Dagblaðið Vísir - DV - 06.03.2006, Side 8
8 MÁNUDAGUR 6. MARS 2006
Fréttir DV
Með tæp 60
grömm
Pétur
Reynir Jó-
hannesson er
ákærður fyrir
að haft á heim-
ili sínu 56
grömm af amfetamíni, 53
amfetamíntöflur, lítilræði
af kannabis, kókaíni og
LSD. Mál hans var þingfest
í Héraðsdómi Reykjaness
síðastliðinn fimmtudag.
Efnin fundust við húsleit
heima hjá Pétri í október og
desember á síðasta ári. Pét-
ur játar að hafa haft efnin í
sinni vörslu. Krafist er refs-
ingar yflr Pétri og að lög-
regla geri fflcniefnin upp-
tæk.
Brotist inn í
Fiskbæ
Laust eftir hádegi á
laugardag barst Lögregl-
unni í Keflavík tilkynning
um innbrot í fiskbúðina
Fiskbæ við Hringbraut í
Keflavík. Þar hafði gluggi
verið spenntur upp á bak-
hlið hússins. Peningakass-
inn í búðinni hafði verið
brotinn upp og eyðilagður.
Stolið var 4.000 krónum í
seðlum. Lögreglan hafði
afskipti af tveimur ungum
drengjum á torfæruhjólum
í Sandvík á Reykjanesi sem
hún grunar um verknað-
inn. Frá þessu var greint á
vefVíkurfrétta.
Ljóð unga
fólksins
Þöll, samstarfshópur um
barnamenningu á bóka-
söfnum stendur nú í
fimmta sinn fyrir ljóða-
keppni fyrir böm á aldrin-
um 9-16 ára. Þátttakend-
unum er skipt í tvo aldurs-
hópa, 9-12 ára og 13-16
ára. Hver þátttakandi má
senda inn þrjú ljóð. Þrjú
bestu ljóðin í báðum flokk-
um verða síðan verðlaun-
uð. Verðlaunin verða í
tengslum við alþjóðadag
bókarinnar 23. aprfl næst-
komandi. Vinningsljóðin
verða svo gefin út á bók
ásamt úrvali af öðmm ljóð-
um. Skilafrestur er til 17.
mars.
Sólarhring eftir aö ungur karlmaöur var stunginn með eggvopni inni á
skemmtistaö við Tryggvagötu var lögregla aftur kvödd til vegna stungu-
árásar. Aftur við Tryggvagötu, skammt frá sama skemmtistað. Árásin var
hrottaleg en árásarmaðurinn stakk fórnarlambið fimm sinnum og reyndi
síðan að komast undan lögreglu á bíl.
Stakk mann limm sinnum
í bakið í hópslansmálnm
‘:'r
'Æ
Klukkan var að ganga sex á sunnudagsmorgni þegar lögregl-
an fékk hringingu frá nokkrum vegfarendum á mótum
Tryggvagötu og Hafnarstrætis vegna hópslagsmála sem brot-
ist höfðu út á skemmtistað. Tveir hópar slógust og enduðu
átökin við Kaffi Reykjavík. Þar var karlmaður um tvítugt
stunginn fimm sinnum í bakið.
Slagsmálin em talin hafa byrjað á
skemmtístað við Tryggvagötu. Að
þeim komu tveir hópar. Lögreglan var
kvödd á vettvang um klukkan hálf sex
aðfaranótt sunnudags en þá hafði
maðurinn þegar verið stunginn.
Mikill æsingur
Þegar lögreglan kom á staðinn
voru átökin yfirstaðin. Mikill æs-
ingur var í fólki á svæðinu og
þeim sem áttu hlut að máli, enda
margir hverjir þreyttir eftir mikla
skemmtun. Vegfarendur hringdu
á lögreglu og nokkrir þeirra stöðv-
uðu lögreglubfl sem var á leið í
Hafnarstrætið. Samkvæmt heim-
ildum DV vissi fórnarlambið ekki
að það hafði verið stungið fyrr en
lögreglumenn bentu á það. Tveir
stórir blóðblettir á baki mannsins
sáust á hvítum bol hans.
í kjölfarið var kallað á sjúkra-
bfla og komu tveir aðvífandi með
blá blikkandi ljós ásamt fleiri lög-
reglubflum. Maðurinn var færður
með hraði á Landspítala - há-
skólasjúkrahús þar sem hann
dvelur nú. Áverkar hans eru ekki
Stunginn í portinu? Ekki liggur Ijóst
fyrir hvar maðurinn varstunginn en stór
hluti slagsmálanna fór fram I portinu á
bak við Grillhúsið á Tryggvagötu.
f
I Fyrir dómara Meintur
I hnífstungumaður var
I færður fyrir héraðsdóm-
j ara klukkan sex í gær.
