Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.2005, Page 25
DV Lífið sjálft
MIÐVIKUDAGUR 14. DESEMBER 2005 25
Ofbeldisfullir tölvuleikir breyta heilanum
Ofbeldisfullir tölvuleikir geta
breytt mannsheilanum og gert
hann ónæman fyrir raunverulegu
ofbeldi. Þetta kemur fram í nýrri
bandarískri rannsókn þar sem
tölvuleikjanotkun 39 karlmanna var
skoðuð. Vísindamenn mældu lfk-
amsörvun karlmannanna á meðan
þeir skoðuðu ýmsar myndir. Niður-
stöðumar sýndu fram á að þeir sem
spila ofbeldisfulla tölvuleiki sýndu
lítil viðbrögð þegar þeir sáu nei-
kvæðar myndir. „Flest okkar bregð-
ast við blóði og dauða. Þeir sem
hafa spilað ofbeldisfulla leiki hafa
hins vegar þurft að komast yfir við-
brögð sín til að klára leikinn," kom
fram í niðurstöðunum.
Vefnaður Armann
vefur fallegar mottur.
Aðventugarðurinn Aðventu-
garðurinn er 75 ára gömul hefð
að Sólheimum og er útbúinn I
upphafi hverrar aðventu.
Skemmtilegir „ Til okkar mættu
Omar Ragnarsson, Raggi Bjarna
og Þorgeir Ástvaldsson/ segir Val-
geir og bætir við að Ómar hafi
farið flikk flakk og heljarstökk og
Raggi Bjarna sagt ótrúlega
skemmtilega brandara.
rj
9 ráð til að nióta jólanna
1. Ef fjölskyldumeölimum kemur illa
saman skaltu ekki vona það besta,
hella í þá áfengi og leika hina full-
komnu fjölskyldu.
Z Ekki velta þér upp úr af hverju þú
þolir ekki jólin á meðan þú undir-
býrð aðfangadagskvöld. Láttu hátíð-
ina snúast um fjölskylduna en ekki
heimilið.
3- Ef þú sérð um veitingarnar skaltu
biðja um hjálp.
4 Mundu eftir sjálffi þér. Sestu nið-
ur á kvöldin með góða bók og rauð-
vínsglas.
5- Ef þú hefur ekki eytt of miklum
peningi slakarðu meira af yfir jólin.
Reyndu að nota kreditkortið sem
minnst svo þú þurfir ekki að hafa
áhyggjur af komandi reikningum.
6. Athugaðu hvort þú getir fengið
tveggja daga frí í vinnunni fyrir jólin
svo þú verðir ekki búin á því þegar
aðfangadagur rennur upp.
7. Ef þér líður illa í margmenni
skaltu forðast verslunarmiðstöðv-
amar í desember. Reyndu að versla í
litlum búðum og á netinu.
8. Vektu bamið innra með þér og
reyndu að upplifa hina einu sönnu
jólastemningu.
9. Passaðu þig að hata ekki jólin fyr-
ir hversu markaðsleg þau em orðin.
Ekki trúa því að jólin séu aðeins fyr-
ir bömin. Jólin em fyrir alla og það
er þitt að ákveða hvemig þú nýtur
þeirra.
Guðmundur Ólafsson leikari og rithöf-
undur er 54 ára í dag. „Þegar stjörnu-
kort mannsins sem um ræðir er skoðað
birtist talan tveir. Tvisturinn táknar
stöðu mannsins og markmið sem tengj-
ast óumflýjanlega ákvörðun
hans varðandi framtíðina.
Hann ætti að skilgreina
drauma stna, áætlanir og til-:
gang sinn í lífinu áður en
hann ákveður hvað skal verða,"
segir í stjörnuspá hans.
Guðmundur ólafsson
Vatnsberinn (20. jan.-18.febr.)
Þú munt án efa hafa manna-
forráð (framtíðinni og standa þig vel.
Hér kemurfram staðfesting um vel-
gengni í framtíð þinni ef þú hlúir vel að
eigin þörfum’. Ef ýmisleg vandamál sem
tengjast þínum nánustu eru enn óleyst
ættir þú að ganga frá lausum endum í
samvinnu við fólkiö þitt fýrir vikulok.
Fiskarnir c19.febr.-20.mrs>
Ef þú finnur fyrir einhverskon-
ar reiði um þessar mundir er hér um
tímabundið ástand þitt að ræða. Allt
mun leika (lyndi. Dagarnirframundan
verða góðir fyrir þær sakir að ástin um-
lykur þig.
Hrúturinn (21.mars-19.apnij
Þegar þú verður fyrir mótlæti
kemst þú auðveldlega í gegn-
um það ef þú ert fædd/ur undir stjörnu
hrútsins. Ekki láta tækifærin fram hjá
þér fara með rangri ákvarðanatöku sem
tengist starfi þínu eða námi næstu átta
daga.
Nautið (20. apríl-20. mal)
t ■ —
Huggun, bati og gæfa tengist
líðan þinni þar sem lukkuhjól þitt snýst
þér í hag. Gættu þess að vinna ekki of
mikið, skemmta þér ekki um of eða
gera of mikið úr hlutunum sem þú
upplifir kæra naut.
l\l\burmu (2lmai-2ljúní)
Góðmennska þín er áberandi
á sama tíma og möguleikar þínir eru
takmarkalausir. Svo er gaman að skoða
að þú býrð yfir aðlögunarhæfileika sem
kemur þér vel (desember.
Klðbbm (22. júnl-22.júh)
Fyrirboði um upphefð tengist
merki krabbans í dag. Lánið leikur viö
þig en hér er um að ræða fyrirboða um
ný spennandi verkefni (starfi/námi eða
hugsanlega nýtt starf kemur einnig
fram og á breyting þessi við byrjun
næsta árs.
Ljónið (23.jik- 22. ógústl
—
Farðu varlega f einhverja áætl-
anagerð og forðastu að taka áhættu.
Hér er einnig boðuð heimsókn góðs
vinar sem er þér kær.
Meyjan (21 ágúst-22. sept.)
Þú ættir að vera óhrædd/ur
við að taka ákvarðanir sem þú hefur
eflaust lengi frestað kæra meyja. Uttu
fyrir alla muni framhjá göllum annarra,
og þá sér í lagi þeirra sem þú elskar,
viljir þú öðlast og upplifa sanna ham-
ingju.
Vogin (23.sept.-23.okt.)
Ágóði er einkunnarorð stjörnu
vogar í dag en þú mættir að sama
skapi hlusta betur á undirmeðvitund
þína sem kallartil þín.
Sporðdrekinn 124.okt.-21.n0vj
Ætlunarverk sem tengist námi
eða starfi er lokið eða er um það bil að
Ijúka. Æðstu óskir þínar munu rætast
innan tíðar og reyndar mun þér ganga
vel (öllu sem þú tekur þér fyrir hendur
ef þú hlustar á hjarta þitt og heldur
fast í samvisku þfna.
Bogmaðurinn (22.n0v.-21.desj
Hér birtist fyrirboöi frétta af
löngu liðnum atburðum sem breyta
án efa miklu í lífi þínu en í dag er þér
ráðlagt að gera upp við þig hverju þú
vilt helst einbeita þér að og hverjum
þú kýst að tilheyra.
Steingeitin (22.des.-19.janj
'
Hér er boðuð farsæld sem ýtir undir
sjálfstraust þitt og ekki síður viðhorf
gagnvart náunganum.