Dagblaðið Vísir - DV - 06.03.2006, Side 24
I
24 MÁNUDAGUR 6. MARS 2006
Lífsstíll DV
Hér er á ferðinni uppskrift af
gómsætum rétti fyrir fjóra í
byrjun vikunnar:
4tortillur
1 krukka Sadá L'Antipasto
Peperonata (paprika)
150 gr. Galbani Mozzarella-ostur,
niðursneiddur
100 gr. cheddar-ostur, rifinn
20 grænar ólífur
MEÐLÆTI:
Tabasco-sósa.
AÐFERÐ:
Forhitið ofninn (220°C. Setjið
cheddar-ost ofan á hverja tortillu,
sfðan Sadá-paprikur ofan á. Setj-
ið að lokum mozzarella-ost og
ólifur ofan á. Bakið f ofni f ca. 10
til 15 mfn., eða þartil osturinn
byrjar að bráðna. Berið fram með
Tabasco-sósunni.
TIL TILBRE YTINGAR:
Prófið mismunandi álegg. Ég
mæli með Sadá Peperonata, feta-
osti og rifnum kúrbft eða Sadá
Peperonata, sveppum og parma-
skinku.
Með ósk um góðan dag,
Ingvar.
Heil og sæl er nýr íslenskur matreiðsluþáttur á Skjá einum í umsjá Þorbjargar
Hafsteinsdóttur og Oscars Umahro Cadogan þar sem þau leggja aðaláherslu á að
kenna fólki að lifa eftir 10 grunnreglum í mataræði. Lífsstíll átti sérstaklega fræð-
andi og gott spjall við Þorbjörgu um ástina sem ríkir milli þeirra, mataræði og
síðast en ekki síst hvernig best væri að heQa nýja viku eftir „sukkhelgi“.
/-------------------
„Ég hef fætt og alið mín þrjú
böm þar og á þar góða fjölskyldu.
Bæði íslenska og danska. Ég vinn
þar, kenni næringarfræði og nær-
ingarráðgjöf," segir Þorbjörg Haf-
steindóttir sem að eigin sögn
stundar spinning, horfir út á hafið
og notar mikinn tíma með yngstu
dóttir sinni sem býr til skiptis hjá
henni og föður sínum.
„Ég skrifast á við stóm dætur
mínar. Ein er í Kaupmannahöfn og
hin er f ferð um heiminn," segir hún
áður en tal okkar berst að þættinum
Heil og sæl sem sýndur er á þriðju-
dagskvöldum á Skjá einum og hefur
nú þegar vakið viðbrögð áhorfenda.
„Þar leggjum við áherslu á að kenna
fólki að breyta um mataræði og
hætta öllu bulli," svarar hún kok-
hraust og heldur áfram: „Við Um-
ahro höfum verið með námskeiðið
10 grunnreglur síðasta árið sem
hafa verið mjög vinsæl. Það er góð
byrjun að breyttum lífsstíl. Róm var
ekki byggð á einu degi," útskýrir
hún og brosir fallega og bætir við:
„Það vom reglurnar heldur ekki."
Sameinuð og ástfangin
„Við tengjumst fýrst og fremst
sterkum tilfinningaböndum," svar-
ar Þorbjörg óhrædd við umræðu-
efnið þegar spurt er um samband
hennar og Umahro en það er áber-
andi að þau em öflug heild í Heil og
sæl-þáttunum á Skjá einum. „Emm
búin að vera par í bráðum fjögur ár
þannig að við erum enn í „honey
moon"-fasanum. Og svo emm við
kollegar og mjög góðir vinir. Annars
mundi þetta nána samstarf ekki
ganga upp.
Við emm gott „team" því að við
höfum hvort okkar kosti og reynslu
sem sameinast í mjög góðri heild,
eftir minni meiningu. Ég meina, ég
er sú sem hefúr mestu reynsluna í
að ráðleggja fólki í einstaklingsráð-
gjöf, hef gert það í 15 ár bæði hér og
f Danmörku. Ég hef reynslu af „al-
vörufólki" sem er ómetanleg
reynsla og viskubmnnurinn er stór
í réynslusögum þess og hvernig
mataræðið virkar í praksís. Ég læri
mikið af þeim.