1 Hann hylurandlitsitt
I meðjakka lögreglu-
I mannsins á myndinni.
Vertinn á Gauknum Annar ungurmað-
ur var stunginn á efri hæð skemmtistaðar-
ins Gauks á Stöng, aðfaranótt laugardags.
Fórnarlambið hlaut alvarlega áverka,
meðal annars féll saman lunga. Sigurður
Hólm á Gauknum harmar atvikið. Árásar-
maðurinn er I gæsluvarðhaldi.
eins alvarlegir og talið var í fyrstu.
Keyrði í burtu
Eftír að árásarmaðurinn hafði
stungið fómarlambið fimm sinnum
í bakið hljóp hann ásamt félögum
sínum í burtu. Tveir þeirra voru
teknir skammt frá vettvangi. Sá sem
grunaður er um hnífstungumar
hljóp að bíl sínum og keyrði á brott.
Lögreglumenn náðu honum
skömmu síðar. Hann var ekki ölvað-
ur undir stýri en að sögn lögreglu
liggur ekki ljóst fyrir hvort hann
hafði neytt fíknieftia. Himi meinti
árásarmaður var úrskurðaður í
gæsluvarðhald til föstudagsins 10.
mars. Hinum tveimur var sleppt úr
haldi í gær að loknum yfirheyrslum.
Á-fullu skriði
Bjamþór Aðalsteinsson fer með
„Það liggur bara vel á mér/'segir Gunnar Kvaran, fyrrverandi framkvæmdastjóri SÁÁ.
„Ég erað taka dótið úr bílnum uppi i sumarbústað I Svínadal f Hvalfirði. Ég ætla að
njóta þess að vera hér og lesa blöðin. Ég er hér með fjölskylduna, konuna og barna-
börnin. Það liggur bara á að fara aö grilla. “
IÁ vettvangi Tveir
1 sjúkrabílarog fjöldi
| lögreglubíla kom á
I Tryggvagötuna eftir
I árásina. Maðurinn var
Ifluttur með hraði á
| slysadeild LSH.
Sá sem grunaöur er
um hnífstungurnar
hljóp að bíl sínum og
keyrði á brott.
Lögreglumenn náðu
honum skömmu síðar.
rannsókn málsins hjá Lögreglunni í
Reykjavflc. Hann segir að rannsókn
málsins sé á fúllu skriði. í vikunni
munu lögreglumenn fara yfir upptök-
ur úr myndbandsupptökuvélum sem
staðsettar em við Kolaportíð og at-
huga hvort einhver hlutí atburðarás-
arinnar hafi náðst á myndband.
Ef kemur til ákæm í málinu er lík-
legt að hrufstungumaðurinn verði
ákærður fyrir sérlega hættulega lflc-
amsárás eða jafnvel tilraun til mann-
dráps. Refsiramminn fyrir sérlega
hættíflega lflcamsárás er sextán ára
fangelsi og fyrir tilraun til manndráps
ævilangt fangelsi. Dómar upp á
sfðkastíð hljóða upp á allt að tveggja
ára fangelsi fyrir fyrmelhda brotið og
allt upp í firnm ár fyrir hið síðar-
nefnda.
gudmundur@dv.is
„Menn fara vopnaðir í bæinn"
Skýrsla um ofbeldisverk í miðbæ
Reykjavíkur var unnin fyrir Lögregl-
una í Reykjavík siðastliðið haust. I
henni kemur fram að ofbeldi er hvað
mest í og við Hafnarstræti og á
Tryggvagötu þar sem mennirnir tveir
voru stungnir um helgina. „Það má
rekja þetta til þess að staðir á þessu
svæði eru opnir lengur en aðrir. Á
þessa staði sem eru opnir lengst er
meira af útköllum," segir Geir Jón
Þórisson, yfirlögregluþjónn hjá Lög-
reglunni í Reykjavík. Hann bendir þó
á að það séu gestirnir, ekki staðirnir,
sem séu til trafala. Svona lagað gerist
undir morgun, þegar fólk er orðið
ringlað eftir langvarandi neyslu
áfengis eða fíkniefna. „Það er gefið
að hættan á ofbeldisverkum er meiri
á þröngum svæðum og í húsasundum
en á opnum svæðum."
Hann segir vopnaburð Reykvíkinga
hafa aukist síðustu ár. „Við sjáum
sífellt grófari ofbeldisverk. Og það er
að færast i aukana að menn fari vopn-
aðir i miðbæinn," segir Geir Jón og
bendir á að þeir sem hlut hafa átt að
málum hafi borið það fyrir sig að þeir
þyrftu að verja sig ef til átaka kæmi.