Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.2006, Page 10
10 MIÐVIKUDACUR 1. MARS2006
Fréttír X*V
Kostir & Gallar
VSlgBPÖUP
Valgerður er traust, dugleg og
afar metnaðarfuH manneskja.
Einnig þykir hún greind og
kraftmikil.
Hennar helstu gallar eru þeir
að hún á það tíl að gleyma
sjálfri sér, í öllum sínum
metnaði fyrir starfi sínu.
Binnig þykir sumum það galli
hversu fá eintök eru til af
henni.
„Valgerður er mjög traustog
frambærileg manneskja, stendur
sig mjög vel I staríi sinu og hefur
aukið veg lista og menningar hér í
bænum. Égþekki hana
lika sem íslenskukennara
og hún stóö sig frábær-
lega I þvi starfi. Ég kenndi
með henni og þaö er
mjög gott að vinna með
henni, bara fyrirtaksmanneskja
og myndi treysta henni í hverju
sem er. Helsti gallinn er að það er
bara tileitt eintakafhenni."
Jóhann Geirdal, oddviti Samfylkingarinn-
ar í bæjarstjórn í Reykjanesbæ.
„ Valgerður er mjög greind kona.
Hún er líka kraftmikil og mjög úr-
ræðagóð. Hún hefur unnið mjög
vel i sínu starfí sem menningar-
fulltrúi og sinnt því afstakri
prýði og á stóran þátt i þvi
hvernig okkur hefur tekist
að setja Reykjanesbæ á
kortið sem menningarbæ.
Hún ermjög ósérhlífín en um leið
kann það að vera galli. Hún þarf
líkaað hllfa sjálfum sér stundum
en það er llka eini galli hennar. "
Arnl Sigfússon, bæjarstjóri i Reykjanesbæ
„Hún Valgerður er hörkudugleg
kona. Hún hefur helgað sig þess-
um málafíokki sem hún vinnur
að, menningarmálunum. Hún
hefur alveg griðarlegan áhuga
fyrir menningarmálunum
og sýnir mikinn metnað í
starfí. Það er ótrúlegur
kostur. Ég á erfítt með að
koma auga á galla henn-
ar. Ég myndi helst segja
að hún gleymir stundum sjálfri
sér; hugar kannski ofmikið að
starfí sínu. En það er náttúrulega
mikill kostur fyrir Reykjanesbæ að
hafa svona konu í starfí, einhverja
sem ersvona áhugasöm í starfí."
Björk Guðjónsdóttir, forseti bæjarstjórnar
í Reykjanesbæ
Valgeröur Guömundsdóttir er fædd 3.júni
1955. Hún er menningarfulltrúi Reykjanes-
bæjaroghefur kennt íslensku i einum af
grunnskólum bæjarins. Valgeröur er einnig
konan á bak viö einn farsælasta framsóknar-
mann landsins, Hjálmar Árnason, en hann
fékk hjartaáfall fyrir skemmstu en er á bata-
vegi. Valgeröur hlúir aö manni slnum sam-
hliöa kröfuhöröu starfí hjá Reykjanesbæ.
Ölvaðurog
sokkalaus
íflókaskóm
Lögreglan á Hvolsvelli ók
fram á berfættan mann í
bleikum flókaskóm aðfara-
nótt sunnudagsins á hlaup-
um á þjóðveginum vestan
við Landvegamót. Maðurinn
var fáklæddur og undir
áhrifum áfengis og hafði
orðið sundurorða við vini
sína. Hann hafði í hyggju að
hlaupa til Reykjavíkur en
þegar þetta átti sér stað var
einnar gráðu frost. Maður-
inn var keyrður til
Lögreglunnar á Sel-
fossi og þaðan kom
Selfosslögreglan
honum til Reykjavík-
ur í upphituðum
lögreglubfl.
Ingimundur Kjarval er afar ósáttur við að til standi að gera ijárnám i búi móður
hans Guðrúnar Kjarval, sem er 89 ára. Er um að ræða málskostnaðarkröfu sem varð
eftir mál hennar á hendur Pétri Þór Gunnarssyni. Málið var fellt niður. Ingimundur
telur að um samsæri sé að ræða til að tengja Kj arvalsíj ölskylduna í fölsunarmál.
