Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.2006, Qupperneq 24
24 FÖSTUDAGUR 13. JANÚAR 2006
Menning DV
IJrmjón: Páll Baldvin Baldvinsson pbbMv.is
Á morgun milli 14-17 er opið hús i Myndlistaskólanum í Reykjavík. Þar gefst
kostur á að sjá verk eftir alla nemendur skólans sem eru um fjögur hundruð •
á öllum aldrt. Verkstæöi og stofur veröa opnar og gestum boölð að spreyta
slg á hreyfimyndagerð, leirrennslu og -mótun. Starfsmcnn verða á staðnum
og kynna starf skólans. Boöið verður upp á nýbakaðar vöfflur og kaffi.
Vorönn hefst í lok janúar meö þrjátiu námskeiðum fyrir börn, unglinga og
ungt fólk: hreyfimyndagerð, Ijósmyndun, loirkerarennsla, myndlist/heim-
speki og Myndlist rokkar. Einnig er boðið upp á btönduð námskeið fyrir ald-
urskipta hópa, 3-5,6-9,10-12 og 13-16 ára.
Fyrir fullorðna er boðið upp á stutt námskeið i Ijósmyndun og tölvuvinnslu
en einnlg fjórtán vikna námskeið I vatnslitun, keramikrennslu, portrettteikn
ingu, módelteikningu, hlutateikningu, frjálsri málun, oliumálun, íkonagerö,
litafræöi og hönnun svo eitthvað sé nefnt, en allir kennarar skólans eru starf
andl myndlistarmenn og hönnuðir.
ÞAÐ er hálfkyndugt að heyra og sjá
NFS auglýsa að á stöðinni séu
bestu fréttaskýringarþættir í heimi.
Þeir eru allir amerískir og túlka og
tjá heiminn eins og hann Ktur út frá
þröngum sjónarhóli bandarískra
fréttamanna.48 hours,60 minutes,
Frontline,eru allir merktir banda-
rlskum sjónarmiðum í bak og fyrir
og bera þess glöggt merki að þeir
eru hugsaðir af einstaklingum sem
hafa drukkið heimsveldisóra Amer-
íku með móðurmjólkinni.
ÞAÐ vill svo til að á Digitál Island
geta menn séð heimsmálin frá rík-
isreknum og einkareknum stöðv-
um Evrópu. Þýskir, franskir, spænsk-
ir og norrænir þættir geta bætt
áhugasömum upp bandarlsku
þættina og einsýnina sem þar er
ríkjandi. I gærkvöldi sýndi NFS stak-
an þátt úr röð Panorama-þátta BBC
sem hafa um langan aldur verið
eitt helsta flaggskip fréttaskýringa-
þátta þar á bæ fyrir utan News-
night.
Flugur
Menningartengd feröaþjónusta hefur verið lausnarorð í dreifðum byggðum
landsins um árabil og verður æ fyrirferðarmeiri í lífsafkomu íbúa þar sem
henni vex tiskur um hrygg. Eyrarrósin var sett á stofn til að veita viður-
kenningu og styrk verkefnum sem bera af á þessu sviði atvinnulífsins. Frú
Dorrit Moussaieff afhendir hana í dag öðru sinni.
H|
GAGNRÝNIR
þættir hafa
reyndar ekki átt
upp á pallborðið. Bæði ritstjórn
Panorama og Dispatches sem
Channel 4 sýndi lentu I útistöðum
við stjórnvöld I Bretlandi. Það er
áhyggjuefni að víða um Evrópu er
verið að þrengja að ritstjórnum
slíkra þátta.Opinber beinskeytt
gagnrýni flýr inn I blöð og I vaxandi
mæli á vefslður.
SAMKRULLI vestrænna ríkisstjórn
við hernaðarlhlutun I Austurlönd-
um hefur ekki styrkt stöðu mál-
frelsis - lýðræðislega kjörnar stjórn-
ir sem eru taglhnýtingar Kanans
standa höllum fæti og hafa gengist
við ýmsu sem ekki þolir dagsins
Ijós. Þegar svo fer að harðna á
dalnum (strlðsrekstri herveldisins
og taglhnýtinga þess - einfeldn-
inga á borð við okkur - þá er enn
hættara við að reynt verði að
þagga niður beinskeytta gagnrýni.
* EF NFS vill ná máli sem fréttastöð
verður yfirstjórn þar á bæ að átti
sig á að heimurinn séður út um
amerískt tvöfalt gler er annar en sá
sem blasir við Evrópubúum eins og
Islendingum. Reyndar er yfrið nóg
af bandarískum sjónarmiðum í
boði á Digital Island fyrir:CNN, Fox
og raunar Sky líka. Það er því að
bera (bakkafullan lækinn að skjóta
„network" prógrömmum á borð
við ofannefnda þætti inn í (slenska
spjallrás á borð við NFS.
í dag verður Eyrarrósin, viður-
kenning fyrir framúrskarandi
menningarstarf á landsbyggðinni,
afhent öðru sinni. Fyrir tveimur
árum gerðu Listahátíð í Reykjavík,
Byggðastofnun og Flugfélag ís-
lands með sér samkomulag um
eflingu menningarlífs á lands-
byggðinni. Markmið með viður-
kenningunni Eyrarrósinni er að
stuðla að auknu menningarlífi á
landsbyggðinni, auka kynningar-
möguleika sveitarfélaga og lands-
hluta og sóknarfæri á sviði menn-
ingartengdrar ferðaþjónustu.
