Dagblaðið Vísir - DV - 06.03.2006, Síða 15
DV Fréttir
MÁNUDAGUR 6. MARS 2006 15
Ayman al-Zawahri, hægri hönd Osama bin Laden, hvetur
alla múslima til að sniðganga danskar vörur vegna skopteik-
ninga Jótlandspóstsins af Múhameð spámanni. Þetta kom
fram í nýju myndbandi sem sjónvarpsstöðin A1 Jazeera
sýndi um helgina.
AIKaída blandar sér
í skopmyndamáliö
Ayman al-Zawahri, hægri hönd
Osama bin Laden og næstráðandi í
hryðjuverkasamtökunum al-Kaída,
hefur hvatt alla múslima til að snið-
ganga danskar vörur og allt sem
danskt er vegna skopteikninga Jót-
landspóstsins. Þetta kom fram í
nýrri myndbandsupptöku með hon-
um sem sjónvarpsstöðin A1 Jazeera
sýndi um helgina. í upptökunni
hvetur hann múslima til að snið-
ganga vörur frá öllum löndum þar
sem skopterkingarnar hafa verið
sýndar.
„Það er skylda okkar að taka þátt
í að sniðganga vörur og koma
þannig við efnahag Danmerkur,
Noregs, Frakklands, Þýskalands og
allra þeirra landa sem taka þátt í
þessari krossför gegn múhameðs-
trúnni," segir al-Zawahri meðal
annars í myndbandinu.
Líkt við trúarbragðastríð
Al-Zawahri segir skopteikningar
Jótlandspóstsins bandarískt leidda
krossferð og líkir henni við trúar-
bragðastríð. „Þetta er dæmi um
hatrið frá lcrossförinni sem Banda-
ríkjamenn leiða og hefur í för með
sér síendurteknar móðganir í garð
spámannsins. Megi friður vera með
honum," segir al-Zawahri. „Þeir
gera þetta með vilja og án þess að
biðjast afsökunar."
Tekin af heimasíðu
í frétt Ekstra Bladet um málið
kemur fram að upptökuna sé að
finna á heimasíðu sem múslimskir
öfgamenn nota oft til að koma boð-
skap sínum á framfæri. Samkvæmt
frásögn A1 Jazeera var myndbands-
upptökunni komið í þeirra hendur
af „persónu" en að öðru leyti vill
stöðin ekki tjá sig um tilurð hennar.
Auk al-Zawahri er að finna aðra
rödd á myndbandinu þar sem hvatt
er til nýrra árása á Vesturlönd í stíl
við þær sem urðu í New York,
Madrid og London.
Réttarhöldin yfir John Gotti jr. halda áfram
Frænkan eins og klippt út úr Soprano-þætti
Réttarhöldin yfir John Gotti jr.,
syni hins alræmda mafíuforingja
Johns Gotti, halda áfram í New York
en hann er sakaður um ýmiss konar
skipulagða glæpastarfsemi. Fjöl-
miðlar í borginni hafa í auknum
mæli fjallað um það sem þeir kalla
„ofurgellurnar" í Gotti-fjölskyldunni
sem kallaðar hafa verið til vitnis í
réttarhöldunum. Sú nýjasta er Vict-
oria Gotti Albano, 18 ára háskóla-
mær og barnabarn Johns Gotti, en
New York Daily News segir hana
eins og klippta út úr Soprano-þætti.
Hún er næstum tvífari Meadows,
dóttur Tonys Soprano í þáttunum.
Áður hefur blaðið lfkt systur Johns
Gotti jr., sem einnig heitir Victoria,
við Playboy-fyrirsætu.
Að sögn blaðsins hefur háskóla-
mærin bæði fegurð og gáfur til að
bera. „Hún ætlar sér að verða lög-
maður," segir Victoria amma henn-
Victoria Gotti Systir sakborningsins og hef-
ur verið likt við Playboy-fyrirsætu.
ar en það er einnig draumur Mead-
ows í Soprano-þáttunum.
Victoria Albano skammst sín síð-
ur en svo fyrir að vera barnabarn
Johns Gotti. Hún mætti til réttar-
haldanna með „prinsessu“-hálsmen
John Gotti „Ég telJohn Gotti vera stórkost-
legasta mann sem nokkru sinni hefur lifað. “
úr demöntum sem mun vera gjöf frá
afanum. Og-er hún ræddi við frétta-
menn eftir vitnisburð sinn sagði hún
einfaldlega: „Ég tel John Gotti vera
stórkosflegasta iipann sem nokkru
sinni hefur lifað."
Og lélegasta myndin er... Dirty Love
Fern Razzie-verðlaun
Kvöldið fyrir óskarsverð-
launin er haldin Razzie-há-
tíðin í Hollywood þar sem
lélegustu myndir og leikar-
ar ársins fá verðlaun. Það er
óhætt að segja að Playboy-
pían fyrrverandi Jenny
McCarthy hafi komið, séð
og sigrað í ár. Mynd hennar
Dirty Love hlaut fjórar af
tíu Razzie-stytt-
um, þar á meðal
sem versta
mynd ársins.
Jenny skrif-
aði handritið og
lék aðalhlutverkið en fyrr-
Jenny McCarthy
Kom, sá og sigraði
á Razzie-verð-
launahátiðinni.
verandi eiginmaður hennar,
John Ashner, Jeikstýrði. Hún
lék ljósmyndara, sem reyndi
að hefna sín fyrir framhjáhald
kærastans. Myndin komst
aldrei í almennilega dreifingu
eftir að gagnrýnendur hökk-
uðu hana í sig.
Af öðrum verðlaunahöfum
má nefna Rob Schneider fyrir
Deuce Bigalow - Europian
Gigolo og Paris Hilton fyrir
aukahlutverk í House of Wax.
Tom Cruise og Katie Holmes
hlutu sérstök verðlaun sem
„Þreyttasta skotmark slúður-
blaðanna".
PERSÓNULEG ÞJÓNUSTA í 25 ÁR
• GELNEGLUR * LITUN OG PLOKKUN
• HANDSN YRTING • BRÚNKUMEÐFERÐIR
• FÓTSN YRTING • HÚÐSLÍPUN
• VAXMEÐFERÐIR • SÝRUMEÐFERÐIR
• ANDLITSBÖÐ
SNYRTIST OFAN
SDLon rit_æ
LAUGAVEGI 66 • SÍMAPANTANIR: 552 2460
Hárvörur fyrir rautt
Vertu
eftirminni
LANOVÉLAR
Smiðiuvogur 66 - 200
Sökiaðili Akureyrl Slml 461 2288
STRAUMRÁS
Furuvellir 3 - 600 Akureyri
..kúlulegur
..keflalegur
..veltilegur
..rúllulegur
..flangslegur
..búkkalegur
I
i
i