Fjárnám yert í bái
Gulránar Kjarval
„Ég er á því að
þetta hafí verið
samsæri til að
fiækja Kjarvalsfjöl-
skylduna í þetta
mái, enda skilst
mér að rikislög-
reglustjóri hafí bent
Ólafí á þessa leið."
I Sigríður Rut Juli-
usdóttir Skuld
| gömlu konunnar er
| eftir að mál gegn
| Pétri Þór, skjólstæð-
| ingi Sigrlðar, var fell
S niður.
I Ingimundur
Kjarval Barna-
barn meistarans
berst nú á mörg-
um vfgstöðvum.
Eignað Kjarval Hér
getur að líta eitt verk-
anna úr Stóra málverka■
fölsunarmálinu sem
eignað varKjarvai.
„Nú á að leggjast í íjárnám gegn móður minni 89 ára gamalli. Ég
hef fengið staðfestingu á að enginn í fjölskyldunni skrifaði und-
ir neina stefnu," segir Ingimundur Kjarval, barnabarn Jóhannes-
ar Kjarval.
Ingimundur er afar óhress með
að gera eigi fjámám í eigum móður
hans, vegna máls sem gamla konan
hafi nánast verið plötuð út í og hafi
engin tök á að greiða kostnaðinn.
Hún eigi ekki neitt. Ekki er um háa
upphæð að ræða eða 125 þúsund
krónur en Ingimundur er engu að
síður afar ósáttur við að hið óskipta
bú móður sinnar skuli blandast í
málið.
Mogens Hoff er enginn
Kjarval
Aðdragandi málsins er að Guð-
rún Kjarval, tengdadóttir Jóhannes-
ar Kjarval, höfðaði að undirlagi Ólafs
Inga Jónssonar, að sögn Ingimund-
ar, einkamál á hendur Pétri Þór
Gunnarssyni í kjölfar Stóra mál-
verkafölsunarmálsins. Var Pétur Þór
sakaður um fölsun og sölu á mál-
verki sem ranglega var eignað Jó-
hannesi Kjarval. Lögmaður Guðrún-
ar, Jóhannes Albert Sævarsson, hélt
því fram að Pétur hefði fest kaup á
málverki eftir danska málarann
Mogens Hoff á uppboði hjá Bruun
Rassmusen í Kaupmannahöfn árið
1992. Það málverk hafi svo dúkkað
upp á uppboði í Gallerí Borg meðan
Pétur var þar framkvæmdastjóri
sem „Vorkoma" og merkt JSKjarval.
Pétur Þór vissi
ekki af lög-
sókninni,
hafði ekki
uppi neinar
varnir, og var
dæmdur til
þess að greiða
milljón í sekt.
Sigríður Rut Júl-
íusdótt-
lög-
Jóhannes Albert Sævarsson
Lögmaður Guðrúnar segir að
eftir standi 12S þúsund króna
skuld i málskostnaðarkröfu.
ir,
maður
Péturs
Þórs,
fór fram á endurupptöku málsins og
var það þá fellt niður. Enda Pétur
Þór með staðfestingu frá Bruun um
að hann hafi ekki keypt myndina.
125 þúsund krónur
til Sigríðar Rutar
„Já, eftir standa 125 þúsund
krónur. Eftir að málið var fellt niður
á sínum tíma. Ég veit svo sem ekki
hvar það er statt," segir Jóhannes Al-
bert, lögmaður Guðrúnar. Eru þetta
málsvarnarlaun Sigríðar Rutar. Jó-
hannes segist ekki vita hvar málið er
statt en verið sé að þreifa á því
hvernig þetta verður greitt eða
hvernig því verður komið frá. „Lög-
fræðilega lítur þetta þannig út.“
Ingimundur segir móður sína
engin tök hafa á að greiða þá upp-
hæð.
„Mamma á ekki neitt. En til eru
myndir á íslandi eftir afa sem fund-
ust fyrir nokkru í Stýrismannaskól-
anum og eru vinnuteikningar af
veggmyndunum í Landsbankanum
meðal annars. Ekki væri ég hissa þó
gengið yrði í þær. Það er það eina
sem er í þessu dánarbúi svo ég viti
sem er einhvers virði."
