf fyrir 130 þús- und krónur sem hún hafi selt sex kiár stuláur" árum síðar á 570 þúsund. Andvirði hagnaðarins hafi hún notað að hluta til að gefa einstæðum mæðr- um og að hluta til að kaupa sér bfl. Edda segir að vegna þessa verð- bréfahagnaðar hafi hún fengið bak- reikning frá Tryggingastofnun ríkis- ins. Tryggingastofnunin hafi dregið af tekjutryggingu hennar aftur í tímann og sent henni 50.670 króna bakreikning sem hún þurfti að greiða á þessu ári. Skatturinn stal af mér „Skatturinn stal af mér pening- um því af þessum 130 þúsundum sem ég lagði í verðbréfin var ég búin að borga skatt. Síðan þegar ég leysi út verðbréfin með hagnaði þarf ég að borga skatt af aliri upphæðinni án þess að dregin hafl verið 130 þús- undin frá. Þannig er ég að borga tvisvar «• B.OURREIKHIMGUK Uf EYRBGRE^NA »04 TRj Leiðréttingaseðill frá Trygg- ingastofnun ríkisins A þessu skjali sést að rúmtega 50 þúsund krónur voru dregnar af örorku Eddu vegna verðbréfasölunnar. skatta af sömu upphæð. Þetta er hreinn og klár stuldur," segir Edda sem á þennan hátt greiddi 57 þús- und í fjármagnstekjuskatt í staðinn fyrir 44 þúsund krónur. Býr í skuldlausri eign Edda segir að hún sé svo heppin að búa í skuldlausri eign. Sömu sögu sé ekki hægt að segja um alla. „Margir öryrkjar þurfa að greiða leigu eða af húsnæðislán- um. Það er ekki hægt að ætlast til að við getum lifað af þessum bót- um þegar teknir eru allir útgjalda- liðir eins og matur, rafmagn, sími, leiga eða afborganir af hús- næði, lyf, lækniskostnað- ur, föt og fleira," segir Edda og bendir á að ráðamenn hækki laun sín með jöfnu milli- bili. Henni þætti gaman að vita hvort þeir treystu sér til að lifa á þeim bót- um sem henni séu greiddar. jakobina@dv.is Tónleikar til aö ná til yfirvalda 11. september hreyfíngin heimtar sannanir „Samtökin um 11. september tala fyrir daufum eyrum íslenskra stjórnvalda. Við höfum ítrekað reynt að vekja máls á skorti á sönn- unargögnum sem Bandaríkjamenn höfðu fyrir tilvist gjöreyðingar- vopna í Afganistan áður en þeir réðust þar inn í stríði gegn hryðju- verkum eftir 11. september," segir Stefán Þorgrímsson, ritstjóri gagn- auga.is og félagi í 11. september hreyfingunni. „Nú hefur 11. september hreyf- ingin ákveðið að halda tónleika til þess að reyna að ná til yfirvalda. Fjölmargir þjóðþekktir einstakling- ar eru tilbúnir að leggja málefninu lið,“ segir Stefán. Yfirskrift tónleikanna er „Sann- anir". Þar er vísað til þess að íslensk stjórnvöld sinni kröfu 11. septem- ber hreyfingarinnar um að birta þær sannanir sem Bandaríkin af- hentu þeim og notaðar voru til að réttlæta innrásina í Afganistan. Stefán segist sannfærður um að þær séu til staðar. Tónleikarnir verða haldnir í kvöld á Gauki á Stöng og þarf varla að taka fram að flestir listamannanna gefa vinnu sina. Megasukk, Mammút, Bent og 7berg, Touch og fleiri koma fram. Þeir heijast klukkan 20 og inn kostar 500 krónur. „Við verðum með geisladiska, bæklinga og fleira til þess að kynna þetta íyrir fólki þarna í anddyrinu," segir Stefán en búast má við því að-fá tónleikunum megi finna samansafn helstu róttæk- linga landsins. 11. september hreyfingin Heimtar að islensk stjómvöld afhendi sannanir sem Bandaríkjamenn notuðu til að réttlæta innrásina I Afganistan. Stefán Þorgrímsson Ritstjóri gagnauga.is og meðlimur í hreyfíngunni.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.