Eyrarrósin er veitt einu afburða
menningarverkefni á starfssvæði
Byggðastofnunar.
Peningar og
verðlaunagripur
Auglýst var eftir umsóknum í
ijölmiðlum og voru umsækjendur
m.a. ýmis tímabundin verkefni,
menningarhátíðir, stofnanir, söfii.
Verkefnisstjóm, skipuð forstjóra
og stjórnarformanni Byggðastofn-
unar og stjómanda og fram-
kvæmdastjóra Listahátíðar í
Reykjavík, tilnefnir og velur verð-
launahafa. Þrjú verkefni hafa verið
tilnefnd. Eitt þeirra hlýtur Eyrar-
rósina; fjárstyrk að upphæð kr. 1,5
milljónir og verðlaunagrip eftir
Steinunni Þórarinsdóttur til eign-
ar og hin tvö hljóta 200 þúsund
króna framlag, sem em eftirstöðv-
ar af Menningarborgarsjóði. öll
verkefnin hljóta að auki tíu flug-
ferðir frá Flugfélagi íslands. Verð-
launin veitir Dorrit Moussaieff
forsetafrú, sem jafnframt er
verndari Eyrarrósarinnar. Fyrir
réttu ári féllu verðlaunin í skaut
Þjóðlagahátíðarinnar á Siglufirði
en þá vom einnig tilnefnd verk-
efnin Aldrei fór ég suður; Rokkhá-
tíð alþýðunnar á fsafirði og Lista-
hátíðin Á Seyði á Seyðisfirði.
Þrír keppinautar um
heiðurinn
Þrjú verkefni em tilnefiid. Eitt
þeirra er Jöklasýning á Höfn í
Homafirði sem dómnefnd segir
um: „Fjölbreytt og metnaðarfullt
verkefni, þar sem stefnt er saman
fjölmörgum aðilum og stofnunum
á sviði vísinda, menningar og
ferðaþjónustu. Sýningin byggir á
sérstöðu landsvæðisins og sögu
þess, auk þess sem fremstu vís-
inda- og háskólastofnanir lands-
ins á þessu sviði koma að upp-
byggingu hennar og framkvæmd."
Annað verkefnið er Kóra-
stefna við Mývatn: „Afar vandað
tónlistarverkefni með mikilli
þátttöku innlendra og erlendra
Minnkandi aðsókn á kvikmyndir í Evrópu
Aðsókn að evrópskum kvik-
myndahúsum er að dragast sam-
an. Skiptir þar litlu hvort kvik-
myndir em evrópsk framleiðsla
eða af bandarískum toga. Verstur
er samdráttur í Þýskalandi en þar
hefur aðsókn að kvikmyndahús-
um dregist saman um fimmtung
milli ára. Er það versta ár á þrettán
ára tímabili. Á Spáni er samdráttur
15% og í Frakklandi 10%. Það em
bara Danmörk og Stóra-Bretland
sem standa nokkum veginn í stað.
Og ísland.
f Danmörku þakka menn ár-
angurinn dönskum kvikmyndum
sem eiga helming miðasölu. Þá er
talið að betri kvikmyndahús eigi
hlut að viðunandi aðsókn. Fjöldi
danskra kvikmyndahúsa hefur
verið endurnýjaður. Þá er dönsk
kvikmyndahúsamenning sterk,
fjöldi smærri klúbba er þar starf-
andi og Kvikmyndaklúbburinn
þar í landi sem selur afsláttarmiða
á tilteknar kvikmyndir um land allt
nýtur þar mikiila vinsælda.
Kvikmyndahúsaeigendur og
dreifingaraðilarkenna aukinni af-
ritun kvikmynda af neti og útgáfu
kvikmynda á diskum um þennan
slaka árangur. Stórmyndir skil-
uðu slökum aðgangstölum um
alla álfuna í desember sem menn
vonuðu að hefðu meira aðdrátt-
arafl en raun bar vitni: stórmynd-
ir eins og War of the World og
King Kong reyndust fá minni að-
sókn víðast en vonir stóðu til.
Einu löndin sem sýna verulega
aukningu í aðsókn eru fyrrum
Sovétríkin: Rússland, Úlaaína,
Kasakstan, Hvíta-Rússland,
Moldóvía og Armem'a bæta við
sig í aðsókn. 76,5
milljónir bíógesta
2004 risu upp í 92
milljónir 2005.
WaroftheWorlds
Paranojumynd Spiel-
bergs floppaði.
Hlutar af Jöklasýn-
ingu Sýning þeirra
Hornfirðinga er ein
þriggja tilnefninga til
Eyrarrósarinnar.
kóra, auk þess sem tónlistarmenn
úr nágrannasveitum taka þátt í
því. Byggt á langri hefð í byggðar-
laginu og framkvæmdin einkenn-
ist af miklum metnaði og þraut-
seigju. Gott samstarf við fjölda
aðila á svæðinu og sívaxandi þátt-
taka langt út fyrir það sýnir að
verkefnið á mikla framtíð fyrir
sér."
Þriðja verkefnið sem kemur til
álita er LungA - listahátíð ungs
fólks, Austurlandi: Einkar litrík
menningarhátíð ungs fólks í
tengslum við listahátíðina Á seyði.
Listrænn metnaður og afar fjöl-
breytt dagskrá með þátttöku inn-
Iendra sem erlendra listamanna
dregur athygli að staðnum. Mynd-
list, tónlist, sirkus og útiviðburðir
tvinna saman skemmtilega dag-
skrá, sem höfðar til fjölmenns
hóps heimamanna og gesta.