Samsæri um að flækja
Kjarvalsfjölskylduna í málið
Ingimundur segir svo frá að Ólaf-
ur Ingi hafi komið til systur hans
Kolbrúnar Kjarval og sagt að nú
væru góð ráð dýr. Ekki nema
klukkutími til stefnu. „Eftir það átti
ekki að vera hægt að snerta þessa
falsara. Systir mín gaf samþykki
undir pressu, en skrifaði ekki undir
neitt. Eg er á því að þetta hafi verið
samsæri til að flækja Kjarvalsfjöl-
skylduna í þetta mál, enda skilst mér
að ríkislögreglustjóri hafi bent Ólafi
á þessa leið," segir Ingimundur.
DV hafði samband við Kolbrúnu
sem vísaði á Ólaf Inga Jónsson for-
íií'v ; '■ ■ .....
vörð. Ólafur Ingi segir þetta rangt
hjá Ingimundi. Kæran hafi ekki ver-
ið lögð fram án vitundar Guðrúnar
sem situr í óskiptu búi. Ólafur vildi
að öðru leyti ekki tjá sig um málið.
Ingimundur liggur hins vegar
hvergi á skoðunum sínum en hann
sjálfur mætir til landsins í apríl til að
reka mál á hendur Reykjavíkurborg
sem Ingimundur sakar um að hafa
stolið verkum afa síns þeim sem
mynda stofn
inn í safni
Kjarvals-
staða.
Réttar-
höldin
hefjast
26. apríl.
jakob@dv.is
Ólafur Ingi Jónsson
Forvörðurinn sem Ingi
mundur teiur vera að
flækja fjölskylduna fföls
I unarmáisem hann vill
ekkert um vita.
: WÉ
Boðaði forföll og kallaði til varamenn
Dagur komst ekki á fundi vegna annríkis
„Ég var nú úti í Istanbúl í síðustu
viku,“ segir Dagur B. Eggertsson
borgarfulltrúi en hann hefur líkt og
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson sleppt
því að mæta á tvo fundi borgarráðs á
þessu ári. Dagur var úti í Istanbúl
þegar annar fundurinn var haldinn
að skrifa undir sameiginlegt for-
varnarverkefni fyrir hönd Evrópu-
samtaka gegn fíkniefnum. Dagur
segir að Istanbúl sé falleg borg en
það hafi samt verið ansi kalt. Hinn
borgarráðsfundinn komst hann ekki
á vegna þess að hann hitti á annan
fund sem Dagur átti með hollensk-
um arkitekt sem er sérlegur ráðgjafi
Reykjavíkurborgar. í bæði skiptin
mætti Björk Vilhelmsdóttir sem
varamaður fyrir hann.
„Hinn frábæri Andri Snær
Magnason hefur verið varamað-
ur minn í menningar- og
ferðamálaráði," segir Dagur
um fjarveru sína á fundi hjá menn-
ingar- og ferðamálaráði sem Stefán
Jón Hafstein er formaður í en Dagur
hefur ekki mætt á fund eftir áramót.
Dagur segir að hann hafi tekið frí
frá nefndinni á
meðan
hann stóð I
prófkjörs-
barátt-
unni
enda um
mikla
vinnu að
ræða. Dagur \
segir að
Andri Snær *
hafi stað-
ið sig svo vel að hann viti ekki hvort
sæti hans í nefndinni sé betur skip-
að með Andra frekar en honum.
Dagur bætir þó við að skammvinnri
sælutíð Andra sé lokið því hann byrji
aftur í dag á nefndarfundum.
„En það er ánægjulegt að Vil-
hjálmur þurfi ekki lækninn sinn á
fundum," segir Dagur og hlær vegna
heilsuhreystis Vilhjálms Þ. Vil-
hjálmssonar, oddvita Sjálfstæðis-
flokksins, sem
sagði í viðtali
við DV í gær
að hann
hefði ekki
orðið veik-
ur síðan í
ágúst 1982.
B- E99ertsson Finnst dnægjulegt að
Vilhjálmur þurfí ekki lækni á fundum.