Dagblaðið Vísir - DV - 06.03.2006, Page 19
DV Sport
MÁNUDAGUR 6. MARS 2006 19
Fram komst aftur í toppsæti DHL-deildar karla í handbolta
um helgina eftir að bikarmeistarar Stjörnunnar undirstrik-
uðu úrslit bikarúrslitaleiksins með því að vinna annan sann-
færandi sigur á Haukum. íslandsmeistarar Hauka misstu
toppsætið fyrir vikið.
Er Stjarnan að
blanda sér í
toppbarattuna?
Bikarmeistarar Stjörnumanna nálgast óðum toppbaráttu DHL-
deildar karla en liðið vann fímm marka sigur á toppliði Hauka,
33-28, um helgina. Stjarnan hefur nú leikið 13 leiki í röð án taps,
á leik inni á efstu þrjú liðin og er nú sex stigum á eftir Fram þeg-
ar sjö umferðir eru eftir af íslandsmótinu. Líkt og að undanförnu
voru það stórleikir Patreks Jóhannessonar, Tite Kalandaze og
Roland Eradze sem lögðu grunn að sigurinum.
Stjarnan hefur tekið 9 af 10
mögulegum stigum eftir að DHL-
deildin fór í gang á ný eftir EM-fnið
og þótt að margt þurfi að gerast td
þess að Stjarnan nái efstu liðunum
er aldrei að vita hvað gerist, sérstak-
lega þegar Garðarbæjarliðið tapar
ekki leik.
Patrekur Jóhannesson átti stór-
leik gegn Haukum og skoraði 9 mörk
og ekki stóð Tite Kalandaze honum
langt að baki með 7 mörk. Það var
þó líkt og í bikarúrslitaleiknum,
markvörðurinn Roland Eradze sem
gerði útslagið í seinni hálfleiknum
þegar hann varði hvað eftir annað
frá Hafnfirðingum úr dauðafærum.
Sama þróun í báðum leikjum
Leikurinn þróaðist nánast eins
og bikarúrslitaleikur liðanna á dög-
unum. Haukar höfðu 11-9 forustu í
hálfleik í bikarúrslitaleiknum en
Stjarnan vann seinni hálfleikinn 15-
9 og þar með leikinn með fjórum
mörkum. í Ásgarði á laugardaginn
þá voru Haukarnir líka með eins
marks forskot í hálfleik, 19-18, en
Stjarnan vann seinni hálfleikinn aft-
ur, 15-9, og þar með leikinn með
fimm mörkum, 33-28. Roland Era-
dze varði 20 skot í leiknum og skor-
aði meðal annars eitt mark yfir endi-
langan völlinn. Likt og í Höllinni sjö
dögum áður þá fundu skyttumar í
liði Hauka, Andri Stefan og Árni Þór
Sigtryggsson, enga leiðir að marki
Stjörnunnar en saman skomðu þeir
aðeins 4 mörk á laugardaginn, báðir
langt undir sínu meðalskori.
Ungu strákarnir markahæstir
Fram vann nauman sigur í Eyjum,
34-32, í jöfnum og spennandi leik og
hinir ungu lærisveinar Guðmundar
Guðmundssonar em því komnir aft-
ur upp á topp deildarinnar en Safa-
mýrarpiltar hafa ekki unnið Islands-
meistaratitilinn í heil 34 ár eða síðan
Fram vann titilinn í 8. sinn vorið
1972. Ungu skytturnar, Jóhann
Gunnar Einarsson (9 mörk) og Rúnar
Kárason (5 mörk) vom markahæstir í
Framliðinu en Jóhann Gunnar hefur
verið í frábæm formi eftir EM-fríð og
skorað 41 mark í 5 leikjum eða 8,2
mörk að meðaltali í leik.
Hörð barátta um úrvalsdeild-
arsæti
Valsmenn unnu Fylkismenn í
Laugardalshöllinni á föstudagskvöld-
ið og fylgja því toppliðunum eftir en
tap Fylkismanna þýddi að Stjaman
komst upp fyrir þá í fjórða sæti deild-
arinnar. Hjalti Þór Pálmason skoraði
10 mörk fyrir Valsmenn í leiknum en
besti maður liðsins var markvörður-
inn Hlynur Jóhannesson sem varði
19 skot (2 vítí) þar af 16 þeirra eftir
hálfleik. FH, HK og ÍR unnu einnig öll
góða sigra á föstudagskvöldið og það
stefnir í mikla baráttu um að komast
inn í úrvalsdeildina. ÍR-ingar hafa
ekki tapað eftir áramót og em einir
ásamt Stjömumönnum sem hafa af-
rekað slfla.
ooj@dv.is
Stjarnan 9
Fram 8
Haukar 8
ÍR 8
Valur 6
| HK 6
FH 6
Fylkir 4
Afturelding 4
I Víkingur/Fjölnir 4 1
Þór Ak. 3
(BV 2
KA 2
Selfoss 0
STAÐAN I DHL-DEILD KARLA:
GÆÐIOG GOÐ ÞJONUSTA!
Ktistín
W W W . V i
«# rvc r
i jr
TANGARHOFDA 1 SÍMI 557 7720
DV-myndir Anton Brink