Dagblaðið Vísir - DV - 06.03.2006, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 06.03.2006, Blaðsíða 14
74 MÁNUDAGUR 6. MARS 2006 Fréttir JXV Bondekurá Ford Mondeo James Bond verður Mondeo-maðurinn í hinni nýju mynd Casino Royale. Talið er að Ford-verksmiðjurn- ar hafi greitt sem svarar 1,5 milljörð- um króna til að fá sinn bíl í myndina en venjulega ekur Bond um á Aston Martin-sportbíl. Samkvæmt breska blaðinu The Sun munu áhorfendur myndar- innar sjá Bond, sem leikinn verður af Daniel Craig, nota bfiinn í eltingarleikjum og við að ná sér í stúlkur í sen- um á Bahamaeyjum. Hins vegar mun Bond einnig aka um á hinum góðkunna Aston Martin í myndinni. Fékk nócj af pylsugrini Fótboltalið í Rúmeníu krefst þess nú að fá endur- greitt verð á leikmanni sem það keypti fyrir 15 kfló af pyls- um. Varnar- leikmaðurinn Marius Cioara lék hjá ann- arrardeildarliðinu UT Arad en var seldur til fjórðu- deildarliðsins Regal Hornia fyrir framangreint verð. Hann hætti síðan hjá sínu nýja félagi eftir aðeins einn dag og sagðist var búinn að fá sig fullsaddan af pylsu- gríni frá bæði félögum og áhangendum liðsins. Marius segir að hann hafi aldrei orðið fyrir öðrum eins móðgunum á æfinni, er hættur í fótbolta og bú- inn að ráða sig á bóndabæ á Spáni. Löggurí Skotapilsum Þrír þýskir lögreglu- menn eiga yfir höfði sér refsingu eftir að þeir mættu á lögguball klæddir Skotapils- um. Löggurnar sem vinna í Spandau- hverfinu í Berlín komu í pilsunum á búningaball sem haldið var í ölgerð einni. Eftir því sem leið á bjórdrykkjuna fóru pilsin að færast upp leggi þeirra og brátt gátu allir viðstaddir séð að löggurnar báru pils- in eins og Skotum er lagið, það er án þess að vera í nærunum. Ein kvenkyns- lögga á ballinu segir að þeir hafi „flaggað öllu" framan í hina gestina. Tengdafaðir Tonys Blair reyktijónu Tony Blair, forsætisráð- herra Bretlands, greindi frá því í viðtalsþætti hjá Michael Parkinson að tengdafaðir hans, gamanleikarinn Tony Booth, hefði eitt sinn kveikt í mari- júanajónu fyrir framan hann. Þetta gerðist árið 1980 skömmu eftir að Tony giftist konu sinni Cherie og þau voru í heim- sókn hjá tengdó. „Hann spurði mig hvort ekki væri í lagi að hann kveikti í jón- unni,“ segir Tony Blair. „Ég hugsaði: Þetta er tengda- pabbi minn, á þetta ekki að vera öfugt?" Fjármálaspekingar í Rússlandi hafa nú vaxandi áhyggjur af hlutabréfamarkaðinum þar í landi. Hlutabréfavísitalan í rússnesku kauphöllinni hefur hækkað um 83% á einu ári. Talið er að hættulegur óstöðugleiki sé til staðar og að „blaðra“ þessi geti sprungið með tilheyrandi afleiðingum fyrir rússneskt efnahagslíf. Hlutabréfavísitalan í rússnesku kauphöllinni, RTS, hefur hækkað um 83% á einu ári og hafa fjármála- spekingar þar í landi nú vaxandi áhyggjur af því að fjárhagsleg blöðrustaða sé að myndast á mark- aðinum. Óttast er að vísitalan sé komin upp úr þakinu, hættulegur óstöðugleiki sé til staðar og að „blaðran" geti sprungið með tilheyr- andi afleiðingum fyrir rússneskt efnahagslíf. I nýlegri umfjöllun BBC um þetta mái kemur fram að mikið flæði fjár- magns frá erlendum lífeyrissjóðum ásamt auknum olíutekjum landsins hafi kynt undir methækkunum á hiutabréfamarkaðinum. „Við ótt- umst mjög að verið sé að mynda svokallaða blöðru," segir German Gref, fjármálaráðherra Rússlands. „Við verðum að hafa fingurinn á púlsinum hjá lykilfyrirtækjum svo bjartsýni fjárfesta leiði ekki til hruns." Markaðurinn kældur I síðasta mánuði fékk rússneska fjármálaeftirlitið leyfi frá stjórnvöld- um í Kreml til að beita ýmsum end- urbótum sem ætlað er að kæla niður markaðinn. Þetta kom