Umahro er hugsuðurinn. Hann
býr mest í heilanum á sjálfum sér
og þar gerast hinir ótrúlegustu
hlutir. Hann er mjög duglegur og
það er varla sú rannsókn sem hann
ekki þekkir," segir hún ánægð með
elskuna sína og er áberandi orku-
mikil og töfrandi.
Góðráð eftir„sukkhelgi"
„Ég held að ég mundi bytja á því
að ráðleggja fólki að minnka sukkið
um helgar svo að öll vikan fari ekki í
að ná sér á strik lfkamlega, andlega
og orkulega," svarar Þorbjörg að-
spurð hvemig lesendur Lífsstíls geti
hafið nýja viku og þá jafnvel eftir
„sukkhelgi" í mataræði og sælgæt-
isáti. Hún heldur einlæg áfram að
svara:
„En auðvitað bjóða helgar upp á
að gera öðmvísi og þar á meðal að
borða annað en við gerum hvers-
dagslega. En það er ekki þar með
sagt að það þurfi endilega að vera
hamborgarar, pitsur, fleiri lítrar af
gosi og fullar sælgætisskálar sem
gerir þennan mismun," segir Þor-
björg og heldur áfram:
„Þvert á móti hafa flestir þörf á
að hlaða rafhlöðumar eftir oft erf-
iða og langa vinnuviku, þar sem
kannski ekki alltaf hefur verið tími
til að laga góðan og hollan og upp-
byggjandi mat fyrir líkama og sál.
Helgarnar em kjörið tækifæri til að
nota betra hráefiú og gefa sér góðan
eða allavega meiri og betri tíma í
eldhúsinu, kannski þarf hjóna-
bandið á því að halda að málin séu
rædd á meðan verið er að matreiða
r/VÍð
tengjumst
fyrst og
fremst
tilfinninga-
böndum."
T.
NJOTTU LIFSINS
með HéILBRIÍjÐUM
LIFSSTIL
Gaman að bjóða vinum í súpu
GULRÓTARSÚPA MEÐ ENGIFER OG
KÓKÓS
„Fólkldagerað
uppgvöta hversu ótrúlega góður matur
súpur eru. Innihald þeirra og aðferðir hafa
breyst svo mikið, “ segir Helga Mogensen og
bætir við:„ Viðnotum ekkert hveiti, engan
sykurog engin aukaefni."
„Þessi guirótarsúpa er matarmikil," útskýrir
Helga og hripar niður uppskriftina fyrir
Ufsstll.„Það eræöislega gaman að búa til
matarmikla súpu og bjóða vinum I
mat og þá er gott að bera einnig
fram til dæmis heimabakað
speltbrauð og hummus."
5-6 stk. meðalstórar gulrætur
1/2 dl. engifer (rifinn)
1 stk. laukur
'3 msk.sltrónusafi
1/2 dl. hvftvln
1/2 knippi ferskur kóriander
1 dós kókosmjólk
2 msk.gerlausgrænmetiskrafur
1/2-11. vatn (grænmetissoð)
saltog nýmalaður svartur pipar
Einfalt og hollt
„Þetta er einfalt," segir hún og útskýriraf
einlægni: „Gulræturnar og laukurinn er
saxað smátt. Grænmetið er léttsteikt, þar til
þaö er orðið meyrt I stórum potti. Þá er
vatninu og grænmetiskraftinum (græn-
metissoð) bætt útl og látið sjóða I ca. 15.
mlnútur. Þá ætti grænmetið að vera
oröið það meyrt I gegn að sprullari
eða töfrasproti ætti að ráða við að
fullmauka súpuna. Eftir að hún
m ~
á*
.
hefur verið maukuð er hún bragðbætt með
hvítvlni en það þarfekki, sítrónusafa og
salti og pipar. Rifnum engifemum og
kókosmjólkinni erslðan bættsaman við.
Gott er að láta þetta malla við vægan hita I
fimm mlnútur eftir að hafa verið
bragðbætt. Ferskur rifínn kóriander er settur
yfír rétt áður ensúpaner borin fram og
varla þarfað nefna það að nýbakað
heimalagað speltbrauð erþað eina sem
þarfmeð réttinum," segir hún að lokum og
kveður okkur með góðri kveðju.