í kjölfar að- vörunar frá Oleg Vyugin, yfirmanni hinnar opinberu ijármálaþjónustu landsins. Oleg telur að núverandi ástand á markaðinum sé hættulega óstöðugt. Hans ráð eru auknar fjár- festingar í lífeyrissjóðum og strang- ari reglur um innheijaviðskipti. Fleiri aðilar á markaðinn Það sem einkum knýr yfirvöld í Moskvu til aðgerða nú eru væntingar um mikinn fjölda ný- skráninga á hlutabréfamarkað- inn. Þar fer fremst skráning og sala á hlutabréfum í olíurisan- um Rosneft sem stjómvöld ætla að einkavæða í náinni framtíð. Hins vegar vara sérfræðingar við því að áhugi á rússneska markaðinum byggist ekki á hagfræðilegum gmnni. „Þegar markaður er í sókn vegna þess að framboð á lausa- f fé er meira en framboð á eign- er erfitt að sjá fyrir hvar ökuferðin muni enda," segir Roland Nash, yfir- greiningar- deildar ijár- festinga- bankans Renaissance Capital. maður Olíurisinn Fyrir liggur að einka- væða Rosneft- ollurisann. Níu mánuðum eftir meistaradeildarsigurinn Fæðingardeildir eru yfirfullar í Liverpool Liverpool-búar hafa greinilega fagnað meistaradeildartitli sínum gegn AC Milan fyrir níu mánuðum vel og lengi. Fregnir berast nú frá borginni um að allar fæðingardeildir þar séu yfirfullar af verðandi mæðr- um. Ekstra Bladet greinir frá þessum skemtilegu tíðindum og segir að bara á Liverpool Womans-spítalanum séu sængurkonur orðnar 642 í mars en vom 611 á sama tíma í fyrra. Ef ástandið er svipað á öðmm spítölum má reikna með um eitt hundrað fæð- ingum umfram meðaltalið á þessum tíma. Hið fyrsta „meistaradeildarbarn" er þegar fætt en það vom hjónin Kevin Tremarco og Clare Mason sem eignuðust soninn Joel Mason í síð- asta mánuði. Hinn 23 ára gamli Kevin segir að sig- urkvöldið hafi' ver- ið einstök upplif- un. „Ég man eftir c. því sem barn er ^MsZenZZrd Liverpool vann Evr- Uagnarsigrin- ópubikarinn en á I umífyrra. tímabili í leiknum nú var ég nærri búinn að slökkva á sjón- varpstækinu því ég hélt að við værutn búnir að glutra þessu niðun" Tveimur vikum effirieikmh komst Clare að því að hún væri ólétt. „Seinna rann það upp fyrir okkur að barnið hefur að öllum líkindum komið undir þetta kvöld," segir Kevin. „Það gerir þetta allt mun ein- stakara í okkar huga." Kevin bætir því við að Joel litli verði að sjálfsögðu alinn upp sem Liverpool-aðdándi. Leikstjórinn Spike Lee æfur í skapi Condi, hættu að reykja þetta krakk! „Condi, hættu að reykja þetta krakk!" þetta segir hinn opinskái leik- stjóri Spike Lee í aprfl- útgáfunni af tímaritinu Stuff. Blaðið New York Daily News segir að Spike Lee sé æfur af reiði út í Gondoleezzu Rice, utan- ríkisráðherra landsins, Spike LeeÆfurút 'þessa daghna. „Mér líkar afskókaupum utan- verr við Condoleezzu en rlkisráðherrans. Bush forseta," segir leikstjórinn. „Málið er að hún hefur verið stikkfrí hjá blökkumönnum. Fólk segir: Hún hefur náð svo miklum árangri. Líttu á stöðu hennar sem blökkukonu. En hún er svört kona sem alin er upp í Alabama og hefur aldrei upplifað kynþáttafordóma allt sitt líf." Spike Lee sendir utanrflds- ráðherranum tóninn vegna hegðunar hennar meðan á fellibylnum Katrina stóð í New Orleans. „Ég veit að þú elskar Ferragamo-skóna þína,“ segir Lee um Condi. „Meðan fólk var að drukkna í New Orleans var hún á gangi upp og niður Madison Ave. að kaupa Ferra- gamo-skó. Síðan fór hún í leik- húsið að sjá Spamalot. Ég segi: Condi, hættu að reykja þetta krakk!" Og New York Daily News lýkur umfjöllun sinni um þetta mál með því að segja: „Þú heyrðir í mannin- um, frú utanrfldsráðherra. Leggðu frá þér krakk-pípuna."

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.